No Hard disk connected


Höfundur
vignir81
Nýliði
Póstar: 18
Skráði sig: Þri 04. Des 2007 13:30
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

No Hard disk connected

Pósturaf vignir81 » Mið 25. Nóv 2009 22:51

Ég keypti mér tölvu í dag. Valdi í hana sjálfur og lét starfsmenn búðarinnar setja hana saman fyrir mig, allt gott og blessað. Nú vandast málin, ég bý fyrir norðan en keypti hana í RVK. Þegar ég svo kem heim, MJÖG ánægður með mína tölvu, og ætla að henda inná hana 1 stk stýrikerfi fæ ég alltaf á sama staðnum BSOD með stop message "*** STOP: 0x0000007B"

Einhver hérna sem getur bent mér á lausnir? Er þetta harði diskurinn?

Ég er búinn að ganga úr skugga um að hann sé réttlilega tengdur. Ég er búinn prófa annan harðan disk sem ég var með í þeirri gömlu, SATA disk. og það kemur bara svipað, BSOD en bara hann hverfur mjög fljótt, hjá hinum stopppar það bara í BSOD!

Þarf ég kannski að stilla í BIOS? Ef ég fer þangað sé ég diskinn og hversu stór hann er .....

hjálp :)

ps. var að skoða í BIOS og sá að Sata operation mode er still á AHCI, skiptir það einhverju?
Síðast breytt af vignir81 á Mið 25. Nóv 2009 22:59, breytt samtals 1 sinni.




SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: No Hard disk connected

Pósturaf SteiniP » Mið 25. Nóv 2009 22:55

Endilega komdu með meiri upplýsingar eins og hvaða stýrikerfi þú ert að setja upp og hvar þessi error kemur.
Væri heldur ekki verra að sjá spekka á vélinni.

Ég ætla allavega að ráðleggja þér að byrja á því að prófa annan stýrikerfisdisk sem er pottþétt í lagi ef þú ert ekki búinn að því.




Höfundur
vignir81
Nýliði
Póstar: 18
Skráði sig: Þri 04. Des 2007 13:30
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: No Hard disk connected

Pósturaf vignir81 » Mið 25. Nóv 2009 23:04

Móðurborð: ASRock P55 Deluxe ATX Intel LGA1156
Örgjafi: Core i7 860 Lynfield
Vinnsluminni: GeiL 4GB Value PC3-12800 DC
Diskur: Western Digital 1TB Green SATA2, 32MB Buffer, 5400rpm

Ég er 100% viss um að XP Pro stýriskerfisdiskurinn virki. Þetta stop message kemur þegar hann er búinn með að blá dæmið þarna (veit ekki hvað það kallast) þegar hann er að undibúa diskinn fyrir formatt og þegar það kemur Setup is starting windows (eitthvað í þá átinna) þá kemur þetta ....




Höfundur
vignir81
Nýliði
Póstar: 18
Skráði sig: Þri 04. Des 2007 13:30
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: No Hard disk connected

Pósturaf vignir81 » Mið 25. Nóv 2009 23:15

Getur reyndar verið að það styðji ekki 32 bita xp ....




Taxi
spjallið.is
Póstar: 444
Skráði sig: Fös 17. Feb 2006 20:02
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: No Hard disk connected

Pósturaf Taxi » Mið 25. Nóv 2009 23:34

OK. þetta er vandamálið. "Sata operation mode er still á AHCI" Breyttu þessu í "mode IDE" og vandamálið er leyst.

BIOS er ekki settur upp til að installa XP á vélina, Vista og Win 7 vilja hafa AHCI svo að þannig koma flestir BIOS á nýjum móðurborðum í dag. :wink:


Asus P5N-E-SLI, E6300@3.5GHz m/Termalright Ultra, 4x1GB CL4 Black Dragon minni,Gigabyte 9600GT SLI@800MHz,160GB+500GB+2x1TB, pakkaði inn í Coolermaster Elite 332.