Einstaklingur er með sveinspróf í rafvirkjun en er að vinna í öðru. Hvað má hann gera sem rafvirki? Má hann td setja upp ljós í heimahúsi og rukka fyrir það, auðvitað uppgefið (ekki verið að tala um skattsvik hér).
Þarf etv bakkupp frá meistara eða vera með rekstur sem skráður sem rafverktaki?
Sveinspróf í rafvirkjun, hvað má?
-
- Fiktari
- Póstar: 80
- Skráði sig: Mið 31. Ágú 2016 19:47
- Reputation: 13
- Staða: Ótengdur
Re: Sveinspróf í rafvirkjun, hvað má?
Meginreglan er sú skv. 8. gr. laganna að iðngreinar skuli ávallt reknar undir forstöðu meistara í skilningi 10. gr. laganna en sveinar sbr. 3. mgr. 12. gr. mega þó starfa sjálfstætt sem einyrkjar, sbr. dóm Hæstaréttar nr. 1964/59. Er alveg skýrt að sveinar mega ekki hafa aðra sveina eða ófaglærða í vinnu hjá sér við iðnina, sbr. dóm Héraðsdóms Austurlands frá 24. júlí árið 2000. Reglan er því skýr um að meistarar í iðngreinum einir mega reka starfsemi sem inniheldur fleiri en einn starfsmann sem starfa við iðnina. Sveinar mega þó vera einyrkjar.
http://www.rafis.is/orlofshus/57-loegfr ... enaearloeg
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16568
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2135
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Sveinspróf í rafvirkjun, hvað má?
Risadvergur skrifaði:Meginreglan er sú skv. 8. gr. laganna að iðngreinar skuli ávallt reknar undir forstöðu meistara í skilningi 10. gr. laganna en sveinar sbr. 3. mgr. 12. gr. mega þó starfa sjálfstætt sem einyrkjar, sbr. dóm Hæstaréttar nr. 1964/59. Er alveg skýrt að sveinar mega ekki hafa aðra sveina eða ófaglærða í vinnu hjá sér við iðnina, sbr. dóm Héraðsdóms Austurlands frá 24. júlí árið 2000. Reglan er því skýr um að meistarar í iðngreinum einir mega reka starfsemi sem inniheldur fleiri en einn starfsmann sem starfa við iðnina. Sveinar mega þó vera einyrkjar.
http://www.rafis.is/orlofshus/57-loegfr ... enaearloeg
Að því sögðu þá getur hver sem er stofnað *.ehf og verið í vinnu hjá því ásamt fleiri aðilum, meistararéttini eða ekki.
Þá er sveinninn tæknilega séð ekki með aðra í vinnu heldur launamaður hjá eigin félagi ásamt öðrum.
-
Höfundur - Geek
- Póstar: 836
- Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
- Reputation: 149
- Staða: Ótengdur
Re: Sveinspróf í rafvirkjun, hvað má?
hmm. þá geta 2 sveinar væntalega ekki verið saman með ehf sem selur rafvirkjaþjónustu?
Eru einhver takmörk á umfangi þess sem sveinn/einyrki má taka að sér?
Eru einhver takmörk á umfangi þess sem sveinn/einyrki má taka að sér?
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16568
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2135
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Sveinspróf í rafvirkjun, hvað má?
Hizzman skrifaði:hmm. þá geta 2 sveinar væntalega ekki verið saman með ehf sem selur rafvirkjaþjónustu?
Eru einhver takmörk á umfangi þess sem sveinn/einyrki má taka að sér?
Þeir geta það, hver ætti annars að stoppa þá? Sýslumaðurinn? neinei hann er upptekinn í þöggunarmálum.
Re: Sveinspróf í rafvirkjun, hvað má?
Risadvergur skrifaði:Meginreglan er sú skv. 8. gr. laganna að iðngreinar skuli ávallt reknar undir forstöðu meistara í skilningi 10. gr. laganna en sveinar sbr. 3. mgr. 12. gr. mega þó starfa sjálfstætt sem einyrkjar, sbr. dóm Hæstaréttar nr. 1964/59. Er alveg skýrt að sveinar mega ekki hafa aðra sveina eða ófaglærða í vinnu hjá sér við iðnina, sbr. dóm Héraðsdóms Austurlands frá 24. júlí árið 2000. Reglan er því skýr um að meistarar í iðngreinum einir mega reka starfsemi sem inniheldur fleiri en einn starfsmann sem starfa við iðnina. Sveinar mega þó vera einyrkjar.
http://www.rafis.is/orlofshus/57-loegfr ... enaearloeg
Og ef þú skoðar þetta en betur.
Iðnaðarlög skrifaði: 8. gr. [Iðngreinar, sem reknar eru sem handiðnaður og
löggiltar hafa verið í reglugerð1) [ráðherra],2) skulu ávallt
reknar undir forstöðu meistara. Um löggildingu skal hafa
samráð við [þann ráðherra er fer með fræðslumál]2) og landssamtök
meistara og sveina.]3)
Meistari skal bera ábyrgð á að öll vinna sé rétt og vel af
hendi leyst.
Rétt til iðnaðarstarfa í slíkum iðngreinum hafa meistarar,
sveinar og nemendur í iðngreininni. Heimilt er sérfélögum,
sveina- og meistarafélagi í sömu iðn að gera sín á milli
samning um það, að ráða megi ólært verkafólk til iðnaðarstarfa
undir stjórn lærðs iðnaðarmanns um ákveðinn stuttan
tíma í senn, þegar sérstaklega stendur á og brýn þörf er á
auknum vinnukrafti í iðninni. Einnig getur hver og einn unnið
iðnaðarstörf fyrir sjálfan sig og heimili sitt, enn fremur
fyrir opinbera stofnun eða fyrirtæki, sem hann vinnur hjá, ef
um minni háttar viðhald á eignum þessara aðila er að ræða.
Í sveitum, kauptúnum og þorpum með færri en 100 íbúa
mega óiðnlærðir menn vinna að iðnaðarstörfum.
Er sjálfur búin að standa í þessu og er í meistaranámi og er akkurat að læra um þessa hluti.
Mátt alveg vera sjálfstæður atvinnurekandi og með fyrirtæki en mátt aldrei rukka sem "Rafvirki" án þess að vera löggiltur eða með meistara sem sendir reikning fyrir þig og þú á hann.
Þannig í stuttum orðum er þetta bannað og það eru til fleiri staðir þar sem hægt að vitna í en þetta eru grunlög iðnaðar.
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Sveinspróf í rafvirkjun, hvað má?
Held að dúlli sé með þetta. Ég var sjálfur fljótur aftur í skóla eftir að fatta þetta
-
- /dev/null
- Póstar: 1476
- Skráði sig: Þri 01. Nóv 2011 13:42
- Reputation: 304
- Staðsetning: Rvk
- Staða: Ótengdur
Re: Sveinspróf í rafvirkjun, hvað má?
Dúlli skrifaði:Risadvergur skrifaði:Meginreglan er sú skv. 8. gr. laganna að iðngreinar skuli ávallt reknar undir forstöðu meistara í skilningi 10. gr. laganna en sveinar sbr. 3. mgr. 12. gr. mega þó starfa sjálfstætt sem einyrkjar, sbr. dóm Hæstaréttar nr. 1964/59. Er alveg skýrt að sveinar mega ekki hafa aðra sveina eða ófaglærða í vinnu hjá sér við iðnina, sbr. dóm Héraðsdóms Austurlands frá 24. júlí árið 2000. Reglan er því skýr um að meistarar í iðngreinum einir mega reka starfsemi sem inniheldur fleiri en einn starfsmann sem starfa við iðnina. Sveinar mega þó vera einyrkjar.
http://www.rafis.is/orlofshus/57-loegfr ... enaearloeg
Og ef þú skoðar þetta en betur.Iðnaðarlög skrifaði: 8. gr. [Iðngreinar, sem reknar eru sem handiðnaður og
löggiltar hafa verið í reglugerð1) [ráðherra],2) skulu ávallt
reknar undir forstöðu meistara. Um löggildingu skal hafa
samráð við [þann ráðherra er fer með fræðslumál]2) og landssamtök
meistara og sveina.]3)
Meistari skal bera ábyrgð á að öll vinna sé rétt og vel af
hendi leyst.
Rétt til iðnaðarstarfa í slíkum iðngreinum hafa meistarar,
sveinar og nemendur í iðngreininni. Heimilt er sérfélögum,
sveina- og meistarafélagi í sömu iðn að gera sín á milli
samning um það, að ráða megi ólært verkafólk til iðnaðarstarfa
undir stjórn lærðs iðnaðarmanns um ákveðinn stuttan
tíma í senn, þegar sérstaklega stendur á og brýn þörf er á
auknum vinnukrafti í iðninni. Einnig getur hver og einn unnið
iðnaðarstörf fyrir sjálfan sig og heimili sitt, enn fremur
fyrir opinbera stofnun eða fyrirtæki, sem hann vinnur hjá, ef
um minni háttar viðhald á eignum þessara aðila er að ræða.
Í sveitum, kauptúnum og þorpum með færri en 100 íbúa
mega óiðnlærðir menn vinna að iðnaðarstörfum.
Er sjálfur búin að standa í þessu og er í meistaranámi og er akkurat að læra um þessa hluti.
Mátt alveg vera sjálfstæður atvinnurekandi og með fyrirtæki en mátt aldrei rukka sem "Rafvirki" án þess að vera löggiltur eða með meistara sem sendir reikning fyrir þig og þú á hann.
Þannig í stuttum orðum er þetta bannað og það eru til fleiri staðir þar sem hægt að vitna í en þetta eru grunlög iðnaðar.
Þarna er ákveðinn greinarmunur.
Miðað við dóm hæstaréttar þá má viðkomandi vinna sem sveinn (einyrki) og gefa út reikninga fyrir sína vinnu sem slíkur.
Þó eru ákveðnar takmarkanir sem sveinn má gera í rafmagni og einnig líka á meistara.
Því þarna er hæsta stigið löggildingin og skiptist hún í nokkra flokka.
Einnig getur einungis einn aðili verið með löggildingu hjá viðkomandi aðila/fyrirtæki.