Margmiðlunarcenter heimilisins..........


Höfundur
haugur
Nýliði
Póstar: 23
Skráði sig: Mið 08. Des 2004 15:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Margmiðlunarcenter heimilisins..........

Pósturaf haugur » Fim 09. Feb 2006 21:55

Hey allir, langaði bara að sýna serverinn sem ég smíðaði mér, til að halda utanum margmiðlunarsafn fjölskyldunar.

Byrjaði á því að kaupa mér skáp.......

Mynd

Svo kom ég fyrir í honum MSI móðurborði með 1700 Mhz örgjörva og gíg í minni, smellti svo stórri viftu í til að kæla góssið.....

Mynd

Kom fyrir massa powersupplyi

Mynd

Kom fyrir System HDD og USB 2.0 höbbum

Mynd

Útbjó hillu fyrir HDD og festingar fyrir fjöltengi og spennugjafa.....

Mynd

Allt komið á sinn stað, gígabit sviss í botninn til að allt virki nú smekklega, hillan og diskarnir á sínum stað og búið að kveikja á kjarnorkuverinu...

Mynd

Serverinn keyrir á Win 2003 og hefur ekki farið niður í 102 daga, semsagt frá því að hann var smíðaður.

Þarna geymi ég svo allt margmiðlunarefni heimilisins og spila í viðeigandi tæki.

Specs:
MSI móðurborð, 1700 Mhz celeron örri, 1 Gíg minni, 3 USB 2.0 höbbar, 80 Gíg system HDD, 1.4 TB af Maxtor IDE 7200 sn 8mb buffer diskum, slatti af Bytecc USB hýsingum, Linksys Gigabit Workgroup Switch......



Lifið heil.......
Síðast breytt af haugur á Fim 26. Okt 2006 22:56, breytt samtals 7 sinnum.




Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Fim 09. Feb 2006 22:01

Lagaðu nú myndalinkana svo að það sé hægt að smella á þá.




mjamja
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 301
Skráði sig: Mán 26. Des 2005 20:38
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf mjamja » Fim 09. Feb 2006 22:05

Veit Ekki skrifaði:Lagaðu nú myndalinkana svo að það sé hægt að smella á þá.


en þetta er nú alveg drulluflott hjá þér, hvaða dót ertu svo að nota til að spila allar þessar myndir?




Höfundur
haugur
Nýliði
Póstar: 23
Skráði sig: Mið 08. Des 2004 15:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf haugur » Fim 09. Feb 2006 22:08

er ekki að fatta hvernig þessir linkar virka


[img]slóð%20að%20mynd[/img] en myndin birtist ekki




Höfundur
haugur
Nýliði
Póstar: 23
Skráði sig: Mið 08. Des 2004 15:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf haugur » Fim 09. Feb 2006 22:33

Nota Pinnacle showcenter 200 og modað Xbox



Skjámynd

Genezis
Græningi
Póstar: 45
Skráði sig: Mið 24. Sep 2003 20:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Genezis » Fim 09. Feb 2006 22:46

haugur skrifaði:er ekki að fatta hvernig þessir linkar virka
[img]slóð%20að%20mynd[/img] en myndin birtist ekki


Kóði: Velja allt

[img]http://www.augnablik.is/data/500/1633byrjun-med.jpg[/img]

Virkar víst (hef ekki myndina því hún er fremur stór)?

Annars mæli með því að þú búir til thumbnails ef þú vilt hafa myndir. Mæli sterklega með Irfanview, mjög þægilegt í breytingar á myndum (töluvert léttara í keyrslu en forrit eins og Photoshop og örlítið ódýrar fyrir þá sem eru ekki steluþjófar :D): Klikk


Mynd

Kóði: Velja allt

[URL=upphaflega myndin][IMG]thumnailið[/IMG][/URL]


E.S. Stærðin á þessu thumbnaili (finnst "þumalll" eða einhver álíka íslenskum á orðinu hljóma fáránlega, ef einhver er með góða þýðingu er hún vel þegin) er 152x138 pixlar.
Síðast breytt af Genezis á Fim 09. Feb 2006 22:57, breytt samtals 3 sinnum.




Veit Ekki
Geek
Póstar: 808
Skráði sig: Þri 19. Apr 2005 22:05
Reputation: 0
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Pósturaf Veit Ekki » Fim 09. Feb 2006 22:48

Þetta er nokkuð flott. :)




Höfundur
haugur
Nýliði
Póstar: 23
Skráði sig: Mið 08. Des 2004 15:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf haugur » Fim 09. Feb 2006 22:54

Takk fyrir það, kíki betur á þetta á morgun.

Takk fyrir "Veit ekki". Ég var búin að ganga með þessa hugmynd í kollinum í lagann tíma, svo ákvað ég bara að drífa í þessu, og nota tækifærið og koma servernum bara út í bílskúr. Staðsetti hann svo á vegg við hliðina á opnanlegum glugga, þannig dregur hann kalt loft inn og allir eru happy.....




valur
Fiktari
Póstar: 88
Skráði sig: Fös 25. Okt 2002 00:52
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf valur » Lau 11. Feb 2006 13:23

Hvar fékkstu skápinn? Hefur alltaf langað í svona skáp... og já.. hvað kostaði hann?




Höfundur
haugur
Nýliði
Póstar: 23
Skráði sig: Mið 08. Des 2004 15:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf haugur » Lau 11. Feb 2006 13:42

Hann kostaði um 16.000 kall í Lagnir og Leiga Borgartúni.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6799
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Viktor » Lau 11. Feb 2006 13:44

Helvíti vel gert..!


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


CraZy
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1694
Skráði sig: Þri 02. Des 2003 15:44
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Pósturaf CraZy » Lau 11. Feb 2006 14:18

þetta er ótrúlega flott, en afhverju að hafa alla þessa flakkara, :? (eða er einhvað sem ég er ekki að fatta)




Dust
Ofur-Nörd
Póstar: 264
Skráði sig: Fim 30. Des 2004 15:54
Reputation: 0
Staðsetning: Iceland
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Dust » Lau 11. Feb 2006 14:27

Drullu flott hjá þér, góð hugmynd til að nýta sér :D

Eflaust afþví hann hefur átt alla þessa flakkara :?:


AMD64 - 3000+1.8ghz@2.4ghz. ASUS A8N-SLI Deluxe. 6800GT. OCZ Platinum EL PC-3200 1024 Dual. OCZ 450w ModStream Psu


CraZy
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1694
Skráði sig: Þri 02. Des 2003 15:44
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Pósturaf CraZy » Lau 11. Feb 2006 15:08

Dust skrifaði:
Eflaust afþví hann hefur átt alla þessa flakkara :?:

já måske :)




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Lau 11. Feb 2006 15:37

Mikklu þægilegra að hafa svona diska í flökkurum, td. ef það fer diskur þá er ekkert mál að taka hann úr sambandi án þess að taka allan serverinn niður.




CraZy
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1694
Skráði sig: Þri 02. Des 2003 15:44
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Pósturaf CraZy » Lau 11. Feb 2006 16:13

ég var aðalega að spá í peningalegu hliðinni, svona flakkarar eru ekkert rosalega ódyrir




Höfundur
haugur
Nýliði
Póstar: 23
Skráði sig: Mið 08. Des 2004 15:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf haugur » Lau 11. Feb 2006 16:59

Takk fyrir það, flakkara pælingin var margþætt, þarf ekki að hafa áhyggjur af powersupplyinu og það er mjög einfalt að skipta um disk án þess að taka serverinn niður, það er líka einfaldara að kæla þetta svona, flakkararnir eru úr áli sem leiðir hita vel. Þetta hafði líka með tengingar á móðurborði að gera, áður var ég með IDE raid spjald til að tengja þetta við, og það var eilíft vesen á því. Þetta hefur ekki slegið feilpúst í 104 daga.. ;)


Svo er þetta náttúrulega drullu cool

kk

Haugur




CraZy
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1694
Skráði sig: Þri 02. Des 2003 15:44
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Pósturaf CraZy » Lau 11. Feb 2006 17:22

haugur skrifaði:
Svo er þetta náttúrulega drullu cool

kk

Haugur

satt :D




DoRi-
</Snillingur>
Póstar: 1023
Skráði sig: Mið 20. Okt 2004 19:18
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf DoRi- » Lau 11. Feb 2006 20:16

hvað kostaði þetta svona ca?

en keep up the good job




Amything
Ofur-Nörd
Póstar: 221
Skráði sig: Fim 26. Sep 2002 11:16
Reputation: 0
Staðsetning: 101
Staða: Ótengdur

Pósturaf Amything » Lau 11. Feb 2006 20:18

Ég er nú bara impressed sko, þetta er ekkert fancy smancy, bara gerir sitt djobb og það vel.



Skjámynd

Pandemic
Stjórnandi
Póstar: 3760
Skráði sig: Fim 31. Júl 2003 15:25
Reputation: 123
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf Pandemic » Lau 11. Feb 2006 20:39

haugur skrifaði: það er líka einfaldara að kæla þetta svona, flakkararnir eru úr áli sem leiðir hita vel.

Tja við getum nú deilt um það ég er með flakkara og hann var úr áli og þótt hann væri mjög nálægt glugga var hann alltaf sjóðandi heitur og einn diskur dó í honum þó svo að glugginn sé á mjög hentugri staðsetningu varðandi loftflæði inn. Síðan boraði ég gat á flakkaran og riggaði viftu á hann og núna er hann kaldur eins og ísskápur. Diskarnir í kassanum mínum hafa t.d aldrei haft neitt svona hitavandamál þó svo að viftan framaná sé ekki alltaf í gangi.




Höfundur
haugur
Nýliði
Póstar: 23
Skráði sig: Mið 08. Des 2004 15:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf haugur » Lau 11. Feb 2006 20:43

Takk fyrir feedbackið.

Með kostnaðinn.... úffffff.

Þetta er erfitt að meta, er búin að vera að sanka að mér dóti í langann tíma, var með venjulegan server í kassi í mörg ár og tók íhlutina úr honum.

Móbóið, minnið og örrinn er kannski 15.000 kr virði.
Flakkararnir um 45.000 kall fullu verði, en hægt að fá mjög góðan afslátt ef maður kaupir svona marga.

Diskarnir eru svona 85.000 kall.
Switchinn um 15.000
Kassinn 16.000
Hillan 2.000
Höbbarnir 5,000
Aflgjafi og svona smádót 10.000

Þetta er kannski 200.000 svona cirka...
En hey þetta er bara svo gamann, þetta er mitt tóbak.......
Hér er mynd af skápnum lokuðum.

Mynd


Með kveðju, Haugur
Síðast breytt af haugur á Mán 07. Ágú 2006 12:02, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Lau 11. Feb 2006 20:45

mm.. ef flakkarinn er heitur, þá er það vegna þess að hitinn fór úr disknum yfir í flakkarann, nákvæmlega eins og hann á að gera. Hitinn hverfur ekki bara, hann verður einhvernveginn að fara burt.


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
haugur
Nýliði
Póstar: 23
Skráði sig: Mið 08. Des 2004 15:05
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf haugur » Lau 11. Feb 2006 20:45

Jamm, skal viðurkenna að þeir eru ekki kaldir diskarnir, ætla að bæta við 120mm viftu ofan á kassann til að dæla kulda beint niður á þá.

Hef aldrei misst disk 7.9.13

kk
haugur



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6496
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 315
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Sun 12. Feb 2006 03:07

komið á b2... :?


"Give what you can, take what you need."