Tölva startar ekki...
-
Höfundur - Tölvutryllir
- Póstar: 668
- Skráði sig: Fös 04. Feb 2005 23:03
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Tölva startar ekki...
Ok, ég var að fá nýja örgjörvaviftu og er að yfirklukka rólega hérna. Örgjörvinn hélst alveg kaldur meðan ég var að gera þetta en svo prófaði ég að breyta "Performance Settings" úr Normal í Fast og þá stoppaði tölvan eftir memory test og ég get ekki farið í bios setup. Ég ákvað að próf að hreinsa cmod með því að færa pinnann en núna þegar ég reyni að starta tölvunni kviknar bara á henni í 0.1 sec og slokknar aftur. Allt power virðist vera í sambandi.