Spennubreytir (USA í Europe)

Allt utan efnis

Höfundur
GTi
has spoken...
Póstar: 173
Skráði sig: Fim 24. Ágú 2006 14:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Spennubreytir (USA í Europe)

Pósturaf GTi » Mið 06. Feb 2008 18:15

Var að versla mér ljós að utan. Með því fylgdi bæði hleðslutæki fyrir bíl og hleðslutæki fyrir heimili.
En þetta var pantað frá Bandaríkjunum og vantar mig því nýtt hleðslutæki þar sem að ég nenni ekki að hlaða alltaf í bílnum.

Á hleðslutækinu stendur:
Input: 120V 60Hz 25W
Output: 13.8VDC 750mA

Hvað mælið þið með að ég geri?
Skemmist hleðslutækið ekki hægt og rólega ef að ég set bara framlengingu á klónna.

Tengið er þetta hefðbundna sem er á mjög mörgum raftækjum.
En mig vantar tæki með rétta spennu.
Mynd




Blackened
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
Reputation: 14
Staðsetning: Babýlon norðursins
Staða: Ótengdur

Pósturaf Blackened » Mið 06. Feb 2008 18:31

eyðileggst ekki hægt og rólega..

það tekur svona 20millisek ;)


verður bara að finna þér spennubreyti 230v í 110v

Eða að finna þér spennubreyti sem er með nákvæmlega sama output

Þarft ekki stóran spennubreyti samt þarsem að þetta eru bara 25w.. þannig að það ætti ekki að vera svo dýrt




Höfundur
GTi
has spoken...
Póstar: 173
Skráði sig: Fim 24. Ágú 2006 14:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf GTi » Mið 06. Feb 2008 19:27

Einhver með hugmynd hvert maður ætti að leita eftir svona spennubreytum?



Skjámynd

Danni V8
Of mikill frítími
Póstar: 1797
Skráði sig: Mán 23. Apr 2007 06:36
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Danni V8 » Mið 06. Feb 2008 21:00

Ég var einmitt með svona vandamál þegar ég keypti PS3 tölvuna mína 3 dögum eftir að hún kom út í Ameríku, og fór svo með hana heim viku seinna.

Ég leitaði í nokkrum búðum en það átti engin til 220V í 110V heldur bara 110V í 220V.. sem ég botnaði ekkert í þar sem hvergi á landinu er notast við 110V nema uppi á kanavelli sem var þá alveg að fara.

En ég var ekki að leita neitt mjög mikið heldur endaði með að kaupa bara á Amazon.co.uk



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3759
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Mið 06. Feb 2008 21:02

Farðu niðrí íhluti og þeir eiga svona gaur fyrir þig ;)



Skjámynd

Baldurmar
FanBoy
Póstar: 792
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 138
Staða: Ótengdur

Pósturaf Baldurmar » Fim 07. Feb 2008 13:20

Þetta er líka til í computer.is
og Elko


Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - GTX 1070 8gb


Höfundur
GTi
has spoken...
Póstar: 173
Skráði sig: Fim 24. Ágú 2006 14:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf GTi » Fim 07. Feb 2008 13:31

Ég veit bara ekki hvað ég á að velja... :S Mér sýnist þetta vera allt fyrir aðrar spennur. Sé ekkert sem er ætlað fyrir 220 -> 110. :|

Er búinn að skoða bæði Elko og computer.is



Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 802
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Reputation: 65
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dagur » Fim 07. Feb 2008 14:06

GTi skrifaði:Ég veit bara ekki hvað ég á að velja... :S Mér sýnist þetta vera allt fyrir aðrar spennur. Sé ekkert sem er ætlað fyrir 220 -> 110. :|

Er búinn að skoða bæði Elko og computer.is

Þetta er það sem þig vantar http://computer.is/vorur/3107 eða http://computer.is/vorur/6027. Lýsingin er þveröfug hjá þeim en ef þú kíkir á myndina þá stendur input 230V og output 110V




Höfundur
GTi
has spoken...
Póstar: 173
Skráði sig: Fim 24. Ágú 2006 14:03
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf GTi » Fim 07. Feb 2008 14:44

Það hlaut að vera að þetta væri eitthvað bull hjá þeim... Fannst eitthvað bogið við þetta.

Takk fyrir... ég kíki á þetta.




Khayman
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Þri 08. Mar 2005 10:58
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

PS3 er dual-voltage

Pósturaf Khayman » Mán 18. Feb 2008 12:46

PS3 er dual-voltage þ.a. þú getur stungið henni beint í rafmagn hérna á Íslandi. Ég keypti mína líka í USA.

Danni V8 skrifaði:Ég var einmitt með svona vandamál þegar ég keypti PS3 tölvuna mína 3 dögum eftir að hún kom út í Ameríku, og fór svo með hana heim viku seinna.

Ég leitaði í nokkrum búðum en það átti engin til 220V í 110V heldur bara 110V í 220V.. sem ég botnaði ekkert í þar sem hvergi á landinu er notast við 110V nema uppi á kanavelli sem var þá alveg að fara.

En ég var ekki að leita neitt mjög mikið heldur endaði með að kaupa bara á Amazon.co.uk