lukkuláki skrifaði:myndiru kaupa af mér bíl ef auglýsingin væri svona
blár bíll til sölu
keirður eitthvað
samt nánast nýr
á númerum
engin ábyrgð
2009 árgerð
4 milljónir í staðgreiðslu
Ekki alveg sambærilegt sérstaklega vegna verðsins.
Flestir hafa efni á 20.000 kr öðru máli gegnir um 4.000.000 nema auðvitað að þær séu fengnar að láni í formi kúluláns eða komi til afskriftar.
ekki snúa útúr, verðið er ekki málið hjérna, ég er að tala um að fá ekki nafn, enda átti þetta að vera létt grín
galant es
ónýtt sölusvæði?
af því að menn benda á eða spyrja án þess að vera bannaðir eins og til dæmis á l2c? það er orðið eitt versta svæði á landinu til að selja og kaupa því menn geta svindlað svoleiðis hægri vinstri á fólki þar og ef einhver bendir á of hátt verðlag eða biður um meiri upplýsingar þá færðu aðvaranair og ert jafnvel bannaður.
þetta er klárlega besta sölusvæði landsins og ef menn hafa ekkert að fela þá geta þeir gert almennilega auglýsingu og sett eðlilega verðlagningu sem er sanngjörn fyrir báða aðila, þeir sem verða brjálaðir ef eitthvað er sett útá hafa eitthvað að fela og vonandi verður það til þess að einhver verður ekki svikinn af kaupum hjérna.
en gangi þér vel með söluna, ég er ekki að setja neitt útá eða drulla yfir þig, ég bara nennti ekki að gera þráð til að svara þessu
ég myndi sjálfur án efa kaupa af þér flakkara en peningar eru ekki sérlega miklir núna og maður neiðist víst til að forgangsraða