lélegt batterí í HP?
lélegt batterí í HP?
Er eðlilegt að batteri í tveggja ára HP sé orðið ónýtt? Er hægt að hressa upp á það? Verð að veðsetja hægri handlegg og fót til að kaupa nýtt Þeir segja bara hjá Opnum kerfum að það sé bara 1 árs ábyrgð á batteríum því það sé selt "sér" þá sagði ég það kom hvergi framm þegar ég keypti tölvuna, þá var bara vísað í að engin hefur farið í mál! Er aðeins pirruð yfir þessu. Kannist þið við eitthvað svipað?
-
- Internetsérfræðingur
- Póstar: 6799
- Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
- Reputation: 940
- Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: lélegt batterí í HP?
Nokkuð viss um að það sé 1 árs ábyrgð á rafhlöðum hjá öllum. Tvö ár er ekki svo langur tími, en telst þó eðlilegt ef tölvan hefur mikið verið að vinna á batterýinu(ekki oft tengd við nema til að hlaða).
I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things
Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB
Ryzen 3600X 2070S 16GB
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: lélegt batterí í HP?
Heimskuleg svör hjá þeim. Rafhlaða er rekstrarvara og því einungis árs ábyrgð, og hefur alltaf verið þannig. Einnig er alveg eðlilegt að rafhlaðan sé búin, sérstaklega ef hún hefur ekki verið meðhöndluð rétt hingað til (keyrð niður, alltaf í sambandi m.a.).
Re: lélegt batterí í HP?
batterí eru rosalega dýr hérna heima...ég myndi kaupa það af ebay. ég er með 2. ára fartölvu sem batteríið er farið að endast max 1,5 tíma, þannig að ég keypti mér nýtt að utan fyrir 8-10 þús.
i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64
Re: lélegt batterí í HP?
Jæja þakka fyrir svörin en finnst að ég hafi séð einhversstaðar að batterí væru með tveggja ára ábyrgð t.d. í farsímum.
Takk fyrir ábendinguna panta þá bara í gegnum netið.
Takk fyrir ábendinguna panta þá bara í gegnum netið.
-
- BMW
- Póstar: 2511
- Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
- Reputation: 14
- Staðsetning: Mosó
- Staða: Ótengdur
Re: lélegt batterí í HP?
Talaðu við Friðjón hjá http://www.buy.is
Get næstum lofað þér því að hann geti reddað þér batteríinu á mun lægra verði en það er á hjá Opnum Kerfum
Get næstum lofað þér því að hann geti reddað þér batteríinu á mun lægra verði en það er á hjá Opnum Kerfum
Tölvan mín er ekki lengur töff.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2859
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Reputation: 217
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
Re: lélegt batterí í HP?
Þessi batterí fást á ebay fyrir slikk og borgar 10% toll plús vsk.
ég er búinn að kaupa 3 þar.
ég er búinn að kaupa 3 þar.
Re: lélegt batterí í HP?
Ég var að skoða batterí á Amazon og Smart parts. Annað batteríið er 6600mAh og enn annað er 4400ma
hvað þýðir það?
hvað þýðir það?
-
- spjallið.is
- Póstar: 449
- Skráði sig: Fös 11. Okt 2002 01:22
- Reputation: 3
- Staðsetning: Garðabær
- Staða: Ótengdur
Re: lélegt batterí í HP?
Þegar þú segir ónýtt ertu þá að tala um að batteríið endist ekkert? Hefuru alltaf verið með tölvuna í sambandi nánast?
Getur prófað að fullhlaða tölvuna, og taka svo úr sambandi og láta hana nánast klárast, Fullhlaða hana svo aftur og láta hana klárast aftur. Endurtaka þetta ferli svona svona .. 10-20 sinnum, og þá eru ágætis líkur á því að batteríið sé farið að endast töluvert betur en áður en þú gerðir þetta, en verður aldrei eins og alveg nýtt

- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 956
- Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
- Reputation: 14
- Staðsetning: Babýlon norðursins
- Staða: Ótengdur
Re: lélegt batterí í HP?
Glæta skrifaði:Ég var að skoða batterí á Amazon og Smart parts. Annað batteríið er 6600mAh og enn annað er 4400ma
hvað þýðir það?
þýðir Milliamperstundir.. á mannamáli í stuttu máli er það eiginlega því hærri sem talan er því lengur endist batteríið
Re: lélegt batterí í HP?
Frábært föndra við að hressa bateríið. Já mér datt í hug að þetta hefði með endinguna að gera en gott að fá nafn á þetta. Þakka ykkur kærlega fyrir
Re: lélegt batterí í HP?
Blackened skrifaði:Glæta skrifaði:Ég var að skoða batterí á Amazon og Smart parts. Annað batteríið er 6600mAh og enn annað er 4400ma
hvað þýðir það?
þýðir Milliamperstundir.. á mannamáli í stuttu máli er það eiginlega því hærri sem talan er því lengur endist batteríið
samt ekki einhver þumalputtaregla en yfirleitt er það nú þannig
i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3760
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Reputation: 123
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: lélegt batterí í HP?
Hef nú séð það verra en 2 ár, en það er ásættanlegur endingartími á rafhlöðu. Ég er að ná minni í 3 ár, hún heldur hleðslu í svona 20 min.
-
- spjallið.is
- Póstar: 449
- Skráði sig: Fös 11. Okt 2002 01:22
- Reputation: 3
- Staðsetning: Garðabær
- Staða: Ótengdur
Re: lélegt batterí í HP?
Endingin á batteríunum fer í rusl útaf því að tölvan er yfirleitt í sambandi, eða er tekin kannski úr og það fara 5-20% af batterínu og svo stungið aftur í samband, það minnkar getuna á þeim.
Re: lélegt batterí í HP?
Some0ne skrifaði:Endingin á batteríunum fer í rusl útaf því að tölvan er yfirleitt í sambandi, eða er tekin kannski úr og það fara 5-20% af batterínu og svo stungið aftur í samband, það minnkar getuna á þeim.
þegar að tölvan er í sambandi þá er gott að taka fullhlaðna rafhlöðu úr á meðan
i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3760
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Reputation: 123
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: lélegt batterí í HP?
Oak skrifaði:Some0ne skrifaði:Endingin á batteríunum fer í rusl útaf því að tölvan er yfirleitt í sambandi, eða er tekin kannski úr og það fara 5-20% af batterínu og svo stungið aftur í samband, það minnkar getuna á þeim.
þegar að tölvan er í sambandi þá er gott að taka fullhlaðna rafhlöðu úr á meðan
Virkilega heimskulegt að fullhlaða hana og taka hana svo úr. Með þessari ráðleggingu taparu miklum líftíma. Þegar rafhlaða er geymd er regla að hafa hana 40-60% hlaðna.
Re: lélegt batterí í HP?
ég á tæplega 3 ára hp tölvu, síðustu 3 skipti sem ég notaði batteríið drap tölvan bara allt í einu ár sér, veit ekki alveg afhverju en tengdist eitthvað batteríinu, á eftir að prófa það betur, hef ekki notað batteríið lengi er bara alltaf með hana í sambandi
Re: lélegt batterí í HP?
Pandemic skrifaði:Oak skrifaði:Some0ne skrifaði:Endingin á batteríunum fer í rusl útaf því að tölvan er yfirleitt í sambandi, eða er tekin kannski úr og það fara 5-20% af batterínu og svo stungið aftur í samband, það minnkar getuna á þeim.
þegar að tölvan er í sambandi þá er gott að taka fullhlaðna rafhlöðu úr á meðan
Virkilega heimskulegt að fullhlaða hana og taka hana svo úr. Með þessari ráðleggingu taparu miklum líftíma. Þegar rafhlaða er geymd er regla að hafa hana 40-60% hlaðna.
það hef ég nú aldrei heyrt en oki.
t.d. ef að þú ætlar að geyma hana uppí skáp í einhvern tíma þá var mér sagt að fullhlaða rafhlöðuna og gera það svo á sex mánaða millibili svo að rafhlaðan falli ekki og skemmist. en annars hefur maður nú heyrt ýmislegt í sambandi við rafhlöður.
hver rafhlaða hefur ákveðið margar hleðslur og ætti þá ekki að vera best að fullhlaða í hvert skipti og reyna að tæma eins mikið.
http://www.ehow.com/way_5378888_laptop- ... -tips.html
annars ætla ég ekkert að rökræða þetta neitt frekar. þetta er bara það sem ég held og hef alltaf gert við allar mínar rafhlöður og endast þær bara mjög vel.
i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3760
- Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
- Reputation: 123
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: lélegt batterí í HP?
Ókostur Lithium rafhlöðunnar er sú að með tímanum þá mynda þær innra viðnám og hleðslan fer minnkandi. Í 40%-60% hleðslu erum við að tala um 10-15% missi í hleðslugetu rafhlöðunnar. Þegar við geymum rafhlöðuna fullhlaðna og fyrir utan þetta bil hækkar þessi prósentu tala í 20-45% á ári.
Við erum að tala um samkvæmt Batteryuniversity.com getur rafhlaða misst allt af 40% hleðslugetu sinni eftir aðeins 3 mánuði ef tölvan er í sambandi allan daginn og þung vinnsla í gangi.
Allar þessar tölur fara minnkandi ef rafhlaðan er ekki of heit. Því er best að geyma hana á köldum stað og jafnvel í ískáp ef hún er tekin úr í lengri tíma.
Það er samt ekki raunhæft að halda rafhlöðu í 25°C gráðum allan daginn á meðan hún er í notkun þannig líftími getur auðvitað verið styttri hvað varðar fartölvur sem hitna mikið og eru með íhluti sem hitna mikið nálægt rafhlöðunni.
Það er betra að hlaða tölvuna af og til þótt það sé ekki nema um 20-30%. Reyna að gera sem minnst af því að láta tölvuna deyja út eða "draina" raflhöðuna, því það fer ekki vel með þær. Það hefur verið föst hugmynd í kollinum á mörgum að það eigi að hlaða rafhlöður upp í topp og láta tölvuna síðan alveg klára rafhlöðuna til að fá sem bestu endinguna en þetta á ekki við í heimi Lithium-ion rafhlaðana.
Svona til að súmma þetta upp
Ekki vera með tölvuna í hleðslu allan daginn
Notaðu raflhöðuna(þær eru eins og hundar, það þarf að sinna þessu)
Reyndu að komast hjá því að tæma hana alveg. Frekar hlaða hana 20-30% ef það er möguleiki.
Ef þú ætlar að vera með fartölvuna tengda við rafmagn í lengri tíma, taktu þá rafhlöðuna úr eftir 40-60% hleðslu og skelltu henni á kaldan stað.
Loftaðu vel um fartölvuna þína því það eru heitir tölvuíhlutir sem hita rafhlöðuna upp og minnka líftíma hennar.
Það er enginn þörf fyrir það að hlaða fartölvur í lengri tíma þegar þær eru keyptar. Þetta átti við um Nickel rafhlöður en nú gilda önnur lögmál.
Heimildir: Batteryuniversity.com, wikipedia.org, eigin reynsla.

Þegar ég fer að skoða svörin þá kannast ég við flest af þessu, lét tölvuna vera í sambandi með batteríinu i, notaði ekki tölvuna í langan tíma en lét batteríið vera í og var einnmitt að "dreina" reglulega batteríið, svo þetta eru "mannleg" mistök veit betur næst ...