hagur skrifaði:Sæll,
Ég er tengdur í gegnum router, þ.e ekki beint í Telsey boxið. Ert þú með router á milli? Ef svo er, hvaða router? Fyrstu routerarnir sem Vodafone lét fólk hafa toppuðu í 20mbit/s hraða. Zyxel NBG420N og svo þessir nýju Bewan routerar komu svo í staðinn og þeir fara leikandi létt með 50mbit/s.
Ég er sjálfur með Zyxel NBG420N.
Ég er með router. Var einmitt búin að heyra af þessu með through-putið og er komin með þennan Bewan router en það breytti engu í mínu tilfelli. Hef líka prófað að tengja beint í telsey boxið og það er sama saga. Hlítur að vera eitthvað í ljósleiðaratenginguni hjá mér.