Nei, heh, var sem betur fer ekki búinn að kaupa um allan bæ
Fór bara í Kísildal og keypti báðar kubbakælingarnar sem þeir eru með, mátaði þær við móðurborðið og sá að þær pössuðu ekki og skilaði þeim þá en eftir smá spjall við Guðbjart og mátun á viftuhlífinni af DFI kælingunni saman við litlu ódýru kubbakælinguna þá skilaði ég bara þessari stóru. En svo við nánari athugun heima þá sá ég að sú litla passar auðvitað ekki en ég nenni samt ekki að skila henni enda hræódýr og allt í lagi að eiga hana.
En svo fór ég í Tæknibæ/Computer.is og mátaði hlífina þar saman við þær tvær kælingar sem þeir áttu en hvorug þeirra passaði. Eftir það mældi ég með reglustriku hvað það er langt á milli gatana og það er 55mm sem samkvæmt upplýsingum um Manhattan kælinguna er það sama og á henni
Andskoti erfitt að finna replacement kælingu á þetta móðurborð!
En þið sem eigið svona LanParty vitið þá bara af því, þökk sé mér
Samkvæmt spjalli um þetta á netinu annars þá er víst líka til einhver Ever Cool kæling sem smellpassar en hún fæst ekki neinstaðar hér
þannig að Manhattan kælingin er sú eina... vonandi... kemst að því endanlega á morgun
Gigabyte GA-MA790FXT-UD5P, AMD Phenom II X4 955 @3.2Ghz, 2 x 4gb Corsair Vengeance DDR3 @1600mhz LP, EVGA Geforce GTX 760, Seagate Barracuda 500gb, 20x Sony DVDRW, TT Big Typhoon og 700W Tagan BZ allt í Cooler Master Stacker kassa með 55" Philips HDTV :]