Ég hef sent inn þráð um þetta áður en fékk í rauninni engin nytsamlega svör, svo ég spyr aftur.
Málið er, að í hvert skipti sem einhver byrjar að uploada frá mér á DC hubbum, þá restartar tölvan sér. Þetta gerist líka á lönum þegar einhver fer að browsa það sem ég er með í share. Ég hef reynt að installa nýjum driver fyrir netkortið en það breytti engu. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þetta er pirrandi . Hafiði einhverja hugmynd um hvernig ég get lagað þetta, án þess að formatta?
kveðja
HalliHg
Og ef þið getið ekki hjálpað þá væri ágætt ef þið mynduð sleppa því að svara, svo ég fái ekki heilan aragrúa af emailum
Tölvan restartar sér við upload
Ég hef oft prófað oDC og önnur forrit, það breytti engu, enda held ég að þetta tengist dc forritinu ekki á neinn hátt, þe. það sé ekki blóraböggullinn. Ég held að ég sé ekki einu sinni með firmwire á netkortinu mínu, og ég veit ekkert hvert skal leita til þess að uppfæra biosinn minn.
count von count
Eftir mikið fikt í support center og því öllu held ég að ég hafi náð að laga þetta. Ég fann upplýsingar um þennan error, hér. Þarna stendur að tölvan restarti sér ef notandi er að nota Windows XP með sausb.sys driver fyrir Universal Reader frá Lexar Media, sem er eldri en version 4.6. Ég hef aldrei heyrt um þennan Universal Reader, en þetta er víst einhvers konar USB memory dót. Ég googglaði eftir version 4.6 af þessum driver og fann einn á heimasíðu fyrirtækisins hérna. Ég downloadaði Lexar USB Combo Reader 4.6.zip drivernum, og installaði. Eftir reboot fór ég beint á Ásgarð og viti menn, tveir hófu að hlaða lögum frá mér og ekkert gerðist. Vonandi er þetta horfið fyrir fullt og allt, en þetta er samt ótrúlega skrýtið þar sem að ég hef aldrei heyrt um þennan universal reader og hvað þá þetta Lexar Media fyrirtæki. Ætli þessi 4.6 version sausb.sys fæll hafi ekki lagað þetta. Takk fyrir hjálpina allir.
count von count