Y viftutengi með viftustýringu


Höfundur
O.Johnson
Nýliði
Póstar: 14
Skráði sig: Þri 14. Nóv 2006 22:52
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Y viftutengi með viftustýringu

Pósturaf O.Johnson » Fös 28. Nóv 2008 02:00

Hvar er hægt að fá svona Y tengi fyrir viftur ?
Eins og þetta http://www.endpcnoise.com/cgi-bin/e/std/sku=3PinYCable
Finn þetta hvergi í tölvubúðunum hérna á vaktinni.
Ætli þetta muni hafa áhrif á það hvernig viftustýring er að vinna, þ.e.a.s. sýna rangan snúningshraða á viftunum ?



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2780
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 126
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Y viftutengi með viftustýringu

Pósturaf zedro » Fös 28. Nóv 2008 09:22

Þetta myndi bara sýna snúningshraða á einni viftu ekki samblöndu af báðum.
Ef þú horfir vel á myndina þá er það guli vírinn sem miðlar upplýsingar um
snúningshraða og eins og glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir þá fer
guli vírinn bara í eina kló. ;)

Mynd


Kísildalur.is þar sem nördin versla

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 471
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Y viftutengi með viftustýringu

Pósturaf urban » Fös 28. Nóv 2008 09:34

Zedro skrifaði:Þetta myndi bara sýna snúningshraða á einni viftu ekki samblöndu af báðum.
Ef þú horfir vel á myndina þá er það guli vírinn sem miðlar upplýsingar um
snúningshraða og eins og glöggir lesendur hafa eflaust tekið eftir þá fer
guli vírinn bara í eina kló. ;)

Mynd



reyndar þá væri ég ekkert hissa (er satt best að segja ekkert öruggur á því) þó svo að hraðinn á báðum mundi minnka (rökrétt væri um helming en það þarf samt alls ekki að vera) þar sem að þetta er að taka ákveðin (langt síðan að ég var í rafmagnsfræði, þið sem að vitið hvað ég við(já eða er að fara með rangt mál) leiðréttið mig)
já.. þar sem að....
þetta tekur ákveðin straum (sem að væntanlega er miðaður við eina viftu) og deilir því á 2 viftur


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


Höfundur
O.Johnson
Nýliði
Póstar: 14
Skráði sig: Þri 14. Nóv 2006 22:52
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Y viftutengi með viftustýringu

Pósturaf O.Johnson » Fös 28. Nóv 2008 11:33

En veit einhver hvar þetta fæst ?



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Y viftutengi með viftustýringu

Pósturaf KermitTheFrog » Fös 28. Nóv 2008 12:04

http://www.computer.is/vorur/4960

Sýnist þetta breyta úr 4pin í 3pin en veit ekki hvort þetta breyti úr 1 í 2.. Prufaðu að hringja í þá



Skjámynd

AngryMachine
has spoken...
Póstar: 174
Skráði sig: Sun 15. Jan 2006 23:53
Reputation: 0
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: Y viftutengi með viftustýringu

Pósturaf AngryMachine » Fös 28. Nóv 2008 13:31

Ef þig vantar fleiri viftu tengi geturðu líka notað þetta, þetta klýfur eitt 3ja pinna tengi úr molex tengi.


____________________
Starfsmaður @ hvergi


IL2
Tölvutryllir
Póstar: 663
Skráði sig: Sun 06. Feb 2005 17:56
Reputation: 5
Staða: Ótengdur

Re: Y viftutengi með viftustýringu

Pósturaf IL2 » Fös 28. Nóv 2008 23:03

Myndi þetta ekki sýna sama hraða á báðum viftunum ef þær eru eins?