Er að reyna að nota þetta forrit til að laga flakkara sem ég er með. Vesenið á flakkaranum lýsir sér þannig að ég get bara notað ákveðið mikið af honum áður en hann gefur mér error message eða hættir að færa á milli.
Var að ná mér í Trial útgáfuna af Diskeeper Pro 2010 en ég kann bara ekkert á þetta og FAQ á síðunni hjá þeim er ekki að hjálpa mér og google ekki mikið hledur.
Veit einhver hvernig ég get gert þetta í þessu forriti eða veit einhver um betra forrit til að gera þetta?
Takk fyrir
Diskeeper Pro 2010, notkun
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 911
- Skráði sig: Lau 29. Nóv 2008 00:43
- Reputation: 0
- Staðsetning: In le matrix
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Diskeeper Pro 2010, notkun
ég tók eftir svona vandamáli hjá mér einu sinni þegar ég var með Windows XP Sp3 , og þá gerði hann þetta alltaf .. prufaði að færa í windows 7 og þá lagaðist þetta hjá mér allavega
-
Höfundur - /dev/null
- Póstar: 1442
- Skráði sig: Sun 04. Jan 2009 18:25
- Reputation: 14
- Staða: Ótengdur
Re: Diskeeper Pro 2010, notkun
KrissiK skrifaði:ég tók eftir svona vandamáli hjá mér einu sinni þegar ég var með Windows XP Sp3 , og þá gerði hann þetta alltaf .. prufaði að færa í windows 7 og þá lagaðist þetta hjá mér allavega
Varstu þá með flakkara? Annars þá er ég að keyra Windows 7 núna.
Re: Diskeeper Pro 2010, notkun
Búinn að prófa taka diskinn úr og setja í aðra hýsingu? Hef lent í ekki ósvipuðu fyrir löngu og þá var þetta bara hýsingin. Diskurinn virkaði flott í öðrum flakkara/hýsingu
-
Höfundur - /dev/null
- Póstar: 1442
- Skráði sig: Sun 04. Jan 2009 18:25
- Reputation: 14
- Staða: Ótengdur
Re: Diskeeper Pro 2010, notkun
Muttley skrifaði:Búinn að prófa taka diskinn úr og setja í aðra hýsingu? Hef lent í ekki ósvipuðu fyrir löngu og þá var þetta bara hýsingin. Diskurinn virkaði flott í öðrum flakkara/hýsingu
Ég hef ekki prófað það. Þetta er 2,5" IDE fartölvudiskur og á ég ekki aðra hýsingu fyrir hann.
Ef að einhver er svo góðhjartaður að lána mér aðra hýsingu þá væri það alveg hreint út sagt AWZM!