Vandræði með netið á vélini minni.


Höfundur
Killerade
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mán 03. Apr 2006 08:50
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vandræði með netið á vélini minni.

Pósturaf Killerade » Fim 01. Feb 2007 14:13

Jæja, einn morguninn vakna ég, starta vélinni og netið virkar ekki. Skrítið þar sem það var kveikt á routernum og allt tengt. Það skrítna er að það virkar í annari vél á heimilinu og öllu sem tengist þráðlausa. Ég er búinn að prufa að skipta um snúru, port á routernum sem og tengi á tölvuni. Búinn að skipta um ip tölu, taka static ip af, opna öll port, slökkva á Windows firewall sem er eina vörnin í tölvuni minni svo það er ekki líklegt að eitthvað forrit sé að hindra netið, ég er búinn að prufa allt nema að tjah, það er ekki langt síðan ég formataði (+ ég hef alltaf talið format vera "auðveldu" leiðina undan vandamálum) en ég gæti mögulega prufað að skipta um driver þó ég sé ekkert sérstaklega hrifinn af því.

Sama hvað ég geri kemur alltaf bara "Limited or no connectivity. nákvæmlega ekkert hefur breyst í stillingum hvað routerinn eða tölvuna mína varðar. Driverinn fyrir netkortið segist nú vera í góðu lagi. Ég er bara alveg uppiskroppa með hugmyndir, vill helst ekki þurfa að borga fyrir viðgerð þar sem ég hef nú leyst flest mín vandamál sjálfur eða einfaldlega með hjálp netverja :wink:

Svo nú biðla ég til ykkar vaktmenn, einhverjar hugmyndir?


- Hjalti

Skjámynd

Heliowin
FanBoy
Póstar: 706
Skráði sig: Fös 11. Nóv 2005 11:33
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Heliowin » Fim 01. Feb 2007 15:31

Hefurðu prófað að endurræsa routerinn. Hann þarf líka smáhvíld stundum held ég.




Selurinn
Kerfisstjóri
Póstar: 1228
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 15:51
Reputation: 2
Staðsetning: Mhz
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vandræði með netið á vélini minni.

Pósturaf Selurinn » Fim 01. Feb 2007 16:02

Killerade skrifaði:Jæja, einn morguninn vakna ég, starta vélinni og netið virkar ekki. Skrítið þar sem það var kveikt á routernum og allt tengt. Það skrítna er að það virkar í annari vél á heimilinu og öllu sem tengist þráðlausa. Ég er búinn að prufa að skipta um snúru, port á routernum sem og tengi á tölvuni. Búinn að skipta um ip tölu, taka static ip af, opna öll port, slökkva á Windows firewall sem er eina vörnin í tölvuni minni svo það er ekki líklegt að eitthvað forrit sé að hindra netið, ég er búinn að prufa allt nema að tjah, það er ekki langt síðan ég formataði (+ ég hef alltaf talið format vera "auðveldu" leiðina undan vandamálum) en ég gæti mögulega prufað að skipta um driver þó ég sé ekkert sérstaklega hrifinn af því.

Sama hvað ég geri kemur alltaf bara "Limited or no connectivity. nákvæmlega ekkert hefur breyst í stillingum hvað routerinn eða tölvuna mína varðar. Driverinn fyrir netkortið segist nú vera í góðu lagi. Ég er bara alveg uppiskroppa með hugmyndir, vill helst ekki þurfa að borga fyrir viðgerð þar sem ég hef nú leyst flest mín vandamál sjálfur eða einfaldlega með hjálp netverja :wink:

Svo nú biðla ég til ykkar vaktmenn, einhverjar hugmyndir?



Þarft að resetta WinSock




Höfundur
Killerade
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mán 03. Apr 2006 08:50
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Killerade » Fim 01. Feb 2007 16:58

Heliowin: Búinn að því, gleymdi bara að nefna það.

Selurinn: Og gætiru nokkuð útskýrt nánar fyrir mér hvað það er eða bara einfaldlega hvernig ég geri það?


- Hjalti


Höfundur
Killerade
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mán 03. Apr 2006 08:50
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Killerade » Lau 03. Feb 2007 18:06

http://support.microsoft.com/kb/811259

Fann þessa hjálp og prufaði að gera run > netsh winsock reset og það gekk eftir en so far hefur ekkert breyst varðandi að ég kemst ekki á netið.


- Hjalti


dorg
has spoken...
Póstar: 171
Skráði sig: Lau 24. Jún 2006 10:19
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf dorg » Sun 04. Feb 2007 10:36

[quote="Killerade"]http://support.microsoft.com/kb/811259

Fann þessa hjálp og prufaði að gera run > netsh winsock reset og það gekk eftir en so far hefur ekkert breyst varðandi að ég kemst ekki á netið.[/quote

Mjög athyglisvert vandamál.

Svona til að bilanagreina.
Gætir prófað að starta upp á rescue disk (t.d. Ultimate boot cd) og athugað hvort
þú náir netsambandi með honum. (Nú eða knoppix eða SystemRescueCD)

Alltavega svona til greina hvort þetta sé hardware eða software vandamál.
Ef þetta fær ekkert netsamband þá getur þú prófað hvort þetta sé routerinn með því að
stinga fartölvu í samband við lan snúru og athuga hvort hún nái sambandi gegnum hana.
Ef það virkar ekki er þetta routerinn annars hardware í tölvunni.

Nú ef hinsvegar bootcd virkar þá gætir þú prófað að fara í SystemRestore og bakkað aftur fyrir stillingarnar sem þú settir inn. Bara taka backup fyrst ef eitthvað skildi klikka.




Höfundur
Killerade
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mán 03. Apr 2006 08:50
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Killerade » Sun 04. Feb 2007 19:30

Prufaði að tengja fartölvu með sömu snúru (og sama port á routernum) og hún komst online. Þetta er augljóslega vélin mín sem er vandamálið. Prufaði System Restore á tímapunkt þar sem netið virkaði en það virkaði ekki. Ég er kominn með þvílíkan hausverk hérna.


- Hjalti


dorg
has spoken...
Póstar: 171
Skráði sig: Lau 24. Jún 2006 10:19
Reputation: 2
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf dorg » Sun 04. Feb 2007 19:54

Killerade skrifaði:Prufaði að tengja fartölvu með sömu snúru (og sama port á routernum) og hún komst online. Þetta er augljóslega vélin mín sem er vandamálið. Prufaði System Restore á tímapunkt þar sem netið virkaði en það virkaði ekki. Ég er kominn með þvílíkan hausverk hérna.


Jamm bendir allt á vélina.
Lokatestið er að prófa ultimate boot cd eða álíka.
Nú og svo auðvitað það sem þú hlítur að vera búinn að gera að henda drivernum og installa honum aftur.
Sjá hvort netið virki í save mode with networking.
Endalaust hægt að prófa.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6466
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 300
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 05. Feb 2007 01:06

prófaðu að crossover tengja hana við aðra tölvu og tékkaðu hvort það virkar.


"Give what you can, take what you need."


Dusilmenni
Nýliði
Póstar: 15
Skráði sig: Þri 06. Feb 2007 18:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dusilmenni » Þri 06. Feb 2007 22:08

Kannski að eitt gæti hjálpað þér, hefur oft hjálpað mér þegar ég troubleshoota;
Pingaðu localhost (127.0.0.1): Ef þetta virkar þá er tcp/ip stillingar að virka fínt. Ef þetta virkar ekki þá bendir það oftast á drivera vandamál.
Pingaðu ip töluna á tölvunni þinni: Ef þetta virkar ekki þá er kortið sjálft í hassi.
pingaðu router. Ef þetta virkar þá er allt í fína með allar stillingar réttar upp að router.
Pingaðu dns serverinn þinn. Kannski ekki endilega dns, bara vani hjá mér :þ en þetta myndi benda á það að grunn netsamband er komið á.

Ef allt hér að ofan myndi virka en ekkert kemur í gegn þá er það eitthvað 3 party prógram í gangi hjá þér eins og eldveggur eða eitthvað.
Þetta kannski hjálpar ekkert þegar vandamálið þitt er svona sérstakt en það er gott að vita af þessu :)


-
How do you get a cisco certified administrator off your porch ?

You pay for your pizza.


so
Ofur-Nörd
Póstar: 234
Skráði sig: Mið 07. Jan 2004 20:07
Reputation: 0
Staðsetning: Hornafjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf so » Fös 09. Feb 2007 17:04

Spurning hvort netkortið sé hreinlega bilað ?

Mjög svipuð bilanalýsing og hjá kunningja mínum. Hann var með ca. 2 ára vél, innbyggt netkort og svo allt í einu einn daginn var netið úti.
Eftir svolitla tilraunastarfemi setti ég gamalt pci netkort sem ég átti í vélina og úllen dúllen doff, hann búinn að vera á netinu síðan.
Spáði svo sem ekki meira í þetta fyrst þetta virkaði, gaf honum bara kortið og kvaddi :D


Athlon64 X2 5000+, Gigabyte GA-MA-770-DS3, 4GB Corsair, 2* Seagate 500GB, Xerox 19", Neovo 20" LCD skjáir