2 Myndlyklar hjá Vodafone

Skjámynd

Höfundur
Jimmy
FanBoy
Póstar: 720
Skráði sig: Fös 29. Jan 2010 21:50
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

2 Myndlyklar hjá Vodafone

Pósturaf Jimmy » Þri 25. Jan 2011 22:25

Sælir,

ég á 1 stk frænda sem er með áskrift að stöð2 og einhverjum pakka í gegnum ljósleiðarann hjá vodafone.

Nýjasta hugdettan hjá honum er að vera með 2 myndlykla, einn inní stofu og einn inní svefnherbergi.

Hann segir að það virki hjá sér að tengja þá báða beint með cat kapli og þá fær hann mynd á þá báða, en þegar hann prófar að tengja annan myndlykilinn með svona ethernet over power græjum frá Planet, þá stoppar myndlykillinn í einhverri prósentutölu í 'loading' og hann fær aldrei neina mynd.

Eru ethernetoverpower gæjarnir einfaldlega ekki að höndla bitrateið þrátt fyrir að vera 200mbps ?
Raflagnirnar hjá honum að fokka þessu upp? Alls ekkert svo gamalt hús(að ég held)

Væri geðveikt ef einhver spekingurinn kæmi með undralausn, ég nenni ekki uppá skaga að skoða þetta hjá honum :(


~

Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3120
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 454
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: 2 Myndlyklar hjá Vodafone

Pósturaf hagur » Þri 25. Jan 2011 22:41

Síminn og Vodafone selja svona ethernet over power gæja í akkúrat þessum tilgangi þannig að þeir eiga að duga fínt.

Ég myndi frekar skjóta á að raflagnirnar hjá honum séu að valda þessu.




Starman
has spoken...
Póstar: 167
Skráði sig: Þri 07. Okt 2008 01:40
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: 2 Myndlyklar hjá Vodafone

Pósturaf Starman » Þri 25. Jan 2011 22:49

hmm, sko , þegar myndlykillinn er ræstur og fær ekkert samband þ.e.a.s. nær ekki sambandi við DHCP og fær ekki úthlutað IP stillingum þá kemur upp einhver mynd á skjáinn (hvít minnir mig) þar sem stendur Amino og Opera browser og bla,bla verison. En í þessu tilviki virðist myndlykillinn fá úthlutað IP stillingum og byrjaður að downloada firmware. Mig grunar að þetta sé að stoppa/hiksta þegar myndin á svo að koma. Besta leiðin til að bilanagreina þetta er að tengja 2 tölvur á sitt hvoran endan á þessu "ethernet over powerlines" og nota
Iperf http://sourceforge.net/projects/iperf/ til að mæla raunverulega hraðann sem fæst í gegnum þetta rafmagnsdrasl.
Til að fá sem mestan hraða í gegnum svona rafmagns dót þá er best að tengja þetta beint í rafmagnsinnstungu í vegg, þ.e.a.s. ekki í fjöltengi, allar óþarfa aukatengingar draga úr hraða.



Skjámynd

Höfundur
Jimmy
FanBoy
Póstar: 720
Skráði sig: Fös 29. Jan 2010 21:50
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: 2 Myndlyklar hjá Vodafone

Pósturaf Jimmy » Þri 25. Jan 2011 22:55

Tengt beint í vegg báðum megin, lét hann tengja lappa við þetta þar sem myndlykillinn á að vera og hann sagðist vera að fá ágætis hraða, svosum ekki mest scientific test á þessu, en ég tók það gott og gilt :)

En jæja, ætli ég þurfi þá ekki bara að dröslast uppeftir og kapla hann upp.


~


Starman
has spoken...
Póstar: 167
Skráði sig: Þri 07. Okt 2008 01:40
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: 2 Myndlyklar hjá Vodafone

Pósturaf Starman » Þri 25. Jan 2011 22:57

er þetta ekki örugglega aðskilin net hjá honum þ.e.a.s. TV og Internetið ?




Starman
has spoken...
Póstar: 167
Skráði sig: Þri 07. Okt 2008 01:40
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: 2 Myndlyklar hjá Vodafone

Pósturaf Starman » Þri 25. Jan 2011 23:00

svo er líka hægt að tengja tölvu við TV-netið , spoofa mac addressuna á amino lyklinum og nota þennan playlista hér fyrir neðan í VLC.

Vista sem .m3u skrá.


#EXTM3U
#EXTINF:0,999 - Rúv+
udp://@239.109.1.47:5500
#EXTINF:0,1 - Rúv
udp://@239.109.1.1:5500
#EXTINF:0,2 - Stöð 2
udp://@239.109.2.30:5500
#EXTINF:0,5 - Stöð 2 extra
udp://@239.109.2.34:5500
#EXTINF:0,6 - Nova TV
udp://@239.109.2.36:5500
#EXTINF:0,7 - Skjár 1
udp://@239.109.1.46:5500
#EXTINF:0,9 - Stöð 2 sport
udp://@239.109.2.32:5500
#EXTINF:0,11 - Stöð 2 sport3
udp://@239.109.2.37:5500
#EXTINF:0,20 - ÍNN
udp://@239.109.2.40:5500
#EXTINF:0,21 - Ómega
udp://@239.110.2.16:5500
#EXTINF:0,22 - Discovery
udp://@239.109.2.4:5500
#EXTINF:0,29 - N4
udp://@239.109.2.13:5500
#EXTINF:0,30 - Sky News
udp://@239.110.1.2:5500
#EXTINF:0,37 - CCTV News
udp://@239.109.1.18:5500
#EXTINF:0,38 - Stöð 1
udp://@239.109.1.11:5500
#EXTINF:0,64 - Cartoon Network
udp://@239.110.2.2:5500
#EXTINF:0,70 - DR1
udp://@239.110.1.16:5500
#EXTINF:0,72 - SVT1
udp://@239.110.1.15:5500
#EXTINF:0,98 - Alþingi
udp://@239.110.2.19:5500
#EXTINF:0,121 - Bylgjan
udp://@239.109.1.21:5500
#EXTINF:0,122 - FM957
udp://@239.109.1.22:5500
#EXTINF:0,124 - Rondo
udp://@239.109.1.24:5500
#EXTINF:0,125 - Léttbylgjan
udp://@239.109.1.25:5500
#EXTINF:0,126 - Latibær
udp://@239.109.1.26:5500
#EXTINF:0,127 - BBC World Service
udp://@239.109.1.27:5500
#EXTINF:0,128 - X-ið
udp://@239.109.1.28:5500
#EXTINF:0,130 - Gullbylgjan
udp://@239.109.1.30:5500
#EXTINF:0,131 - Rás 1
udp://@239.109.1.31:5500
#EXTINF:0,132 - Rás 2
udp://@239.109.1.32:5500
#EXTINF:0,133 - Kaninn
udp://@239.109.1.33:5500
#EXTINF:0,998 - Nýtt í leigunni
udp://@239.110.2.31:5500




codec
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 342
Skráði sig: Fös 07. Ágú 2009 12:53
Reputation: 17
Staða: Ótengdur

Re: 2 Myndlyklar hjá Vodafone

Pósturaf codec » Mið 26. Jan 2011 13:21

Þetta ætti að virka hjá honum, bara passa að tengja beint í vegg. Bitrate sem er gefið upp er theoretical max, en þú færð aldrei það í raun hraða þar sem heilmikið púður fer í error correction oþh. þú færð kannski svona 30-60% , það fere mikið eftir gæðum raflagna en það ætti samt að duga.

Það var vesen hjá mér fyrst, en eftir að ég uppfærði firmware á power ethernet dótinu þá fór þetta í lag hjá mér.
Ég tengi úr telsey (ljósleiðaraboxinu) beint í switch og úr honum beint í afruglara 1 (í stofunni) og svo líka í ethernetpower thingy fyrir afruglara 2 inni í herbergi.
Er hann nokkuð með router eða eitthvað svoleiðis þarna á milli sem gæti flækst fyrir afruglaranum?
Ég lennti einu sinni í því að hann náði ekki sambandi ef routerinn var á sama neti, fékk ekki ip tölu eða eitthvað, það gekk ef ég slökkti á routernum rétt á meðan ég bootaði afruglaranum. S.s. ekki tengja í routerinn í staðin fyrir switch.