dori skrifaði:Málið er náttúrulega að fara á Búlluna og fá sér steikarborgara (eða ef maður er svangur skella í tvöfaldan, það er ekki svo dýrt) með bearnaise og sleppa grænmetinu. Þá er þetta bara nautalundir með bearnaise sem maður er að borða
Fabrikkan er allt í lagi en sá hérna sem hélt að það væri ódýrara en Búllan er aðeins að misskilja. Ég hef smakkað Morthens, Alíbaba (eða eitthvað) og Neyðarlínuna þar. Allt fínir borgarar og smá tilbreyting en ekkert sérstakir og kókið þeirra er bæði goslaust og óbragð af því.
Vitabarinn er líka æði, tvöfaldur ostborgari með beikoni eða bara beikonborgari. Það klikkar ekki.
Svo eru þessir staðir eins og Hressó, Hvíta perlan, Prikið, Vegamót etc. Það er allt fínt en oftar en ekki frekar dýrt og ekkert rosalega sérstakt. En samt fín tilbreyting frá þessum klassísku stöðum. En ég skil ekki þá sem fíla American Style í drasl, þunnt og ómerkilegt kjöt og sinnepssósa, hvað er málið? Þetta bragðast bara eins og sóma samloka.
Tilboð Aldarinnar á Búllunni = 1290kr
Fabrikkuborgari m/frönskum og gos er 1.490
Finnst hamborgararnir mun betur útilátnir en borgararnir á tomma, enda er að öllum líkindum meiri matur í hamborgurunum á Fabrikkunni en tomma allavega er enginn að fara segja mér þegar þú tekur litla tommaborgarann og setur hliðiná fabrikku-burger að þetta sé sama magn af mat. Ég er alveg huge fabrikku-fan einmitt útaf hvað þetta er mikil tilbreyting og hvað ég bara alltaf fengið, ásamt þeim sem ég hef komið með, alveg fáránlega góða hamborgara. En með gosið segi ég bara -wtf- aldrei lent í því í þau (alltöf) mörgu skipti sem ég hef farið þangað, eða heyrt um að gosið sé eitthvað skrýtið þarna. Hlýtur að vera þú hafir bara akkúrat lent á glasi þegar kúturinn hafi verið að klárast. Eina slæma sem ég hef um fabrikkuna að segja er að stundum gleyma þau að taka hjá manni pöntun og maður þarf að kalla á einhvern til að fá að láta taka niður pöntunina sína hefur gerst fyrir mig oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.
En eins og hefur komið fram er Morthens, Húsdýragarðurinn, Fabrikkuborgari m/ beikoni, Lamborgarinn og Forsetinn allir saman mjög góðir. Fabrikkusósan finnst mér snilld, og Lamborgarinn kemur alveg virkilega á óvart hversu góður hann er.
American style er ég hinsvegar sammála um sé drasl, ömurlegt kjöt og orðið of dýrt. Vitabar er eins og þú segir líka það sem var eitt sinn "falin perla" en að sjálfsögðu spurst út hversu gott þetta er. Þar færðu alvöru hamborgara.