droid vs iphone *skoðanakönnun*

droid vs iphone

android
59
74%
iphone
21
26%
 
Samtals atkvæði: 80

Skjámynd

Höfundur
Dormaster
Gúrú
Póstar: 569
Skráði sig: Fös 12. Nóv 2010 23:42
Reputation: 0
Staðsetning: On Your MOM!
Staða: Ótengdur

droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf Dormaster » Mið 26. Jan 2011 23:45

ég og vinir mínir erum búnir að vera ap rífast um hvort að iphone eða droid sé betra svo að..


Find me on Facebook
ASRock 770 Extreme3 ATX | Phenom II X4 955 (OEM) | G.skill 2x2 GB RAM 1066 MHz | 1TB | HD6870 | EZ Cool 600W | Win7
------------------
BenQ EW2420 24'' VA LED FULL HD 16:9 skjár, svartur

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf dori » Mið 26. Jan 2011 23:49

Það svara náttúrulega bara allir eftir því hvað þeir eiga. Mjög ólíklegt að einhver gæi með iPhone fari að segjast sjá sjúklega eftir því að hafa keypt sér hann og vildi að hann ætti Galaxy S eða HTC Desire eða eitthvað. Og öfugt. High end símarnir (s.s. allir iPhone og þessir 50k+ android) eru allir mjög góðir og hafa bara smá mismunandi áherslur. Þú þarft bara að ákveða hvað er mikilvægt fyrir þér og bera það saman við það sem þú færð með hverju tæki og ákveða þannig hvað hentar þér best.



Skjámynd

Höfundur
Dormaster
Gúrú
Póstar: 569
Skráði sig: Fös 12. Nóv 2010 23:42
Reputation: 0
Staðsetning: On Your MOM!
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf Dormaster » Mið 26. Jan 2011 23:52

málið er bara að þessir símar eru alltof líkir og mér finnst svolitið asnalegt af apple að vera með þetta svona dýrt mér finnst það alltof mikið að borga 150þ fyrir síma þar sem þú getur fengið þér eiginlega eins á 50þ


Find me on Facebook
ASRock 770 Extreme3 ATX | Phenom II X4 955 (OEM) | G.skill 2x2 GB RAM 1066 MHz | 1TB | HD6870 | EZ Cool 600W | Win7
------------------
BenQ EW2420 24'' VA LED FULL HD 16:9 skjár, svartur

Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf Glazier » Fim 27. Jan 2011 00:00

Dormaster skrifaði:þar sem þú getur fengið þér eiginlega eins á 50þ

Gætiru bent mér á síma sem hefur sömu eiginleika og þessi ? (á 50.000 kr.)
http://buy.is/product.php?id_product=1681

Verður þá að vera jafn hraður, með mjög þæginlegt notendaviðmót, jafn mörg apps, 16 gb í minni myndavél að framan og aftan, þessi að aftan með flassi og síðast en alls ekki síst með jafn góðann snertiskjá og iPhone hefur alltaf verið með frá upphafi :)


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf dori » Fim 27. Jan 2011 00:04

Glazier skrifaði:Verður þá að vera ...snip... jafn mörg apps

Ég hef aldrei skilið þessa typpamælingakeppni. Við erum með "APPS!", 300k (eða hvað sem það er orðið í dag). Þetta er krabbameinið í snjallsímum, það skiptir engu máli hversu mörg application eru til, það skiptir máli hvort það séu til application sem gera það sem þig langar að gera eða er gagnlegt fyrir þig. Bæði android marketplace og apple app store eru full af einhverju eins og "interactive wallpaper", "heimskulegt rss feed pakkað inn og selt á $0.99" etc.

Btw. sammála öllu hinu. Þú færð náttúrulega aldrei nýjan síma á sama kaliberi og iPhone nema þú sért á ~100k í dag á Íslandi.




Leviathan
spjallið.is
Póstar: 437
Skráði sig: Mán 20. Júl 2009 04:25
Reputation: 2
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf Leviathan » Fim 27. Jan 2011 00:05

Er 150.000 ekki bara séríslensk geðveiki?


AMD PHENOM II X4 955 @ 3.52GHz - Tacens Gelus III Pro - ASRock M3A770DE - 4GB DDR3 (Dual Channel) - ATI Radeon HD5770 - Tacens Radix III 520W - Windows 7 Ultimate (64bit) - 2TB

Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf dori » Fim 27. Jan 2011 00:06

Leviathan skrifaði:Er 150.000 ekki bara séríslensk geðveiki?

Ódýrasti ólæsti iPhone4 sem þú færð er í Hong Kong, kostar þar 80-90k held ég. Þetta er s.s. ekkert séríslensk geðveiki, það er bara enginn sem getur boðið uppá almennilegan samning eins og þetta er úti.

edit: þetta er það sem ég hef heyrt, hef svosem ekkert skoðað þetta sjálfur þar sem ég er ekkert rosalega æstur í iPhone4...
Síðast breytt af dori á Fim 27. Jan 2011 00:09, breytt samtals 1 sinni.




dedd10
</Snillingur>
Póstar: 1062
Skráði sig: Fös 18. Des 2009 21:27
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf dedd10 » Fim 27. Jan 2011 00:08

Mætti bæta við í sambandi við skjáinn á Iphone 4 að hann kostar með ísetnginu hjá Tomco hjá Isiminn góðar 45.000kr þegar ég fréttið síðast, rándýr þessi skjár sem er svosem ekki skrítið enda einn flottasti og besti skjár sem ég hef amk séð á farsíma!

Vildi bara skjóta þessu að þar sem einhver var að tala um 50þ+ android síma ;)



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2784
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 128
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf zedro » Fim 27. Jan 2011 00:09

Leviathan skrifaði:Er 150.000 ekki bara séríslensk geðveiki?


Nei nei bara séríslenskt GENGI gjaldmiðla ](*,)


Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf Glazier » Fim 27. Jan 2011 00:10

Leviathan skrifaði:Er 150.000 ekki bara séríslensk geðveiki?

Buy.is er að selja þessa síma nánast á kostnaðar verði.. http://buy.is/product.php?id_product=1681

Sem þýðir (fyrir þá sem ekki vita) að buy.is kaupir símann úti, flytur hann inn og borgar öll gjöld af símanum og þá er heildar verðið komið upp í ca. 130-135 þús. og svo bæta þeir 2-3 þúsund köllum við.


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3849
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf Tiger » Fim 27. Jan 2011 00:14

Færð aldrei sanngjarna kosningu hérna með alla Apple haters-ana hérna. Kjósa Droid þótt þeir hafi aldrei átt annan síma en Nokia 5110



Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf intenz » Fim 27. Jan 2011 00:15

Snuddi skrifaði:Færð aldrei sanngjarna kosningu hérna með alla Apple haters-ana hérna. Kjósa Droid þótt þeir hafi aldrei átt annan síma en Nokia 5110

Ekki vera bitur :megasmile


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3849
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf Tiger » Fim 27. Jan 2011 00:23

intenz skrifaði:
Snuddi skrifaði:Færð aldrei sanngjarna kosningu hérna með alla Apple haters-ana hérna. Kjósa Droid þótt þeir hafi aldrei átt annan síma en Nokia 5110

Ekki vera bitur :megasmile


Raunsær heitir það, enda engin ástæða fyrir mig að vera bitur þar sem ég er ekki blindaður af barnalegum viðhorfum/fordómum. Ég vel það besta, hvort sem það kemur frá Apple, MS eða Andrési á Skólavörðustígnum :) Ég var óhræddur við að prufa iMac og líka viðurkenna að það væri ekki fyrir mig, en fyrir mitt leiti er iPhone svo lang besti sími sem ég hef komist í tær við.




jardel
Of mikill frítími
Póstar: 1763
Skráði sig: Þri 26. Jan 2010 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf jardel » Fim 27. Jan 2011 00:36

Ég hef bæði verið með Samsung Galaxy s 9000 htc hero, htc desire, iphone 3g, iphone 4, er mikill síma símadellu karl, vil taka það fram að ég hef alltaf verið hlyntari windowsinu heldur en mac, mig persónulega finnst alltaf mikid hökkt í android símunum og crash, iponinn lendir sárasjaldan í því. Ios er einfaldara en android, andoid er ekki skemmilegt til langtima finnst mér svo að ég vil biðja ykkur i guðana bænum að taka iphone fram yfir android síma ef þið eruð að leita eftir gæðum, andoid er 0 í gæðum miðað við ios.



Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3206
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Reputation: 61
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf Frost » Fim 27. Jan 2011 09:51

Ég verð að segja IOs. Ég á Ipod Touch 4G sem er að virka mjög vel fyrir mig. Ég gæti valið betur á milli þessa tveggja ef ég ætti tæki með Android.


Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf Pandemic » Fim 27. Jan 2011 09:53

jardel skrifaði:Ég hef bæði verið með Samsung Galaxy s 9000 htc hero, htc desire, iphone 3g, iphone 4, er mikill síma símadellu karl, vil taka það fram að ég hef alltaf verið hlyntari windowsinu heldur en mac, mig persónulega finnst alltaf mikid hökkt í android símunum og crash, iponinn lendir sárasjaldan í því. Ios er einfaldara en android, andoid er ekki skemmilegt til langtima finnst mér svo að ég vil biðja ykkur i guðana bænum að taka iphone fram yfir android síma ef þið eruð að leita eftir gæðum, andoid er 0 í gæðum miðað við ios.


Varst þú að nota android 1.5 eða? Ég hef aldrei lenti í crashi nema ég sé að fikta sjálfur í appinu. Allt er silky smooth og flest opnast hraðar en á sambærilegum iphone.



Skjámynd

gissur1
Geek
Póstar: 858
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 20:36
Reputation: 12
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf gissur1 » Fim 27. Jan 2011 18:41

Kannski Off-topic en hefur einhver testað þennan ?

Er að pæla í honum en vildi fá að heyra frá einhverjum á íslensku sem hefur prófað hann.
Er aðalega að spá í honum vegna þess að hann er högg og vatnsheldur og með android, sem mig langar virkilega að prófa :)


Microsoft Surface Pro 2017 [i7 - 16GB RAM - 512GB SSD] + Thinkvision P27Q

Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf intenz » Fim 27. Jan 2011 19:12

gissur1 skrifaði:Kannski Off-topic en hefur einhver prófað þennan ?

Er að pæla í honum en vildi fá að heyra frá einhverjum á íslensku sem hefur prófað hann.
Er aðalega að spá í honum vegna þess að hann er högg og vatnsheldur og með android, sem mig langar virkilega að prófa :)

Hann er með Android já en það þýðir ekki endilega eitthvað gott. Android 1.5 og 1.6 er t.d. drasl. Checkaðu á því hvaða Android er á honum.


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

gissur1
Geek
Póstar: 858
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 20:36
Reputation: 12
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf gissur1 » Fim 27. Jan 2011 19:20

intenz skrifaði:
gissur1 skrifaði:Kannski Off-topic en hefur einhver prófað þennan ?

Er að pæla í honum en vildi fá að heyra frá einhverjum á íslensku sem hefur prófað hann.
Er aðalega að spá í honum vegna þess að hann er högg og vatnsheldur og með android, sem mig langar virkilega að prófa :)

Hann er með Android já en það þýðir ekki endilega eitthvað gott. Android 1.5 og 1.6 er t.d. drasl. Checkaðu á því hvaða Android er á honum.


2,1 en það er komið út 2,2 fyrir hann svo að það væri það fyrsta sem ég gerði þegar ég tæki hann úr kassanum að uppfæra í 2,2.


Microsoft Surface Pro 2017 [i7 - 16GB RAM - 512GB SSD] + Thinkvision P27Q


wicket
FanBoy
Póstar: 778
Skráði sig: Mán 07. Sep 2009 09:30
Reputation: 75
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf wicket » Fim 27. Jan 2011 19:20

HTC Defy shippar með 2.1 og OTA uppfærsla í 2.2 kemur svo í gripinn þegar þú ert byrjaður að nota hann.

Það er þekkt vandamál með hátalarann í þessum síma, veit ekki hvort að HTC hafi lagað það eða ekki.



Skjámynd

gissur1
Geek
Póstar: 858
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 20:36
Reputation: 12
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf gissur1 » Fim 27. Jan 2011 19:23

wicket skrifaði:HTC Defy shippar með 2.1 og OTA uppfærsla í 2.2 kemur svo í gripinn þegar þú ert byrjaður að nota hann.

Það er þekkt vandamál með hátalarann í þessum síma, veit ekki hvort að HTC hafi lagað það eða ekki.


Ömm þetta er Motorola :P


Microsoft Surface Pro 2017 [i7 - 16GB RAM - 512GB SSD] + Thinkvision P27Q


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6354
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf AntiTrust » Fim 27. Jan 2011 19:49

Ég verð að viðurkenna að mér finnst Android-ið mikið hype-að. Búinn að eiga Android 2.1 síma núna í líklega tvo mánuði, og finnst stýrikerfið ekki superior nýja Symbian eða iOS nema að því leytinu til hvað það er til mikið úrval af forritum og mikið hægt að breyta. Finnst Android-ið ekki nógu stabílt, hélt fyrst að þetta væri meira símanum sjálfum að kenna frekar en OSinu en hef svo heyrt og lesið um svipuð vandamál. Forrit eru að hanga og þarf að force close-a þeim, stýrikerfið laggar of oft á mjög óþæginlegum stöðum, þegar verið er að svara, hringja, enda símtal og flr. crucial stöðum. Þetta er ekki að gerast mjög oft, en mikið oftar en ég hef vanist í symbian símum t.d.



Skjámynd

gissur1
Geek
Póstar: 858
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 20:36
Reputation: 12
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf gissur1 » Fim 27. Jan 2011 19:56

AntiTrust skrifaði:Ég verð að viðurkenna að mér finnst Android-ið mikið hype-að. Búinn að eiga Android 2.1 síma núna í líklega tvo mánuði, og finnst stýrikerfið ekki superior nýja Symbian eða iOS nema að því leytinu til hvað það er til mikið úrval af forritum og mikið hægt að breyta. Finnst Android-ið ekki nógu stabílt, hélt fyrst að þetta væri meira símanum sjálfum að kenna frekar en OSinu en hef svo heyrt og lesið um svipuð vandamál. Forrit eru að hanga og þarf að force close-a þeim, stýrikerfið laggar of oft á mjög óþæginlegum stöðum, þegar verið er að svara, hringja, enda símtal og flr. crucial stöðum. Þetta er ekki að gerast mjög oft, en mikið oftar en ég hef vanist í symbian símum t.d.


Þú ættir nú að prufa Windows Mobile þaaaað er vandræðalegt.


Microsoft Surface Pro 2017 [i7 - 16GB RAM - 512GB SSD] + Thinkvision P27Q


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6354
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf AntiTrust » Fim 27. Jan 2011 19:59

gissur1 skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Ég verð að viðurkenna að mér finnst Android-ið mikið hype-að. Búinn að eiga Android 2.1 síma núna í líklega tvo mánuði, og finnst stýrikerfið ekki superior nýja Symbian eða iOS nema að því leytinu til hvað það er til mikið úrval af forritum og mikið hægt að breyta. Finnst Android-ið ekki nógu stabílt, hélt fyrst að þetta væri meira símanum sjálfum að kenna frekar en OSinu en hef svo heyrt og lesið um svipuð vandamál. Forrit eru að hanga og þarf að force close-a þeim, stýrikerfið laggar of oft á mjög óþæginlegum stöðum, þegar verið er að svara, hringja, enda símtal og flr. crucial stöðum. Þetta er ekki að gerast mjög oft, en mikið oftar en ég hef vanist í symbian símum t.d.


Þú ættir nú að prufa Windows Mobile þaaaað er vandræðalegt.


Búinn að prufa fleiri en 10 WinMobile síma, flestir því miður hræðilegir. Hef þó ekki enn prufað almennilega W7Phone enn sem komið er.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: droid vs iphone *skoðanakönnun*

Pósturaf dori » Fim 27. Jan 2011 20:02

AntiTrust skrifaði:Ég verð að viðurkenna að mér finnst Android-ið mikið hype-að. Búinn að eiga Android 2.1 síma núna í líklega tvo mánuði, og finnst stýrikerfið ekki superior nýja Symbian eða iOS nema að því leytinu til hvað það er til mikið úrval af forritum og mikið hægt að breyta. Finnst Android-ið ekki nógu stabílt, hélt fyrst að þetta væri meira símanum sjálfum að kenna frekar en OSinu en hef svo heyrt og lesið um svipuð vandamál. Forrit eru að hanga og þarf að force close-a þeim, stýrikerfið laggar of oft á mjög óþæginlegum stöðum, þegar verið er að svara, hringja, enda símtal og flr. crucial stöðum. Þetta er ekki að gerast mjög oft, en mikið oftar en ég hef vanist í symbian símum t.d.

Já, ég hef lent í því einu sinni eða tvisvar að síminn minn frjósi þegar ég er að hringja. Þá misheppnast einhvernvegin að gera símtalið (fæ ekki "conditional call forwarding" thingið eins og alltaf og það kemur enginn sónn eða neitt). Svo þegar ég ýti á end call þá lendir síminn í einhverju limbói milli þess að vera að hringja og ekki. Ég get s.s. notað allt nema ég get ekki hringt (því að hann heldur ennþá að hann sé í símtali). Virkilega furðulegt vandamál sem ég væri mjög til í að finna ástæðuna fyrir. Ef einhver hefur lent í þessu eða heyrt um hvað þetta er má sá hinn sami endilega fræða mig.

Annars þá er vissulega verið að hypa upp android (og líka iphone IMHO). Mér finnst líka vera alveg svakalegt hype í kringum snertiskjásíma, ég var miklu fljótari að skrifa með t9 á gamla e51 en ég sé framá að verða nokkurntíma á galaxy s (er samt nokkuð snöggur með þessari orðabók).