Ég missti nú ekki bílprófið en hélt ég væri að fara gera það og brást þar af leiðandi skjótt við. Ég var semsagt tekinn fyrir hraðaakstur í annað skiptið með bráðabirgðaskírteinið og fékk þar fjórða punktinn, sem skv mínum skilning á ökubókinni ætti að svipta mig prófi en svo kom í ljós að þá ætti ég aðeins að fá áminningu en á 7unda punkt yrði það tekið.
Annars fór ég á námskeið hjá 17.is. Fékk uppls um að það væri best að fara á þetta námskeið, ef þú ert ekki búinn að því, og taka svo upp bæði bóklega sem og verklega prófið aftur. Sá sem sér um námskeiðið hjá 17.is er mjög almennilegur maður og talaði aldrei niður til neins sem var á staðnum þó hann lét það vel í ljós að það sem við gerðum allir var rangt. Námskeiðið var frábært í alla staði, eftir námskeiðið fékk ég að heyra að ég hefði ekkert þurft að fara á það en þrátt fyrir ágætan kostnað á því sá ég ekkert eftir námskeiðinu þar sem ég þroskaðist ótrúlega sem ökumaður.
http://17.is/akstursbann/Einnig skilst mér að það sé líka svona námskeið í ökuskólanum í mjódd en mig minnir að það hafi kostað 60þúsund þegar ég fór.
Gangi þér vel að fá prófið og vonandi hefur þú eitthvað lært af þessu, lofa þér að námskeiðið hjá 17.is verður miklu betra en þú býst við, einnig frábær fyrilestur í seinasta tímanum!