Sælir/sælar
Þá er komið að því, eftir að hafa lesið næstum allt á þessu spjalli, og haft mikið gagn og gaman af.
Þannig er að ég er með þetta forláta hljóðkort í tölvuni (SB Live! value) og er að nota það á ofurvélini minni, PII 400 nú hef ég verið að spila hina og þessa leiki og lendi þá í því að það koma einhver aukahljóð,einhverskonar hátíðni tíst. Ég er að vona að þetta sé eitthvað rekkla vandamál en ekki vélbúnaðarmál.
Og þar sem Creative hefur ekki gefið frá sér rekkil fyrir þetta hljóðkort síðan 1999 (sblw9xup.exe)þá er ég að vona að einhver hér á spjallinu hafi vitneskju um hvar hægt væri að nálgast nýrri rekkil.
Ef einhver hefur orðið fyrir sama vandamáli, þá mætti sá hinn sami gjarnan pósta hérna uppl. um hver lausnin var( ef einhver er)
SoundBlaster Live! Value
-
- Stjórnandi
- Póstar: 1198
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
- Reputation: 255
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Passaðu að Mic-In & Line-In, Modem og öll þessi aukatengi séu stillt á MUTE - Þú getur stillt það í Volume Control í Windows... farðu í Advanced og hakaðu við allar rásirnar sem þú getur bætt við í volume control gluggann, og settu mute á allt sem þú þarft ekki að nota =)
Vona að þetta leysi málið =)
Vona að þetta leysi málið =)
-
Höfundur - Græningi
- Póstar: 25
- Skráði sig: Mið 05. Feb 2003 14:09
- Reputation: 0
- Staðsetning: Kópavogur
- Staða: Ótengdur
Takk fyrir ráðleggingarnar.
því miður þá leystu þær ekki vandamálið.
Þetta virðist samt vera bundið við einn leik sem ég hef verið að reyna að spila. Það er Commandos2, prófaði að setja hann í aðra tölvu, jafngamla með einhverju SB64 hljóðkorti og PII 350 mhz örgjörva virkaði fínt þar enginn tíst hljóð. :bri
Þannig að hljóðkortið er líkast til sökudólgurinn!