Hvort sjónvarpið ætti ég að kaupa...??? :S


Höfundur
Jod
Nýliði
Póstar: 1
Skráði sig: Mið 09. Jún 2010 23:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Hvort sjónvarpið ætti ég að kaupa...??? :S

Pósturaf Jod » Mið 09. Jún 2010 23:37

Er að fara kaupa mér sjónvarp.. Miklum vandræðum með að velja á milli þessara tveggja.. Plúsar og mínusar við hvorutveggja..

Langar endilega að fá ykkar álit.. Hvort tækið mælið þið með og þá hversvegna helst..??

http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=TXP42S20

http://sm.is/index.php?sida=vara&vara=42PFL5405H

Með þökk
Hr. óákveðinn



Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1175
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 165
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Hvort sjónvarpið ætti ég að kaupa...??? :S

Pósturaf g0tlife » Mið 09. Jún 2010 23:42

klárlega philips tækið en fyrst að þú ert að fara í þessa upphæð þú mundi ég taka þetta frekar http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... oryid=1705


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold


Máni Snær
has spoken...
Póstar: 160
Skráði sig: Mið 10. Des 2008 17:32
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hvort sjónvarpið ætti ég að kaupa...??? :S

Pósturaf Máni Snær » Fim 10. Jún 2010 01:13




Skjámynd

mind
1+1=10
Póstar: 1108
Skráði sig: Fim 12. Des 2002 09:21
Reputation: 29
Staða: Ótengdur

Re: Hvort sjónvarpið ætti ég að kaupa...??? :S

Pósturaf mind » Fim 10. Jún 2010 09:28

Ef þau væru á sama verðinu bæði myndi ég segja Philips þar sem ég er hrifnari af LCD og Philips fá alltaf verðlaunin í þeim.

Á hinn mátann er Panasonic á tilboði og 50þús ódýrara sem er hellings peningur og Panasonic fá alltaf verðlaunin í plasma.

Ég held ég myndi samt sem áður velja LCD vegna útlits og margmiðlunarspilarans.



Skjámynd

ZoRzEr
/dev/null
Póstar: 1404
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
Reputation: 42
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvort sjónvarpið ætti ég að kaupa...??? :S

Pósturaf ZoRzEr » Fim 10. Jún 2010 10:05

Phillips = Pure sex í útliti.

Panasonic plasminn myndi ég samt taka. Sjónvörpin frá Panasonic eru búin að vera fá glommu af verðlaunum, sérstaklega plasma sjónvörpin.

Í sumar fer bróðir minn, sem vinnur fyrir Panasonic ltd í þýskalandi að flytja Panasonic sjónvörp inn beint frá framleiðanda sökum eftirspurnar. Þá ætti úrvalið að aukast til muna.


13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini

Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1577
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: Hvort sjónvarpið ætti ég að kaupa...??? :S

Pósturaf Halli25 » Fös 11. Jún 2010 17:26

Sjónvarpsmiðstöðin er umboðsaðili Panasonic á Íslandi og er að flytja inn beint milliliðalaust frá þeim til Íslands, það er enginn annar að því.
Úrvalið líka ágætt komnir með 3D tæki til landsins á undan öllum öðrum og eru með flestar línurnar frá þeim í plasma, bendi sérstaklega á G20 línuna, klikkuð myndgæði fyrir aurinn.


Starfsmaður @ IOD


Mr. President
Nýliði
Póstar: 14
Skráði sig: Fim 01. Apr 2010 20:13
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hvort sjónvarpið ætti ég að kaupa...??? :S

Pósturaf Mr. President » Þri 22. Jún 2010 15:43

Ég myndi taka Panasonic plasma tækið án þess að hika. Og þá miða ég við öll önnur sjónvörp á landinu í þessum verðflokki. 200þús fyrir þetta tæki er frábært verð, og ég myndi taka það sjálfur ef ég hefði ekki keypt G20 módelið fyrir nokkru (og ég gæti ekki verið ánægðari með). S20 er svo til sama tækið fyrir utan nokkra nýrri fítusa í G20 (þynnra, THX mode, auka HDMI port, og þess háttar).

LCD vs. plasma er auðvitað mikið smekksatriði, en eftir tvö LCD tæki er ég feginn að hafa skipt. Helsti gallinn við plasma er möguleikinn á svokölluðu 'burn-in' ef sama myndin er of lengi á skjánum, en ég hef spilað tölvuleiki í fleiri klukkutíma á tækinu mínu án þess að verða var við það. Á hinn bóginn höndlar plasma svarta liti mun betur en LCD og sömuleiðis alla hreyfingu á skjánum (svokallað 'motion blur' er ekki hægt að losna við á LCD).

Eina mögulega ástæðan sem ég sé til að taka eitthvert af þessum LCD tækjum framyfir plasmann er ef þú ætlar að tengja Windows tölvu við tækið og ert hræddur við burn-in. En menn segja að það sé ekki issjú lengur í nútíma plösmum, og ég verð ekki var við það.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16452
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2086
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Hvort sjónvarpið ætti ég að kaupa...??? :S

Pósturaf GuðjónR » Þri 22. Jún 2010 16:18



Sammála.




Matti21
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 304
Skráði sig: Fim 01. Nóv 2007 19:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Hvort sjónvarpið ætti ég að kaupa...??? :S

Pósturaf Matti21 » Þri 22. Jún 2010 16:39

faraldur skrifaði:Sjónvarpsmiðstöðin er umboðsaðili Panasonic á Íslandi og er að flytja inn beint milliliðalaust frá þeim til Íslands, það er enginn annar að því.
Úrvalið líka ágætt komnir með 3D tæki til landsins á undan öllum öðrum og eru með flestar línurnar frá þeim í plasma, bendi sérstaklega á G20 línuna, klikkuð myndgæði fyrir aurinn.

Pínu off topic en langar að spurja fólk sem hefur séð þetta 3D tæki hjá sjónvarpsmiðstöðinni hvort því fannst þetta virkilega flott? Þetta bætir alveg svakalegri dýpt í myndina og virkaði mjög vel, fannst mér, í kjurrum skotum. En um leið og eitthvað fór að hreyfast hökti myndin alveg út í drasl. Eyðileggur þetta algjörlega. Á ekki að fara að senda út boltan og eitthvað í þessu? Get ekki ímyndað mér að einhver vilji horfa á það...
Það eru margir sem tala um að 24 rammar á sekúndu (standardinn fyrir hollywood bíómyndir) séu bara ekki nóg fyrir þrívíddina og ég verð að vera algjörlega sammála því. Allavega miðað við það sem ég sá hjá SM.Tók svolítið eftir þessu á Avatar líka en þetta truflar mann minna á stóru tjaldi.
Eru fleiri sem tóku eftir þessu?

Annars til að svara korkahöfundi mundi ég taka annaðhvort Panasonic tækið eða Philips 8404 sem einhver hérna fyrir ofan mig var búinn að benda á.


-Q6600/Thermalright Ultra 120 Extreme/Gigabyte P35-DS3R/4GB Corsair 800Mhz/Nvidia 8600GTS/Corsair HX620/Coolermaster CM690/BenQ G2400W --Hackintosh!--
-Macbook Pro 13" -2010