Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Allt utan efnis
Skjámynd

valdij
Ofur-Nörd
Póstar: 295
Skráði sig: Fim 03. Sep 2009 15:31
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Pósturaf valdij » Mið 20. Okt 2010 12:27

dori skrifaði:Málið er náttúrulega að fara á Búlluna og fá sér steikarborgara (eða ef maður er svangur skella í tvöfaldan, það er ekki svo dýrt) með bearnaise og sleppa grænmetinu. Þá er þetta bara nautalundir með bearnaise sem maður er að borða :D

Fabrikkan er allt í lagi en sá hérna sem hélt að það væri ódýrara en Búllan er aðeins að misskilja. Ég hef smakkað Morthens, Alíbaba (eða eitthvað) og Neyðarlínuna þar. Allt fínir borgarar og smá tilbreyting en ekkert sérstakir og kókið þeirra er bæði goslaust og óbragð af því.

Vitabarinn er líka æði, tvöfaldur ostborgari með beikoni eða bara beikonborgari. Það klikkar ekki.

Svo eru þessir staðir eins og Hressó, Hvíta perlan, Prikið, Vegamót etc. Það er allt fínt en oftar en ekki frekar dýrt og ekkert rosalega sérstakt. En samt fín tilbreyting frá þessum klassísku stöðum. En ég skil ekki þá sem fíla American Style í drasl, þunnt og ómerkilegt kjöt og sinnepssósa, hvað er málið? Þetta bragðast bara eins og sóma samloka.


Tilboð Aldarinnar á Búllunni = 1290kr
Fabrikkuborgari m/frönskum og gos er 1.490

Finnst hamborgararnir mun betur útilátnir en borgararnir á tomma, enda er að öllum líkindum meiri matur í hamborgurunum á Fabrikkunni en tomma allavega er enginn að fara segja mér þegar þú tekur litla tommaborgarann og setur hliðiná fabrikku-burger að þetta sé sama magn af mat. Ég er alveg huge fabrikku-fan einmitt útaf hvað þetta er mikil tilbreyting og hvað ég bara alltaf fengið, ásamt þeim sem ég hef komið með, alveg fáránlega góða hamborgara. En með gosið segi ég bara -wtf- aldrei lent í því í þau (alltöf) mörgu skipti sem ég hef farið þangað, eða heyrt um að gosið sé eitthvað skrýtið þarna. Hlýtur að vera þú hafir bara akkúrat lent á glasi þegar kúturinn hafi verið að klárast. Eina slæma sem ég hef um fabrikkuna að segja er að stundum gleyma þau að taka hjá manni pöntun og maður þarf að kalla á einhvern til að fá að láta taka niður pöntunina sína hefur gerst fyrir mig oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.

En eins og hefur komið fram er Morthens, Húsdýragarðurinn, Fabrikkuborgari m/ beikoni, Lamborgarinn og Forsetinn allir saman mjög góðir. Fabrikkusósan finnst mér snilld, og Lamborgarinn kemur alveg virkilega á óvart hversu góður hann er.

American style er ég hinsvegar sammála um sé drasl, ömurlegt kjöt og orðið of dýrt. Vitabar er eins og þú segir líka það sem var eitt sinn "falin perla" en að sjálfsögðu spurst út hversu gott þetta er. Þar færðu alvöru hamborgara.



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Pósturaf dori » Mið 20. Okt 2010 12:36

valdij skrifaði:En með gosið segi ég bara -wtf- aldrei lent í því í þau (alltöf) mörgu skipti sem ég hef farið þangað, eða heyrt um að gosið sé eitthvað skrýtið þarna. Hlýtur að vera þú hafir bara akkúrat lent á glasi þegar kúturinn hafi verið að klárast.

Neineineinei, ég hef farið þarna fjórum sinnum með löngu millibili og í öll skiptin var þetta svona. Við vorum líka 4-6 saman og fengum allir svona. Svo báðum við um nýtt gos einu sinni því að það var óbragð af því og goslaust og þá kom gellan aftur með jafn vont kók. Svo er starfsfólkið þarna stundum svolítið clueless, ég spurði hvort þeir væru með gos í dós og þegar svarið var já bað ég um þannig svo kemur gæinn með kók í gleri. Einhverntíma var líka einhver ruglingur með pöntun svo að einn okkar fékk borgarann á eftir hinum.




capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Pósturaf capteinninn » Mið 20. Okt 2010 14:29

Fer helst á Tomma og fæ mér þá annaðhvort bara tilboð aldarinnar með lítilli sósu eða þá tilboð aldarinnar og auka barnaborgara með lítilli sósu, gourmet shit.
Annars fer ég líka stundum á American style og fæ mér þá alltaf Heavy Special, hinir eru of litlir og aumingjalegir.

Hef farið einu sinni á Fabrikkuna og fannst það fínt en er ekki ennþá þessi fáránlega röð þarna?

Annars hef ég aldrei prófað Vitaborgara sem er alveg hræðilegt en ég ætla að laga það núna á eftir




lethal3
Græningi
Póstar: 45
Skráði sig: Sun 25. Júl 2010 21:15
Reputation: 0
Staðsetning: Ísland
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Pósturaf lethal3 » Mið 20. Okt 2010 14:37

Skella sér uppí kópavoginn, Smiðjuvegur, rauð gata minnir mig.

Þar finnuru Hamborgarasmiðjuna. déskotans rosalegur burger þar


Cooler Master HAF 932/m led viftum - Intel Core i7-930 @ 3.0GHz - Gigabyte X58A-UD3R - 2x SLi NVIDIA GeForce GTX470 1280MB - Cooler Master Hyper N520 - Mushkin 6x4GB DDR3 1600MHz Blackline - Crucial RealSSD 128GB - 8x 1TB diskar - 2xSamsung P2770H 27" - Sennheiser HD500

Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Pósturaf Glazier » Mið 20. Okt 2010 14:39

Vitaborgari (við hliðiná Brodway) sjúklega góðir og franskarnar ekkert síðri :!:


Tölvan mín er ekki lengur töff.


Einarr
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 347
Skráði sig: Fös 13. Feb 2009 17:23
Reputation: 0
Staðsetning: hérna
Staða: Ótengdur

Re: Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Pósturaf Einarr » Mið 20. Okt 2010 15:09

Skrítið að enginn hefur nefnt íslenska barinn, frábær burger þar



Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3206
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Reputation: 61
Staða: Ótengdur

Re: Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Pósturaf Frost » Mið 20. Okt 2010 15:20

Hefur enginn hérna minnst á Pítuna? Alveg virkilega góðir hamborgarar þar og er rétt hjá Ruby Tuesday, það er gott ef það er biðröð þar :sleezyjoe


Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól


biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Pósturaf biturk » Fim 21. Okt 2010 11:42

Daz skrifaði:
Zpand3x skrifaði: ó-eldaðir hamborgarar eru góðir


Ó eldaðir hamborgarar eru hættulegir. Margir sem átta sig ekki á því að þó að eldrautt nautakjöt sé í fínu lagi, þá er eldrautt nautahakk það ekki.



do tell?


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Skjámynd

Sydney
1+1=10
Póstar: 1108
Skráði sig: Lau 29. Mar 2008 19:26
Reputation: 55
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Pósturaf Sydney » Fim 21. Okt 2010 11:48

McDonalds motherfuckers!

No wait...


Gigabyte X570 Aorus Ultra | Ryzen 9 5900X | Corsair Vengeance RGB Pro 32GB 3200MHz CL16 | Fractal Design Define S
Aorus Xtreme RTX 2080 Ti | 500GB Samsung 980 Pro | Corsair AX860 | ROG Swift PG279Q
Ducky YOTM | Glorious Model O | Sennheiser HD650 | Thrustmaster Warthog HOTAS
Thinkpad X1 Yoga 2nd Gen OLED

Skjámynd

AndriKarl
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 346
Skráði sig: Sun 01. Nóv 2009 22:46
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Pósturaf AndriKarl » Fim 21. Okt 2010 12:00

Frost skrifaði:Hefur enginn hérna minnst á Pítuna? Alveg virkilega góðir hamborgarar þar og er rétt hjá Ruby Tuesday, það er gott ef það er biðröð þar :sleezyjoe

Satt, verðum að fara aftur! :)



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3835
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 157
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Góðir hammarar í miðbæ reykjavíkur ?

Pósturaf Daz » Fim 21. Okt 2010 12:37

biturk skrifaði:
Daz skrifaði:
Zpand3x skrifaði: ó-eldaðir hamborgarar eru góðir


Ó eldaðir hamborgarar eru hættulegir. Margir sem átta sig ekki á því að þó að eldrautt nautakjöt sé í fínu lagi, þá er eldrautt nautahakk það ekki.



do tell?

Alveg jafn líklegt að finna saurgerla inn í hamborgara og utan á.