Að vinna í UT (CCNA)

Allt utan efnis

Höfundur
Maksx
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Þri 23. Júl 2019 13:10
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf Maksx » Þri 23. Júl 2019 13:48

Sælir

Smá spurning till ykkar sem er að vinna í IT, sèrstaklega krfisstjóra og netstjóra. Ér með enga menntun á þessu svíði og vinna við allt annað, en draumurinn er að komast í UT vinnu, alveg sama hvað til að byrja með, ekki einnu sinni launin sem skiptir máli, langar bara að byrja og vinna mér upp. Svo spurning hvar? Borga sig að fá vottanir eins og CCNA (finnst networking gaman) eða Microsoft gráðum, hjálpar það að fá vinnu?? Eða er það bara go to school or forget about it?

Íslenska er ekki móðurtungumál, afsakið fyrir villur :D




Tish
Ofur-Nörd
Póstar: 208
Skráði sig: Sun 07. Feb 2016 11:02
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf Tish » Þri 23. Júl 2019 14:10

Best að byrja að vinna á help desk til að koma sér inn í þetta og vera duglegur að læra með því. Taka svo CCNA, MCSA eða það sem þú vilt læra. Líka fínt að fara í kvöldnám í NTV eða Promennt. Þegar þú ert orðinn nokkuð öruggur í þessu, biðja þá yfirmann þinn um að koma þér í meira advanced verkefni og vinna þig þannig upp. Skoða líka vel Azure, Office 365 osfrv.




yamms
has spoken...
Póstar: 177
Skráði sig: Fim 12. Nóv 2009 23:18
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf yamms » Þri 23. Júl 2019 14:43

Mæli með að kíkja á video og fikta sig áfram í virtual umhverfi. Getur byrjað að kaupa video á www.udemy.com (hræódýrt), svo eru síður eins og https://www.pluralsight.com/ , CBT nuggets og alls konar fleira. Service Desk og/eða field service er fyrsta skref þar sem maður lærir helling af allskonar. Svo er hægt að færa sig ofar :)




Höfundur
Maksx
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Þri 23. Júl 2019 13:10
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf Maksx » Þri 23. Júl 2019 15:44

yamms skrifaði:Mæli með að kíkja á video og fikta sig áfram í virtual umhverfi. Getur byrjað að kaupa video á http://www.udemy.com (hræódýrt), svo eru síður eins og https://www.pluralsight.com/ , CBT nuggets og alls konar fleira. Service Desk og/eða field service er fyrsta skref þar sem maður lærir helling af allskonar. Svo er hægt að færa sig ofar :)


Er einmitt buin að kaupa afgang af CBT nuggets. Svo er hugmyndin að kaupa eitthvað Cisco bunað fyrir svona hands on experiance, samt svaka dýrt utaf sendigagjaldi á ebay t.d.
Svo Help Desk, hvar sækir um það stöðu og hvað heitir það á íslensku, ég sé nánast aldrei neina ráðningaauglýsingar tengt því.




Starman
has spoken...
Póstar: 167
Skráði sig: Þri 07. Okt 2008 01:40
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf Starman » Þri 23. Júl 2019 16:09

Taka námskeið hjá Promennt eða NTV og klára prófin, það eykur líkurnar gríðarlega að fá vinnu. Muna svo að aldrei að segja nei þegar þú ert beðinn um að skoða erfið mál, alltof margir sem eru hræddir við að taka á erfiðum málum og staðna í þekkingu.




Höfundur
Maksx
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Þri 23. Júl 2019 13:10
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf Maksx » Þri 23. Júl 2019 16:18

Starman skrifaði:Taka námskeið hjá Promennt eða NTV og klára prófin, það eykur líkurnar gríðarlega að fá vinnu. Muna svo að aldrei að segja nei þegar þú ert beðinn um að skoða erfið mál, alltof margir sem eru hræddir við að taka á erfiðum málum og staðna í þekkingu.


Eitthvað sérstok námskeið sem þú mælir með?




yamms
has spoken...
Póstar: 177
Skráði sig: Fim 12. Nóv 2009 23:18
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf yamms » Þri 23. Júl 2019 16:35

Maksx skrifaði:
yamms skrifaði:Mæli með að kíkja á video og fikta sig áfram í virtual umhverfi. Getur byrjað að kaupa video á http://www.udemy.com (hræódýrt), svo eru síður eins og https://www.pluralsight.com/ , CBT nuggets og alls konar fleira. Service Desk og/eða field service er fyrsta skref þar sem maður lærir helling af allskonar. Svo er hægt að færa sig ofar :)


Er einmitt buin að kaupa afgang af CBT nuggets. Svo er hugmyndin að kaupa eitthvað Cisco bunað fyrir svona hands on experiance, samt svaka dýrt utaf sendigagjaldi á ebay t.d.
Svo Help Desk, hvar sækir um það stöðu og hvað heitir það á íslensku, ég sé nánast aldrei neina ráðningaauglýsingar tengt því.


Þú þarft ekki endilega að kaupa búnað. Getur byrjað á virtual cisco búnaði. Finnur það á google, t.d. http://freeciscolab.com/

Svo er bara að skoða alfred.is, tvinna.is og fleiri síður :)



Skjámynd

russi
FanBoy
Póstar: 761
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 179
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Re: Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf russi » Þri 23. Júl 2019 16:44

helpdesk kallast yfirleit þjónustuborð, þjónustufulltrúi. Það er af og til verið að auglýsa það, gætir jafnvel þurft að byrja í þjónustuveri fyrir síma og færa svo í tækniþjónustu þar fljótlega



Skjámynd

Hargo
</Snillingur>
Póstar: 1069
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf Hargo » Mið 24. Júl 2019 10:38

Maksx skrifaði:Sælir

Smá spurning till ykkar sem er að vinna í IT, sèrstaklega krfisstjóra og netstjóra. Ér með enga menntun á þessu svíði og vinna við allt annað, en draumurinn er að komast í UT vinnu, alveg sama hvað til að byrja með, ekki einnu sinni launin sem skiptir máli, langar bara að byrja og vinna mér upp. Svo spurning hvar? Borga sig að fá vottanir eins og CCNA (finnst networking gaman) eða Microsoft gráðum, hjálpar það að fá vinnu?? Eða er það bara go to school or forget about it?

Íslenska er ekki móðurtungumál, afsakið fyrir villur :D


Getur líka byrjað að skoða verkstæðisvinnu á tölvuverkstæði. Það er oft ágætis grunnur fyrir áframhaldandi vinnu í IT.

Mæli klárlega með námskeiðunum hjá NTV og Promennt. Ef þú ert ekki með neina þekkingu á tölvudóti þá gæti verið gott að byrja í Comptia A+ námskeiðinu og halda svo áfram í CompTIA Network+. Þeir böndla þetta samt oft saman í svona námsbrautir, eins og þessa hér: http://www.ntv.is/is/kerfisnam/kerfisthjonusta. Svo geturðu haldið áfram í MCSA gráðurnar og CCNA ef þú hefur áhuga á routing og networking.

Þetta kostar vissulega en hjálpar þér klárlega að fá vinnu við þetta. NTV og Promennt eru svo oft í samstarfi við fyrirtæki og ráðningarstofur þannig að menn fá oft vinnu áður en þeir klára námskeiðin. Fyrirtækin eru einnig oft tilbúin að kosta þá undir þig áframhaldandi námskeiðsgjöld.

Ef þú ætlar að byrja í símsvörun á helpdeski eða þjónustuborði í IT mundu þá að vinnuveitendur horfa oft miklu meira í hvernig viðmótið þitt er heldur en þekkinguna. Ef þú ert kurteis, þjónustulundaður og hefur áhuga á starfinu þá ertu miklu líklegri til að verða ráðinn heldur en einhver know-it-all þumbi sem veit miklu meira en þú en er með glataða þjónustulund. Það er mun auðveldara að þjálfa þig upp í gráðum og þekkingu fyrir fyrirtækið heldur en að kenna þumbanum mannasiði og þjónustulund.

Þetta er allavega mín reynsla. Gangi þér vel :)



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7585
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1193
Staða: Tengdur

Re: Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf rapport » Mið 24. Júl 2019 10:53

Hargo skrifaði:Ef þú ætlar að byrja í símsvörun á helpdeski eða þjónustuborði í IT mundu þá að vinnuveitendur horfa oft miklu meira í hvernig viðmótið þitt er heldur en þekkinguna. Ef þú ert kurteis, þjónustulundaður og hefur áhuga á starfinu þá ertu miklu líklegri til að verða ráðinn heldur en einhver know-it-all þumbi sem veit miklu meira en þú en er með glataða þjónustulund. Það er mun auðveldara að þjálfa þig upp í gráðum og þekkingu fyrir fyrirtækið heldur en að kenna þumbanum mannasiði og þjónustulund.


Þekki þetta af reynslu og þetta er lögmál, stóru mistökin sem þjónustuver gera er að ráða einhvern sem er neikvæður "know it all" sem dregur úr öðrum í teyminu.

Að ráða einhvern með bros sem nennir að hreyfa sig og er með metnað fyrir góðri þjónustu er key



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3174
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 546
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf Hjaltiatla » Mið 24. Júl 2019 14:51

Mæli með þessari leið - Kaupir Premium áskrift hjá ITpro.tv og ferð í gegnum eftirfarandi námskeið (Sum stéttarfélög greiða niður online námsefni og próftökugjald)

CompTIA A+ Core 2019 (220-1001/220-1002) - Námsefni og fara í gegnum virtual labs
CompTIA Network+ (N10-007) - Námsefni og fara í gegnum virtual labs
CompTIA Linux+ (XK0-004) - Námsefni og fara í gegnum virtual labs og taka próf í promennt eða NTV
CompTIA Server+ - Námsefni og fara í gegnum virtual labs
Cisco CCENT - Námsefni og fara í gegnum virtual labs og taka próf í Promennt eða NTV
Cisco CCNA - Námsefni og og fara í gegnum virtual labs og taka próf í Promennt eða NTV
Microsoft Office 365 - 70-346 - fara í gegnum námsefni
Microsoft Office 365 - 70-347 - fara í gegnum námsefni
Microsoft Azure (AZ-103) - Fara í gegnum námsefni
MCSA Windows Server 2016 - 70-740 - námsefni og fara í gegnum virtual labs og taka próf í promennt eða NTV
MCSA Windows Server 2016 - 70-741 - námsefni og fara í gegnum virtual labs og taka próf í promennt eða NTV
MCSA Windows Server 2016 - 70-742 - námsefni og fara í gegnum virtual labs og taka próf í promennt eða NTV
VMware VCP65-DCV (Updated for vSphere 6.7) - fara í gegnum námsefni

Getur sparað þér námskeiðsgjöldin og keypt þessa vél af mér og sett upp homelab og farið og fikta og fengið hands on reynslu.

https://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=11&t=79189&p=690827#p690827


Just do IT
  √


Höfundur
Maksx
Nýliði
Póstar: 11
Skráði sig: Þri 23. Júl 2019 13:10
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: Að vinna í UT (CCNA)

Pósturaf Maksx » Mið 24. Júl 2019 17:33

Hargo skrifaði:
Getur líka byrjað að skoða verkstæðisvinnu á tölvuverkstæði. Það er oft ágætis grunnur fyrir áframhaldandi vinnu í IT.

Mæli klárlega með námskeiðunum hjá NTV og Promennt. Ef þú ert ekki með neina þekkingu á tölvudóti þá gæti verið gott að byrja í Comptia A+ námskeiðinu og halda svo áfram í CompTIA Network+. Þeir böndla þetta samt oft saman í svona námsbrautir, eins og þessa hér: http://www.ntv.is/is/kerfisnam/kerfisthjonusta. Svo geturðu haldið áfram í MCSA gráðurnar og CCNA ef þú hefur áhuga á routing og networking.

Þetta kostar vissulega en hjálpar þér klárlega að fá vinnu við þetta. NTV og Promennt eru svo oft í samstarfi við fyrirtæki og ráðningarstofur þannig að menn fá oft vinnu áður en þeir klára námskeiðin. Fyrirtækin eru einnig oft tilbúin að kosta þá undir þig áframhaldandi námskeiðsgjöld.

Ef þú ætlar að byrja í símsvörun á helpdeski eða þjónustuborði í IT mundu þá að vinnuveitendur horfa oft miklu meira í hvernig viðmótið þitt er heldur en þekkinguna. Ef þú ert kurteis, þjónustulundaður og hefur áhuga á starfinu þá ertu miklu líklegri til að verða ráðinn heldur en einhver know-it-all þumbi sem veit miklu meira en þú en er með glataða þjónustulund. Það er mun auðveldara að þjálfa þig upp í gráðum og þekkingu fyrir fyrirtækið heldur en að kenna þumbanum mannasiði og þjónustulund.

Þetta er allavega mín reynsla. Gangi þér vel :)


Ég á nú smá þekkingu á tölvum, svona smá af óllu hehe eins og setja upp styriskerfi, linux, buin að fikta í win server, lært smá C og SQL svo bara les mikið.. en já ég hef einmitt sama í huga, varðandi nám hjá þeim utaf samstrafi og margar sögur hverning menn fengu vinnu eftir námið. Samt því miður á ég enga efni til að fara í half milljón nám í haust reyni kannski eftir jól, myndir þú mæla með eitthverju til að læra þangað til eða kannski eitthverjum gráðum(??? Certifications) til að reyna að ná í, svona not to waste a time?