[Leyst] Sjónvarpstkort í fartölvu


Höfundur
Danni Colt
Staða: Ótengdur

[Leyst] Sjónvarpstkort í fartölvu

Pósturaf Danni Colt » Sun 28. Maí 2006 00:09

Fyrir nokkrum mánuðum síðan voru gerð þau mistök á mínu heimili að keypt var Medion fartölva frá BT. Með henni fylgdi utanáliggjandi sjónvarpskort sem fer í þessa auka rauf á hliðinni á tölvunni, minnir að hun heitir PCMCIA eða eitthvað álíka. Allavega. Á kortinu er ss. tengi fyrir coaxial TV snúru, loftnet, S-vido, composite video og Auxulary Audio In. Þar sem ég klaufaðist til að grýta vekjaraklukku í sjónvarpið mitt og brjóta það þá neyðist ég núna til að nota þessa fartölvu sem sjónvarpið mitt og Playstation tölvan er tengd í það líka.

Núna er ég að hugsa, hvernig get ég notað þessi 3 tengi á sjónvarpskortinu, [gult] Composite Video in, [rautt og hvítt] Auxulary In fyrir hljóð?

Forritin sem fylgdu með þessu "Home Cinema" eru PowerDVD, PowerCinema, PowerProducer og MusicMatch Jukebox. Ekkert af þessum forritum vill leyfa mér að horfa á það sem kemur inn í gegnum þessi tengi. Ég var reyndar búinn að ná að nota K! TV XP til að sjá það sem kom úr Playstation tölvunni en náði ekki hljóðinu í gegnum það.

Er einhver sem gæti verið svo æðislegur og bent mér á hvað ég þarf að gera til að geta horft og hlustað á það sem Playstation tölvan sendir í sjónvarpskortið?
Síðast breytt af Danni Colt á Sun 28. Maí 2006 02:25, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Mazi!
ÜberAdmin
Póstar: 1327
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Reputation: 1
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Mazi! » Sun 28. Maí 2006 00:46

hahaha... vastu þreittur þegar þú kastaðir vekjaraklukkuni í sjónvarpið ? :D


Mazi -

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2784
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 128
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf zedro » Sun 28. Maí 2006 01:56

Búinn að tengja hljóðið í AUX IN?
Ef svo er gæti það verið að þú þurfið að stilla K!TV eitthvað til að fá hljóðið.

Allavega það eina sem ég dettur í hug einmitt núna ;)


Kísildalur.is þar sem nördin versla


Höfundur
Danni Colt
Staða: Ótengdur

Pósturaf Danni Colt » Sun 28. Maí 2006 02:13

Mazi! skrifaði:hahaha... vastu þreittur þegar þú kastaðir vekjaraklukkuni í sjónvarpið ? :D

Þreittur og þunnur. Baaaaaaad combination :x

Zedro skrifaði:Búinn að tengja hljóðið í AUX IN?
Ef svo er gæti það verið að þú þurfið að stilla K!TV eitthvað til að fá hljóðið.

Allavega það eina sem ég dettur í hug einmitt núna ;)

Jamm búinn að því. En er líka búinn að þræða allar stillingar á K! TV en af minni bestu kunnáttu er allt rétt stillt til að fá hljóðið í gegn.

Kannski að einhver kann á þetta forrit og veit hvernig á að stilla það til að fá AUX in hljóð til að virka?



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2784
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 128
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf zedro » Sun 28. Maí 2006 02:20

Langsótt en ertu buinn að prufa kíka í "Volume panel",
ath hvort eitthvað sé mute'að þar?


Kísildalur.is þar sem nördin versla


Höfundur
Danni Colt
Staða: Ótengdur

Pósturaf Danni Colt » Sun 28. Maí 2006 02:25

Það er ekkert Mute en ég náði að redda mér. Fann bara snúru til að breyta auxulary í jack og tengdi það í Line In á fartölvunni og stillti eftir því.

Kominn með hljóð og mynd og orðinn sáttur maður í bili :8)



Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2784
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 128
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf zedro » Sun 28. Maí 2006 02:26

Flottur :8)


Kísildalur.is þar sem nördin versla