Ég sendi hér inn póst ekki fyrir svo löngu síðan um vandamál sem tengdist skjákortinu mínu. Pósturinn hét "Vandamál að spila tölvuleiki" og þar hafði ég ekki skjáskot af vandamálinu. En nú hafa tímarnir breyst og ég náði skjáskoti af þessu helv***.
Hér er það:
http://kasmir.hugi.is/kasmir/umsjon/synamynd.php3?kt=080486-2789&myndnafn=atierror.GIF
Áður en ég fer að hringja í fyrirtækið sem seldi mér þetta langar mig að reyna að kippa þessu í lag með ykkar hjálp Eins og ég les útúr þessum error þá kemur þetta ekkert vélbúnaðnum við, en þar sem ég er enginn snillingur í ensku þá væri frábært að fá smá aðstoð við að skilja þetta frá A-Ö.
Þarna stendur eitthvað með driver version, ég er búinn að prufa marga drivera og það er ekkert skárra.
Einnig stendur eitthvað AGP settings, það er still á 8x.. ekkert annað sem mér dettur í hug.
Og graphics frame buffer size, hmmm.. veit ekki baun hvað er verið að meina.
Þetta mun vera lokaúrræði þangað til ég hendi kortinu í ruslið og kveiki í því.. neinei segi svona
Ef einhver kannast við errorinn eða getur veitt mér einhverjar gagnlegar upplýsingar um sambandi við hann, ekki hika við að senda inn svar.
( Skjákortið er að sjá í upplýsingunum hér að neðan )
Takk fyrir.
ATI Error
-
- Vaktari
- Póstar: 2730
- Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
- Reputation: 159
- Staða: Ótengdur
-
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 59
- Skráði sig: Fim 27. Mar 2003 22:50
- Reputation: 0
- Staðsetning: Fáskrúðsfjörður
- Staða: Ótengdur
SolidFeather skrifaði:Prófa að taka VPU recover af? Það á að vera eitthverstaðar í skjákort properties.
Ok takk, gerði þetta og errorinn er allavega farinn =)
En veistu eitthvað hvað þetta VPU recover gerir?
MSI 865PE NEO2-PFISR - Intel P4 3.0 Ghz Perscott - Corsair ValueSelect 2*512mb DDR400 - 200gb WD - Radeon x800 256mb xt - Chieftec Dragon, hvítur.