E3 06 PS3 :Varúð Trölla þráður ekki fyrir viðkvæma FLAMEFEST


Gestir
Staða: Ótengdur

Pósturaf Gestir » Sun 14. Maí 2006 23:34

hvað er Wii ??



Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2727
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Pósturaf SolidFeather » Sun 14. Maí 2006 23:37

ÓmarSmith skrifaði:hvað er Wii ??


Mynd




Gestir
Staða: Ótengdur

Pósturaf Gestir » Sun 14. Maí 2006 23:43

og þetta segir mér ??


Myndi skjóta á Nintendo... en komonn..

það dó fyrir 1990 ;)



Skjámynd

SolidFeather
Vaktari
Póstar: 2727
Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
Reputation: 159
Staða: Ótengdur

Pósturaf SolidFeather » Sun 14. Maí 2006 23:45

Nintendo Wii

AKA Nintendo Revolution




HemmiR
Stjórnandi
Póstar: 420
Skráði sig: Fim 05. Maí 2005 23:05
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Pósturaf HemmiR » Sun 14. Maí 2006 23:54

svosem ég hef verið playstation maður en ég ætla ekki að fá mér það aftur það er allveg á tæru.. svo hata ég microsoft þannig ég fæ mér það ekki.. þannig ef ég fæ mér leikjavél aftur þá er það nintendo :)



Skjámynd

Silly
Ofur-Nörd
Póstar: 234
Skráði sig: Sun 22. Jún 2003 12:18
Reputation: 1
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Silly » Mán 15. Maí 2006 00:14

Afhverju hatarðu Microsoft? Hvað gerðu þeir þér? Og hvað gerði Sony fyrir þig sem gerir þá svona sérstaka í þínum augum?



Skjámynd

Höfundur
ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Mán 15. Maí 2006 01:22

2005 var Project Assasin kynntur á Xbox 360.

Á E3 núna var Assasin's Creed kynntur sem PS3 exclusive, samt virðist sem hann hafi verið keyrður á Xbox 360 vél með PS2 stýripinna. Afhverju ekki á PS3 dev kit? Þetta er einn besti leikurinn sem var kynntur fyrir PS3 á sýningunni.

The demo, hidden behind closed doors at E3, was running on an Xbox 360 using a third-party USB PlayStation controller. The game system was hidden in a stand covered by a sheet. Again, Ubisoft officials would not comment.


Fullt af fólki sem fór á E3 hefur nú staðfest að þetta var eini PS3 leikurinn sem notaði ekki nýja PS3 stýripinnan og sumir segjast hafa séð 360 á bakvið. Svo þetta hlýtur að vera meira en bara orðrómur. Hversu mikið hefur Sony borgað þeim fyrir þennan titil?




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mán 15. Maí 2006 01:50

Silly skrifaði:Afhverju hatarðu Microsoft? Hvað gerðu þeir þér?

Þeir búa til hugbúnað með litlum eða eingum backward compatibility.
Þeir gerðu hugbúnaðinn sinn þannig að heimasíður sem hægt er að gera virka bara rétt (eða bara yfir höfuð) Internet Explorer
Þeir stela hugmyndum frá öðrum en verða brjálaðir ef einhver stelur hugmyndum frá þeim
Þeir létu íslensk ríkið eyða mikklum fjármunum í að fara yfir allt tölvukerfi hjá öllum stofnunum og kaupa leyfi þar sem þau vantaði eða fundust ekki í staðin fyrir að hafa íslenska útgáfu af Windows. Þið vitið hvernig það fór.
Þeir láta þá sem kaupa Windows XP skrá það á netinu með tilheyrandi vandræðum ef það þarf að setja windowsið upp aftur fljótlega.
Þeir kaupa upp keppinauta sína í staðin fyrir að keppa við þá
Þeir semja við tölvuframleiðendur um að þeir selji ekki tölvur með öðru stýrikerfi í dual boot *
Windows er martröð kerfisstjórans. Sama hvað er gert verða tölvur sem tilheyra ekki einum notanda alltaf fullar af drasli.
Þeir leggja ekki áherslu á öruggi við hugbúnaðargerð
Þeir halda stöðlum leyndum svo annar hugbúnaður virki ekki almennilega með td. .doc skrám.
Þeir taka ókeypis hugbúnað með opinn kóða, breyta honum svo hann sé ósamhæfanlegur við annan hugbúnað sem nýtir kóðan og neita að birta kóðan.
The Microsoft "Hall of Innovation" http://www.vcnet.com/bms/departments/innovation.shtml



Skjámynd

Silly
Ofur-Nörd
Póstar: 234
Skráði sig: Sun 22. Jún 2003 12:18
Reputation: 1
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Silly » Mán 15. Maí 2006 02:20

Ég ætla ekki að fara í neina rimmu við þig útaf Microsoft. Þú mátt eiga þínar skoðanir.

Um Assasins Creed hefur maður verið að heyra að hann verði á ps3 OG Xbox 360. Enda eru Ubisoft gótður stuðningaðilar Xbox og 360. Og að sjá að leikurinn að er að keyra á 360 segir allt sem segja þarf! :wink:



Skjámynd

Höfundur
ICM
Vaktari
Póstar: 2383
Skráði sig: Lau 25. Jan 2003 19:36
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf ICM » Mán 15. Maí 2006 02:55

gumol hvað ertu að ræða þetta hér? Og það þegar verið er að ræða Sony vs Microsoft :lol:

Þeir gerðu Internet Explorer þannig að hann gat lesið ófagmannlega unnin vef kóða, enda eru flestar vefsíður unnar af venjulegu fólki sem er sama um alla staðla og hugsa bara um að þeir eru að gera texta aðgengilegan á netinu fyrir aðra. Það var Netscape sem byrjaði að koma með sýna eigin staðla sem ekki virkuðu með öðrum vefskoðurum, EKKI Microsoft. Þegar vefskoðara stríðið var sem hæst reyndi Netscape að ná aftur fólki með að reyna að gera síður "betri" með þeirra vefskoðara. Ég þoli ekki þegar það er alltaf kennt Microsoft um allt.

Ég veit ekki hvað þú ert að tala um en Windows er með einna besta backward compatability sem nokkurt stýrikerfi hefur. Apple búnnir að losa sig við nánast allt legacy dót og Linux hefur breyst svo oft í gegnum tíðina að ég efast um að þú eigir eftir að geta keyrt mikin hugbúnað vistþýddan 1995 án vandræða.

Sony verða alltaf að búa til sýna lokuðu staðla og reyna svo að nauðga viðskiptavinum sýnum með þeim, t.d. er okur verð á minniskortunum þeirra en þeir neita að nota almenna staðla sem eru viðurkenndir af almenningi og kosta jafnvel meira en helmingi minna. T.d. SecureDigital/MMC og Compact Flash. Ekki nóg með það heldur eru minniskortin ósamhæf á milli ýmisra Sony tækja jafnvel þótt þau noti sama interface. Má þá minnast á SonyEricsson síma sem styðja Firmware update en samt neitaði Sony að uppfæra þá til að styðja stærri kort, fólk verður að kaupa nýja síma til að geta notað stærri kort og enn meira BS varðandi MemoryStick sem eru mest hötuðu minniskorta ósamhæfis "staðlar" í heimi.

Sony eru óhræddir stela hugmyndum frá öðrum, jafnvel eftir að hafa hæðst að þeim fyrir framan fullt af blaðamönnum áður og kalla þá gimick. Kalla keppinauta sína heimska fyrir að gera eitthvað og síðan gera þeir það nákvæmlega sama.

Íslenska ríkið, þarmeð flokksmeðlimir þínir Gumol voru þeir sem féllust á þessa vitleysu, ekki hægt að kenna Microsoft um það, það var jú verið að þýða Windows fyrir smáþjóð.

Það kaupa nær öll stór fyrirtæki keppinauta sína ef þau geta, ég hélt að þú værir kapítalisti og fyndist það ekkert athugavert. Sony hefur keypt marga af sínum og borgar háar upphæðir til að hindra leiki í að vera gefnir út fyrir önnur kerfi, þeir eru engu betri.

Þýnir elskulegu Intel semur mikið við framleiðendur líka og hótar þeim svo þeir þora ekki að eiga viðskipti við AMD. Aðal starfsemi Intel er í Ísrael, landi sem þú vilt sjá þurkað útaf kortinu.

Tölvur verða fullar af drasli? Einangra notendurnar og meina þeim rit aðgang að ýmsum svæðum og ekki hleypa hryðjuverkamönnum (óvitum sem halda að þeir séu 1337) í tölvuna þína þá ætti þetta ekki að vera neitt rosalegt vandamál.

Ég veit ekki betur en að PDF sé lokaður staðall, samt er hann viðurkenndur, þökk sé Digital Millenium Copyright Act. það var handtekið evrópskan hakkara fyrir að búa til forrit sem hannaði PDF skrár. Hann var þó látin laus. Hefur einhver verið handtekin fyrir að hakka .doc? Flestir halda stöðlunum sínum lokuðum sama hvaða fyrirtæki það er.

Þessi BSD kóði sem Microsoft eru ásakaðir um að hafa "stolið" er að fullu búið að skipta út.

Sorry gumol þetta var létt grín, ekki persónulegar árásir :wink:



Skjámynd

Dagur
Geek
Póstar: 802
Skráði sig: Fös 19. Sep 2003 14:00
Reputation: 65
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dagur » Mán 15. Maí 2006 11:55

ÓmarSmith skrifaði:og þetta segir mér ??


Myndi skjóta á Nintendo... en komonn..

það dó fyrir 1990 ;)


Af hverju græða þeir þá langmest?




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Þri 30. Maí 2006 00:36

ICM skrifaði:gumol hvað ertu að ræða þetta hér? Og það þegar verið er að ræða Sony vs Microsoft :lol:
Var bara að svara manni sem skildi ekki afhverju einhver hataði Microsoft, þessi sem hataði Microsoft hataði líka Sony.
ICM skrifaði:Þeir gerðu Internet Explorer þannig að hann gat lesið ófagmannlega unnin vef kóða, enda eru flestar vefsíður unnar af venjulegu fólki sem er sama um alla staðla og hugsa bara um að þeir eru að gera texta aðgengilegan á netinu fyrir aðra. Það var Netscape sem byrjaði að koma með sýna eigin staðla sem ekki virkuðu með öðrum vefskoðurum, EKKI Microsoft. Þegar vefskoðara stríðið var sem hæst reyndi Netscape að ná aftur fólki með að reyna að gera síður "betri" með þeirra vefskoðara. Ég þoli ekki þegar það er alltaf kennt Microsoft um allt.
Sagan breytir ekki ástandinu núna, microsoft fer ekki eftir stöðlum og Microsoft hugbúnaður gerir síður sem virðast vera til þess ætlaðar að virka bara í IE. Hvort einhver annar hafi gert það áður eða ekki breytir ekki neinu.
ICM skrifaði:Ég veit ekki hvað þú ert að tala um en Windows er með einna besta backward compatability sem nokkurt stýrikerfi hefur. Apple búnnir að losa sig við nánast allt legacy dót og Linux hefur breyst svo oft í gegnum tíðina að ég efast um að þú eigir eftir að geta keyrt mikin hugbúnað vistþýddan 1995 án vandræða.
Jújú, en þú ættir ekki að þurfa að vera að keyra hugbúnað frá 1995 til að skoða skrár, þú átt að geta notað núverandi útgáfur af hugbúnaðinum.
ICM skrifaði:Sony verða alltaf að búa til sýna lokuðu staðla og reyna svo að nauðga viðskiptavinum sýnum með þeim, t.d. er okur verð á minniskortunum þeirra en þeir neita að nota almenna staðla sem eru viðurkenndir af almenningi og kosta jafnvel meira en helmingi minna. T.d. SecureDigital/MMC og Compact Flash. Ekki nóg með það heldur eru minniskortin ósamhæf á milli ýmisra Sony tækja jafnvel þótt þau noti sama interface. Má þá minnast á SonyEricsson síma sem styðja Firmware update en samt neitaði Sony að uppfæra þá til að styðja stærri kort, fólk verður að kaupa nýja síma til að geta notað stærri kort og enn meira BS varðandi MemoryStick sem eru mest hötuðu minniskorta ósamhæfis "staðlar" í heimi.
Sony eru óhræddir stela hugmyndum frá öðrum, jafnvel eftir að hafa hæðst að þeim fyrir framan fullt af blaðamönnum áður og kalla þá gimick. Kalla keppinauta sína heimska fyrir að gera eitthvað og síðan gera þeir það nákvæmlega sama.
Ég veit ekki hvaðan þú fékkst þá hugmynd að Sony væri í einhverju uppáhaldi hjá mér. Á ekki eina einustu Sony vöru svo ég viti. Systir mín á Sony mini diska spilara sem sanfærði mig um að ég vilji aldrei versla við þá. Hérna kemur samt þetta sama og í sambandi við IE. Einhverjir aðrir eru svo vondir líka á að réttlæta það sem Microsoft gerir. Kallast rökvilla.
ICM skrifaði:Íslenska ríkið, þarmeð flokksmeðlimir þínir Gumol voru þeir sem féllust á þessa vitleysu, ekki hægt að kenna Microsoft um það, það var jú verið að þýða Windows fyrir smáþjóð.
Jújú, stjórnvöld hér eru með tölvu-vit á við 3 ára strák. Vildi að svo væri ekki.
ICM skrifaði:Það kaupa nær öll stór fyrirtæki keppinauta sína ef þau geta, ég hélt að þú værir kapítalisti og fyndist það ekkert athugavert. Sony hefur keypt marga af sínum og borgar háar upphæðir til að hindra leiki í að vera gefnir út fyrir önnur kerfi, þeir eru engu betri.
Ef þú hefur ekki verið að fylgjast með þá eru Microsoft markaðsráðandi og eiga þessvegna ekki að mega það. Kapítalisimi er ekki það sama og fyrirtækja-anarkismi.
ICM skrifaði:Þýnir elskulegu Intel semur mikið við framleiðendur líka og hótar þeim svo þeir þora ekki að eiga viðskipti við AMD. Aðal starfsemi Intel er í Ísrael, landi sem þú vilt sjá þurkað útaf kortinu.
Intel ættu ekki að mega gera það. Sé ekki hvernig Ísrael kemur þessu við.
ICM skrifaði:Tölvur verða fullar af drasli? Einangra notendurnar og meina þeim rit aðgang að ýmsum svæðum og ekki hleypa hryðjuverkamönnum (óvitum sem halda að þeir séu 1337) í tölvuna þína þá ætti þetta ekki að vera neitt rosalegt vandamál.

Ekki fyrir mig, en á bókasöfnum, skólum, fyrirtækjum o.s.frv. er það oft ómögulegt.
ICM skrifaði:Ég veit ekki betur en að PDF sé lokaður staðall, samt er hann viðurkenndur, þökk sé Digital Millenium Copyright Act. það var handtekið evrópskan hakkara fyrir að búa til forrit sem hannaði PDF skrár. Hann var þó látin laus. Hefur einhver verið handtekin fyrir að hakka .doc? Flestir halda stöðlunum sínum lokuðum sama hvaða fyrirtæki það er.
Þótt það sé hægt að kenna DMCA um margt slæmt þá er ekki hægt að segja að það sé búið að gera pdf að lokuðum staðli. Það geta allir gert PDF skjöl án leyfis frá Adobe. Ég vill endilega fá að heyra meira um þennan hakkara.
ICM skrifaði:Þessi BSD kóði sem Microsoft eru ásakaðir um að hafa "stolið" er að fullu búið að skipta út.
Batnandi manni er best að lifa, ég hef hinsvegar litla trú á að Microsoft séu neitt betri núna, hafa ekki sýnt neitt sem bendir til þess.


Ég tek þessu ekkert persónulega ;)



Skjámynd

Mazi!
ÜberAdmin
Póstar: 1326
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Reputation: 1
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Mazi! » Þri 30. Maí 2006 00:40

Silly skrifaði:Afhverju hatarðu Microsoft? Hvað gerðu þeir þér? Og hvað gerði Sony fyrir þig sem gerir þá svona sérstaka í þínum augum?


hann er linux hnakki :lol:


Mazi -


hallihg
Gúrú
Póstar: 524
Skráði sig: Mið 17. Sep 2003 22:06
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Pósturaf hallihg » Þri 30. Maí 2006 00:50

Ég kaupi mér Nintendo Wii, eða Revolution, sem er mun þægilegra nafn og á rétt á sér! Gameplayið með þennan snilldar stýripinna verður ekkert nema snilld! Ég var alltaf playstation pjakkur, fyrir utan gömlu gömlu gráu nintendo þegar ég vissi ekki hvað Sony var, en ég ætla að fá mér Wii í haust. PSP er hins vegar á öðru sviði að mínu mati og hún er ennþá góðvinur minn.


count von count

Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6466
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 300
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Þri 30. Maí 2006 08:44

Gumol fékk gefins Sony VAIO tölvu með Windows XP í ROM flash minni, svo hann gat ekki sett inn annað stýrikerfi.. Hún lenti beint á haugunum... :lol:


"Give what you can, take what you need."


Saphira
Fiktari
Póstar: 55
Skráði sig: Fim 13. Apr 2006 17:54
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Saphira » Þri 30. Maí 2006 11:39

gnarr skrifaði:Gumol fékk gefins Sony VAIO tölvu með Windows XP í ROM flash minni, svo hann gat ekki sett inn annað stýrikerfi.. Hún lenti beint á haugunum... :lol:
:shock:




Rusty
Tölvutryllir
Póstar: 651
Skráði sig: Lau 31. Des 2005 16:42
Reputation: 0
Staðsetning: Eyjar
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Rusty » Þri 30. Maí 2006 16:56

Fyrst þegar ég prófaði PS barði ég alla með stýripinnanum í von þess að beygja meira.