Vandamál með drif og suð


Höfundur
Assgear
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mán 08. Jún 2009 20:33
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vandamál með drif og suð

Pósturaf Assgear » Lau 20. Mar 2010 00:00

Sælir Vaktarar.

Ég er hér í smá veseni með aldraða borðtölvu (um 6 ára held ég) sem ég nota nú bara við nám, hlusta á tónlist, horfa á video, og surfa um Netið; ekkert high-tech dæmi hér á ferðinni. Það breytir því þó ekki að það er einhver gremlin inní henni.

Fyrst er það CD/DVD drifið. Í hvers skipti sem ég set disk í þá restartar tölvan sér um leið og aftur og aftur, kemst aldrei lengra en BIOS setupið. En um leið og ég tek diskinn aftur út þá startar hún sér alveg vandræðalaust.

Í öðru lagi er svona high-pitch suð í turninum þegar tölvan er mikið að hugsa, t.d. þegar hún ræsir sig, þegar ég horfi á video á netinu, eða ef það er mikið af svona flash auglýsingum á heimasíðum. Ég get ekki alveg staðsett hvaðan suðið kemur en ef suðið hefur verið lengi til staðar þá finn ég fyrir nokkrum hita á kassanum þar sem spennugjafinn er, en samt allt í lagi með viftuna á honum.

Svo veit ég ekki hvort það tengist þessu en CPU viftan er alltaf á fullu, hún hægir aldrei á sér.

Ég er því að velta fyrir mér hvort að þessi atriði séu hluti af einu stóru vandamáli eða hvað? Er þetta spennugjafinn og/eða drifið? Gæti skjákortið tengst þessu eitthvað?

Ég tel mig nú ekki vera mikinn tölvukall en ef þið viljið betri lýsingar þá hafið þið bara samband hér. Endilega póstið hugmyndum ykkar, það væri afar vel þegið.



Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3206
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Reputation: 61
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf Frost » Lau 20. Mar 2010 00:14

Downloadaðu hardware monitor. Taktu nokkur screens og póstaðu hér. Gæti hjálpað okkur meira að greina vandann :)


Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól


ingibje
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 355
Skráði sig: Mán 15. Jún 2009 16:52
Reputation: 13
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf ingibje » Lau 20. Mar 2010 00:14

er ekki líklega aflgjafinn bara ekki nógu kraftmikill eða bara ónýtur :l

svo geturu stillt í biosnum bara örgjafaviftunna, ég laet mína snúast held ég 20% minimum með target á 40°C minnir mig.

með hljóðið þá myndi ég líka skoða harðadiskinn, þeir eiga til í að gefa frá sér mikil laeti með aldrinum. fyrir utan hann eru bara vifturnar sem geta skapað hljóð undir venjulegum aðstaeðum að minni bestu vitund :)


i7 2600k - Asus P8P67 Pro - Corsair 1600MHz 8GB - GTX 480 - Corsair HX 850w - Corsair 60gb ssd - Asus VG236H 120Hz 3D


Höfundur
Assgear
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mán 08. Jún 2009 20:33
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf Assgear » Lau 20. Mar 2010 14:07

Hérna er eitt screen með hardware monitor ef það gefur einhverja hugmynd.

Mynd

Ég gleymdi reyndar að minnast einnig á í gær að ég hef ég líka verið í vandræðum með skjákortið. Það gamla gaf sig um daginn og fékk því eitt gamalt hjá kunningja mínum, Nvidia Geforce 7600 GS. Ég henti hinu gamla út, notaði Driver Sweeper til að vera alveg öruggur, og installaði hinu með hjálp Windows. Hins vegar þegar ef ég ræsi tölvuna þá þarf ég að treysta á algjöra heppni ef ég ætla að geta notað hana. Það er mismunandi hvernig það birtist: stundum fer ekki tölvan ekki lengra en BIOS setupið og stoppar þar, sé að það er bara backlight á skjánum og ekkert annað. Stundum frýs tölvan eftir að desktopið kemur upp og kemur þá static mynd sem er mismunandi í útliti, stundum alveg hvítt með svörtum punktum og alls konar önnur form. Í öllum tilvikum verð ég að slökkva á henni með svarta power takkanum aftan á turninum. Þetta process þarf ég að margendurtaka þar til tölvan nær að starta sér eðlilega, og þá get ég notað hana vandræðalaust. Það eru engir marglitaðir pixelar eða önnur álika visual vandræði.

Ég er búinn að taka skjákortið út og setja það aftur í, búinn að update-a driverinn og einnig revert-a yfir í eldri drivera, en það virðist ekki gera neitt. Nú vil ég helst varla slökkva á tölvunni svo ég geti nú örugglega notað hana.

Hvað harða diskinn varðar þá þá heyri ég að suðið kemur ekki úr honum, svo mikið veit ég. Ég get ekki alveg staðsett það en mér heyrist það vera hjá viftunni eða skjákortinu, einhvers staðar þar.

Höfum það líka á hreinu að ég er búinn að vírusleita hana og hún finnur ekkert grunsamlegt.




Godriel
spjallið.is
Póstar: 400
Skráði sig: Mið 03. Jún 2009 22:16
Reputation: 0
Staðsetning: Reyðarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf Godriel » Lau 20. Mar 2010 14:16

ertu búinn að setja biosinn á default og suðið er líklega frá örgjörvanum, prufaðu að setja nýtt kælikrem á hann, og ef það er innbyggt skjákort í móðurborðinu, getur prufað að taka skjákortið þitt úr og ath. hvort að þetta suð sé þaðan, en held samt að þetta sé bara örgjörvinn, ef þetta er virkilega high pitch suð


Godriel has spoken

Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4339
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 392
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf chaplin » Lau 20. Mar 2010 17:38

Síðast þegar ég man er suð oftast frá þéttum á móðurborði eða skjákorti, kemur td. high pitch suð þegar ég set 5770 í mjög þungar álagsprufanir, en það er fullkomlega eðilegt, maður á þó ekki að heyra það ef kassinn er lokaður, en hvað er að maxxa 128°C? #-o Grunar að það sé skákortið þitt þar sem diode er oftast ca. 10°c heitari en core. Ef svo er, er skjákortið þitt boiiling!

Taktu það úr, rykhreinsaðu það með þéttu loftu (EKKI RYKSUGU), skiptu um kælikrem og þá ætti hitinn að lækka um helling. Veit að 7-línan varð heit en 128°C er out of the roof.



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf Pandemic » Lau 20. Mar 2010 17:49

daanielin skrifaði:Síðast þegar ég man er suð oftast frá þéttum á móðurborði eða skjákorti, kemur td. high pitch suð þegar ég set 5770 í mjög þungar álagsprufanir, en það er fullkomlega eðilegt, maður á þó ekki að heyra það ef kassinn er lokaður, en hvað er að maxxa 128°C? #-o Grunar að það sé skákortið þitt þar sem diode er oftast ca. 10°c heitari en core. Ef svo er, er skjákortið þitt boiiling!

Taktu það úr, rykhreinsaðu það með þéttu loftu (EKKI RYKSUGU), skiptu um kælikrem og þá ætti hitinn að lækka um helling. Veit að 7-línan varð heit en 128°C er out of the roof.


Daníel þú sérð væntanlega að þetta er sensorinn á móðurborðinu? Annars er ekkert óeðlilegt við þessi hitastig hjá honum. Gæti líka verið gallaður sensor sem er að gefa þetta Diode1 hitastig, sýnist samkvæmt þessu að þetta sé ambient temp díóða t.d samkvæmt documentinu á linux kernelinu.



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4339
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 392
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf chaplin » Lau 20. Mar 2010 21:26

Pandemic skrifaði:Daníel þú sérð væntanlega að þetta er sensorinn á móðurborðinu? Annars er ekkert óeðlilegt við þessi hitastig hjá honum. Gæti líka verið gallaður sensor sem er að gefa þetta Diode1 hitastig, sýnist samkvæmt þessu að þetta sé ambient temp díóða t.d samkvæmt documentinu á linux kernelinu.

Uppls. frá HWMonitor geta verið mjög villandi, td. ef þú oppnar það á sama tíma og CPUZ gæturu fengið eintóma vitleysu. En þá er þetta gallaður sensor, enginn búnaður ætti að ná 128°c.. gætiru nokkuð vitnað í þetta document frá linux kernelinum? Alltaf gaman að læra nýja hluti.



Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3206
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Reputation: 61
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf Frost » Sun 21. Mar 2010 01:14

Ég er virkilega forvitinn að fá að vita hvað þetta er sem var að steikjast á 128°c :8) Ef að þetta suð kemur frá harða disknum geturðu örugglega runnað Diagnostic á disknum í gegnum Hirens.


Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól

Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf Pandemic » Sun 21. Mar 2010 02:39





Höfundur
Assgear
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mán 08. Jún 2009 20:33
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf Assgear » Mið 24. Mar 2010 16:56

Jæja, þá er maðir búinn að fitla eitthvað í tölvunni eftir góðar ábendingar ykkar sem ég þakka kærlega fyrir.

Ég er búinn að rykblása hana alla, búinn að setja nýtt kælikrem á CPU-inn og búinn að reseta BIOS með því að taka 3V batteríið úr og setja aftur í. Núna vinnur tölvan án þess að viftan fari á full blast, þetta high-pitch scratching suð er farið, og ekkert vesen lengur með skjákortið (klöppum fyrir því =D>).

Hins vegar er ég enn í vandræðum með CD/DVD drifin. Sem sagt annað drifið er klassískt CD/DVD á meðan hitt er CD/DVD brennari. Ég get sett disk í það fyrrnefnda en ef ég ætla að spila af honum eða installa eða hvað eina þá restartar hún sér einu sinni en alveg eðlilega. Hins vegar er hið síðarnefnda meira vandamál þar sem hann restartar um leið og drifið les disk og festist í restart loopi, fæ ekki einu sinni BIOS upp á skjáinn og hættir ekki fer en ég næ disknum út.

Ég er búinn að koma í veg fyrir Autorun og búinn að tékka á öllum snúrum. Hallast að því að spennugjafinn er eitthvað að gefa sig kannski, heyri alltaf smá neista hljóð þegar tölvan fer í þetta restart loop vegna brennardrifisins eða er það kannski eðlilegt? Eru til einhver forrit sem geta tékkað á virkni spennugjafans eða álíka?




Godriel
spjallið.is
Póstar: 400
Skráði sig: Mið 03. Jún 2009 22:16
Reputation: 0
Staðsetning: Reyðarfjörður
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf Godriel » Fim 25. Mar 2010 11:50

gott að heyra ;)


Godriel has spoken

Skjámynd

Oak
Bara að hanga
Póstar: 1590
Skráði sig: Fim 15. Okt 2009 16:51
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf Oak » Fim 25. Mar 2010 11:59

ertu búinn að prufa að aftengja annað drifið og hafa bara eitt í gangi ?


i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64


Höfundur
Assgear
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mán 08. Jún 2009 20:33
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vandamál með drif og suð

Pósturaf Assgear » Fim 25. Mar 2010 13:06

Oak skrifaði:ertu búinn að prufa að aftengja annað drifið og hafa bara eitt í gangi ?


Jebb. Gerði það fyrir bæði drifin en það breytti engu.