Kosningar 2007!
-
Höfundur - Kerfisstjóri
- Póstar: 1284
- Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
- Reputation: 0
- Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Kosningar 2007!
Jæja, þá fara að kosningar að ganga í garð og því kannski vert að starta smá umræðu um þær.
Í hvaða kjördæmi kjósið þið?
Hvaða málefni eru það sem brenna á mönnum?
Síðast en ekki síst, hvað ætla menn að kjósa?

- Of mikill frítími
- Póstar: 1702
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Reputation: 38
- Staða: Ótengdur
-
- Besserwisser
- Póstar: 3963
- Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
- Reputation: 0
- Staðsetning: Seltjarnarnes
- Staða: Ótengdur
Reykjavík suður (eða norður, ekki viss um hvað vesturbærinn telst sem, var að flytja). En engin málefni sem eru mér virkilega kær, nokkuð sáttur með landið eins og er og því fær D-ið x frá mér.
Bætti við skoðanakönnun (hefði kannski átt að setja Eirík Hauksson þarna upp á grínið ).

"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1702
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Reputation: 38
- Staða: Ótengdur
Haha.. örugglega margir hér sem kjósa "Baráttuflokkinn (Aldraðir og öryrkjar)". Konan mín lenti í einum eldriborgaranum í Smáralindinni sem var að safna undirskriftum og kynna málefnin.. snýr allt að eldriborgum. Þegar konan spurði um hvað þeir ætluðu ekki að gera fyrir ungt fjölskyldufólk var svarið 'Það verða allir einhvern tímann gamlir'.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1702
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Reputation: 38
- Staða: Ótengdur
-
- Nörd
- Póstar: 126
- Skráði sig: Fim 09. Nóv 2006 22:14
- Reputation: 14
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2859
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Reputation: 217
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
raptuss skrifaði:Uss, Sjálfstæðisflokkurinn er nú bara Snobba flokkur fyrir rika fólkið
No hard feelings
Það þýðir ekkert að vera fátækur og kenna stjórnmálaflokkunum um það, hverjum er þá að kenna að einhver sé ríkur ?
það er ekkert nema argasta rugl þessi áróður hjá Samfó og VG, að það sé svo dýrt í Menntaskóla, það kostaði mig undir 10 þús kr. ein önn í menntaskóla, síðan fór ég í einkarekin háskóla sem er að standa sig miklu betur hvað varðar kennslu mv. HÍ.
Síðan er auðvitað alveg frábært að heyra "fátækt" fólk ( þeas. fólkið sem fór að djamma í 10 bekk og fór aldrei í menntaskóla og hvað þá háskóla, bara djamm, fyllerí og ríða ) tala um það hvað skattarnir eru háir og kjósa þá samfó.
hey newsflash, Samfylkingin og Vinstri grænir vilja hækka skatta amk uppí 45 %, ef þú vilt eiga meiri pening og ráða hvað þú gerir við þann pening, ekki kjósa flokkinn sem ætlar að eyða honum "fyrir" þig.
Svo er jöfnuður alveg brilljant "máltak" hjá samfylkingunni.
Jöfnuður þýðir semsagt = þeir duglegu sem fór í gegnum menntaskóla, og í gegnum háskólanám, lærðu nær öll sín unglingsár í stað þess að vera fullur og vitlaus, eigi að borga meiri skatt fyrir þá sem fóru ekki í gegnum þann menntaveg.
og btw, ekki koma með týpisku VG-Samfó svörin "en hvað með fatlaða og þá sem geta ekki lært???", bara svo þið vitið það, þá eru líkamlega fatlaðir að læra í háskólum, þeir geta þetta alveg, hættiði þessum lygum.
Síðan eru spítalarnir ríkisreknir.. þannig það kostar alveg jafn mikið fyrir milljarðamæring og fátækling að fara á sjúkrahús.. það eru ekkert nema lygar hjá Samfó að segja að það sé svo dýrt og það hafi ekki allir efni á því.
Afhverju á ég að gjalda fyrir djammfíkn þeirra sem voru með mér í grunnskóla?
nota bene, ég kýs ekki X-D .. og ég er sá eini í grunnskóla í 2 árganga sem hefur klárað menntaskóla, og ég er sá eini í 2 árgöngum sem er í háskóla.
Afhverju á ég að borga fyrir þeirra innlögn á sjúkradeild/meðferðarheimili/ lækka þeirra skatta ?
ekki hafa þau neinn áhuga að borga skatta né bæta samfélagið.
Samfó og VG eru einungis að spila á heimsku fólks ( sbr. ingibjörg, ögmundur og þeirra hvítflibbaáróður ) og fólkið sem nennti ekki að læra.
Ég flyt úr landi eftir nokkur ár, en landið verður saurugt af spillingu þá.
Félagshyggja virkar ekki á 21 öld, hún bara virkar því miður ekki.
Ég er nota bene að vinna að verkefni sem snýst um einkavæðingu sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila og sérfræðistofnanna, og að heyra ruglið sem kemur uppúr stjórnmálamönnum er alveg FUBAR .. ég er lærður og veit alveg hvað orðin þýða, en það þykir lítið mál að misnota orðin til eigin hagræðingar, sbr "Jöfnuðu" "tekjuskattur" "Heimsmarkaðir" etc..
Ögmundur Jónasson vill sem dæmi flytja Bankana úr landi, Steingrímur J vill sem dæmi loka á alla stóriðju og stórmarkaði ( td. álver, bónus, hagkaup etc.. ) og Ingibjörg vill lækka skatta hjá þeim fátæku og hækka hjá þeim ríku.
Þetta lið er alveg orðið snarbilað, hver sér réttlætið í þessum aðgerðum ?
XD eru loksins byrjaðir að sparka gömlu körlunum út, en ég bíð eftir því að Björn Bjarna fái hjartaáfall og að Seðlabankinn verði pólitískt-aftengdur.
Einkavæða með samstarf við opinberfyrirtæki er það sem koma skal, sbr. skandínavíu, ( aleris, EQT ofl.)
Ekki hlusta á lygarnar í Samfó og VG ..
Ég ætla líka að bæta við, Samfó var við völd í RVK í 8 ár, og fyrir síðustu kosningar notuðu þau 6 kosningarloforð.. þau sömu og fyrir 6 árum -> hvers vegna framkvæmdu þau ekki loforðin þessi síðustu 6 ár ??
Tja, maður spyr sig, þau stóðu svo sannarlega ekki við orð sín, og hvers vegna ætti maður að trúa þessu núna ?
-
- Besserwisser
- Póstar: 3963
- Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
- Reputation: 0
- Staðsetning: Seltjarnarnes
- Staða: Ótengdur
Ágætt innskot hjá þér CendenZ, margt þarna sem er akkúrat við kjarna málsins. En þú gleymir líka að X-S nota frægt fólk til að fá atkvæði
En þú segist ekki kjósa X-D, hvað kýstu þá í staðinn eða skilaru frekar auðu? (Forvitnin að drepa mann )
Og þegar að þú segir að þú sért sá eini í 2 árganga sem hefur klárað menntaskóla og svo byrjað í háskólanámi, ertu þá ekki að tala um einhvern sérstakann grunnskóla?
En þú segist ekki kjósa X-D, hvað kýstu þá í staðinn eða skilaru frekar auðu? (Forvitnin að drepa mann )
Og þegar að þú segir að þú sért sá eini í 2 árganga sem hefur klárað menntaskóla og svo byrjað í háskólanámi, ertu þá ekki að tala um einhvern sérstakann grunnskóla?
"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."
-
- Græningi
- Póstar: 26
- Skráði sig: Fim 01. Jan 2004 22:10
- Reputation: 0
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
"það kostaði mig undir 10 þús kr. ein önn í menntaskóla," Bara innritunargjald og "efnisgjald" gera 18 þúsund þ.e. 9 þúsund á önn og þá hefurðu keypt bækur fyrir 1000 þúsund? Tja...
"síðan fór ég í einkarekin háskóla sem er að standa sig miklu betur hvað varðar kennslu mv. HÍ." Ái.
"hey newsflash, Samfylkingin og Vinstri grænir vilja hækka skatta amk uppí 45 %" Þetta er einfaldlega rangt.
"Jöfnuður þýðir semsagt = þeir duglegu sem fór í gegnum menntaskóla, og í gegnum háskólanám, lærðu nær öll sín unglingsár í stað þess að vera fullur og vitlaus, eigi að borga meiri skatt fyrir þá sem fóru ekki í gegnum þann menntaveg." Tekjuskattprósentan er alveg jafn há enda búið að afnema hátekjuskattinn. Skilningurinn á jöfnuði er að samfélagið hjálpist að til þess að enginn hafi það skítt.
"Síðan eru spítalarnir ríkisreknir.. þannig það kostar alveg jafn mikið fyrir milljarðamæring og fátækling að fara á sjúkrahús.. það eru ekkert nema lygar hjá Samfó að segja að það sé svo dýrt og það hafi ekki allir efni á því. " Það að verð gangi jafnt yfir alla þýðir ekki að allir hafi efni á því. Enda svo að ef eitthvað kostar 1000 og þú átt bara 900 þá hefurðu ekki efni á því. Engu breytir þó að sá sem á 1100 þurfi líka að borga 1000.
"Félagshyggja virkar ekki á 21 öld, hún bara virkar því miður ekki. " Jújú, þetta gengur ágætlega á norðurlöndunum.
"Ögmundur Jónasson vill sem dæmi flytja Bankana úr landi" Þetta er ekki eins manns flokkur. Það hefur fjöldi sjálfstæðismanna viljað einkavæða heilbrigðiskerfið síðustu árin en það hefur ekki haft í för með sér að heilbrigðiskerfið hafi verið einkavætt.
"Steingrímur J vill sem dæmi loka á alla stóriðju og stórmarkaði" Það er ekki það sama að segja að nú sé komið nóg og að ganga milli álvera og loka þeim. Hið síðarnefnda er svo einfaldlega ekki lagalega mögulegt þannig að þar þarf ekki að hafa áhyggjur.
"og Ingibjörg vill lækka skatta hjá þeim fátæku og hækka hjá þeim ríku. " Ingibjörg vill hækka persónuafsláttin og sú hækkun kemur öllum jafnt til góða. Hins vegar kemur hún þeim hlutfallslega best sem lægstar hafa tekjurnar.
"Einkavæða með samstarf við opinberfyrirtæki er það sem koma skal, sbr. skandínavíu," Ég myndi ekki kalla það einkavæðingu enda er það ekki einkavæðing í þeirri merkingu sem það orð hefur verið notað hingað til. Það sem á norðurlöndunum er iðkað er meira svona útboð einstakra verkþátta til einkaðila.

- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 389
- Skráði sig: Sun 09. Okt 2005 23:36
- Reputation: 0
- Staðsetning: 127.0.0.1
- Staða: Ótengdur
ég held að ég kjósi bara frjálslinda..
þarf að koma í veg fyrir vandamál eins og þau sem eiga sér stað á hinum norðurlöndunum áður en það verður of seint
mér líst ekkert á að fá hópa af einstaklingum inn í landið sem geta ekki aðlagast samfélaginu, og einangrast í "litlum kínahverfum" ss. í blokkum og iðnaðarhúsum landsins.. lifa þar á lægri launum og lifa allt öðruvísi en aðrir meðlimir þjóðfélagsins..
Tala nú ekki um að erlendir borgar geta komið hingað inn til landsins og fengið nýja kennitölu án þess að sýna framá hreint sakavottorð né sjúkraskírteini.. t.d. á þessu eina ári sem opið hefur verið fyrir erlent vinnuafl hefur þjófnaður aukist til muna (heyrði þetta í einhverju útvarpsviðtali) og einnig hafa komið upp aukinn tilfeli af smitsjúkdómum eins og t.d. berklum.. Er á því að íslensk yfirvöld þurfi að hafa betri yfirsjón yfir því hverjir séu að koma til landsins!
Síðan þarf að hafa betri gætur á því að það erlenda vinnuafl sem er að koma hingað til landsins sé að njóta rétta sinna, ég hef heyrt mikið um að verktakar séu að fara virkilega illa með það vinnuafl sem hefur verið að koma hingað til landsins.. leiðinlegar fréttir sem maður hefur verið að heyra frá heilu fjölskyldunum sem eru að borga hátt í 100.000 kall á mánuði fyrir eitt herbergi
Væri líka mjög jákvæt að innflytjendur myndu hafa "x" mikin tíma til að aðlagast landinu/tungumálinu til að vega á móti þess að innflytjendur einagrist frá samfélginu... t.d. hafa íslenskukennslu og á ársfresti þyrftu þeir að taka próf til að kanna skilning þeirra á tungumálinu, og ef þeir væru ekki að aðlagst samfélaginu þá myndu þeir fá einhvern "x" frest til að taka sig á.. veit að þetta hljómar hálf strangt en veit ekki hvernig öðruvísi væri mögulega hægt að eiga við þetta vandamál
Bretar fóru reyndar þá leið að hafa einskonar punktakerfi þar sem fólk er metið eftir menntun og reynslu og t.d. ef það myndi vanta tannlækna inn í ísland þá myndi tannlæknir eiga meiri líkur á að komast inn í landið heldur en einhver almennur verkamaður(þar að segja ef það vantaði ekki verkamenn)
atvkæðið mitt fer til frjálslynda þar sem þeir eru þeir einu sem eru að viðhafst eitthvað að viti í þessum málefnum

- </Snillingur>
- Póstar: 1034
- Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
- Reputation: 132
- Staða: Ótengdur
Vinstriöflin hafa bara ekki sýnt fram á að þau fúnkeri saman í stjórn. Of margir kokkar í sömu súpu.
Ingibjörg/Össur: Össur virðist ekki fatta að hann ætti að hafa hægt um sig þar sem hann er ekki lengur formaður og Ingibjörg virðist ekki hafa stjórn á flokknum.
Steingrímur mótmælti sölu bankanna (áður fengu bankarnir greitt úr ríkissjóð en greiða nú í hann fúlgur fjár), var á móti að leyfa bjór og vill auka forsjárhyggju.
Það er eflaust hægt að finna svipuð dæmi um formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins en ég leyfi andstæðingum þessara flokka að grafa upp skítinn