Val á mechanical lyklaborði

Skjámynd

Höfundur
dori
Besserwisser
Póstar: 3608
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf dori » Fim 01. Des 2011 17:06

Ég hef verið að gæla smá við þá hugmynd að vera góður við mig þessi jól og kaupa mér mechanical lyklaborð. En þar sem þetta kostar fúlgur þá vil ég helst "velja rétt" í fyrstu tilraun. Það sem mig langar mest í eru "bláir" takkar þar sem ég kem til með að nota það mest í vélritun eða slíkt. Hins vegar er líka eitthvað sem mig langar að skoða hvort "brúnir" takkar væru hentugri sem málamiðlun til að eiga möguleikann á að spila tölvuleiki. Maður gerir svosem ekki mikið af því þannig að það er kannski algjör vitleysa í mér.

Svo er það tegundin. Filco/Leopold/Das Keyboard... Er einhver hérna sem á svona eða hefur einhverja þekkingu á þessum merkjum? Mig langar í tenkeyless, hitt tekur bara pláss og er eitthvað sem ég nota ekkert. Vil helst svart og svo væri það eitthvað sem ég hefði alls ekkert á móti að hafa það með auðum tökkum (kannski litaða auða takka fyrir wasd/esc).

Að lokum væri það svo hvar gott væri að kaupa það? Hvað myndi skilja minnsta gatið eftir í veskinu mínu m.v. hvað ég fæ.

Ég er svolítið að velta fyrir mér þessu hérna. Allar athugasemdir eru vel þegnar. Helst frá fólki sem hefur eitthvað skoðað þessi mál eða á svona lyklaborð sjálft.

Skjámynd

ZoRzEr
/dev/null
Póstar: 1404
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
Reputation: 42
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf ZoRzEr » Fim 01. Des 2011 17:33

Helstu upplýsingarnar sem ég hef aflað mér eru héðan : http://www.overclock.net/t/491752/mecha ... oard-guide

Hef sjálfur verslað tvisvar við The Keyboard Company og hef ekkert nema gott um þá að segja. Fékk þaðan eitt tenkeyless Cheery blue tökkum sem ég gaf föður mínum. Hann elskar það lyklaborð. Svo á ég annað sem ég nota ekki sjálfur lengur.

Topp náungar í alla staði.

13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini

Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf gardar » Fim 01. Des 2011 18:08

Ef þú ætlar að gera þetta rétt og vel, þá verslarðu þér svona og venur þig svo á dvorak http://www.kinesis-ergo.com/contoured.htm

schaferman
FanBoy
Póstar: 742
Skráði sig: Sun 09. Des 2007 01:18
Reputation: 0
Staðsetning: vestfirðir
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf schaferman » Fim 01. Des 2011 19:42

uss,,,,,er farinn að halda að gömlu keytronic lykklaborðin séu bara best

http://kristalmynd.weebly.com/

Skjámynd

Höfundur
dori
Besserwisser
Póstar: 3608
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf dori » Fim 01. Des 2011 22:15

ZoRzEr skrifaði:Helstu upplýsingarnar sem ég hef aflað mér eru héðan : http://www.overclock.net/t/491752/mecha ... oard-guide
Hef einmitt lesið þetta en kannski ekki stúderað þetta svo mikið fyrir utan það.

ZoRzEr skrifaði:Hef sjálfur verslað tvisvar við The Keyboard Company og hef ekkert nema gott um þá að segja. Fékk þaðan eitt tenkeyless Cheery blue tökkum sem ég gaf föður mínum. Hann elskar það lyklaborð. Svo á ég annað sem ég nota ekki sjálfur lengur.

Topp náungar í alla staði.
Eru þeir ódýrir m.v. aðra? Myndirðu segja að þetta væri kannski bara ágætlega valið ef ég tæki þetta borð sem ég linkaði í?

gardar skrifaði:Ef þú ætlar að gera þetta rétt og vel, þá verslarðu þér svona og venur þig svo á dvorak http://www.kinesis-ergo.com/contoured.htm
Það eru kostir og gallar. Ég vélrita ekki svo svakalega mikið þannig að ég veit ekki hversu miklu máli það skiptir. Dvorak er pæling sem maður skoðar kannski...

En ég vil eiginlega ekki taka eitthvað funky. Þó svo að þetta sé mikið betra. Ég hef heyrt frá fólki sem hefur vanið sig á svona að það sé ömurlegt að skrifa á allt annað. Er það eitthvað gott að vera með svona á 1/3 af þeim stöðum sem maður notar tölvu af einhverju viti og líða svo eins og aðkomumanni hina 2/3?

Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf gardar » Fös 02. Des 2011 00:06

dori skrifaði:

Gætir náttúrulega sleppt því að fara alla leið og tekið annað hvort af þessum:
http://www.kinesis-ergo.com/max-spec.htm
http://www.kinesis-ergo.com/freestyle.htm

braudrist
</Snillingur>
Póstar: 1051
Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
Reputation: 58
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf braudrist » Fös 02. Des 2011 00:09

Razer Blackwidow og SteelSeries 6Gv2 / 7G eru sennilega tvo bestu gaming mechanical keyboard og hafa fengið frábæra dóma. Steelseries borðin eru stílhrein og með engin svona LED ljós eða aukatökkum fyrir þá sem fíla það ekki. Hins vegar er Blackwidow með bláum LED ljósum og aukaökkum. Svo hef ég heyrt góða hluti um Das Keyboard líka.

Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m

Skjámynd

Höfundur
dori
Besserwisser
Póstar: 3608
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf dori » Fös 02. Des 2011 00:29

gardar skrifaði:
dori skrifaði:
gardar skrifaði:Ef þú ætlar að gera þetta rétt og vel, þá verslarðu þér svona og venur þig svo á dvorak http://www.kinesis-ergo.com/contoured.htm
Það eru kostir og gallar. Ég vélrita ekki svo svakalega mikið þannig að ég veit ekki hversu miklu máli það skiptir. Dvorak er pæling sem maður skoðar kannski...

En ég vil eiginlega ekki taka eitthvað funky. Þó svo að þetta sé mikið betra. Ég hef heyrt frá fólki sem hefur vanið sig á svona að það sé ömurlegt að skrifa á allt annað. Er það eitthvað gott að vera með svona á 1/3 af þeim stöðum sem maður notar tölvu af einhverju viti og líða svo eins og aðkomumanni hina 2/3?

Gætir náttúrulega sleppt því að fara alla leið og tekið annað hvort af þessum:
http://www.kinesis-ergo.com/max-spec.htm
http://www.kinesis-ergo.com/freestyle.htm

Hmm... Það er eitthvað til að skoða. Kannski verður þetta seinbúin jólagjöf :uhh1
Eru þetta samt mechanical takkar? Það er ekkert tekið fram á síðunni hvað það varðar.

braudrist skrifaði:Razer Blackwidow og SteelSeries 6Gv2 / 7G eru sennilega tvo bestu gaming mechanical keyboard og hafa fengið frábæra dóma. Steelseries borðin eru stílhrein og með engin svona LED ljós eða aukatökkum fyrir þá sem fíla það ekki. Hins vegar er Blackwidow með bláum LED ljósum og aukaökkum. Svo hef ég heyrt góða hluti um Das Keyboard líka.
Mig langar ekki í "gaming" lyklaborð. Þessi eru væntanlega með linear tökkum, ég hef meiri áhuga á smá feedbacki. Prufaði Cherry Black borðið í Kísildal og fannst það eitthvað... "meh" kannski betra en rubber dome en fílingurinn var ekki svo frábrugðinn.

En varðandi merki á hefðbundnum mechanical borðum. ZoRzEr, hvaða týpur er það sem þú hefur keypt?

Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1572
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Reputation: 46
Staðsetning: Breiðholt
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf Benzmann » Fös 02. Des 2011 01:22

getur kíkt í Örtækni, þeir eru góðir á þessu

http://www.ortaekni.is/hug-og-velbunadur/ymsar-vorur/

Mynd

CPU: Intel i9 13900K | MB: Asus ROG Strix Z790-E Gaming| GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair 7000D| PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Kingston Fury 5600mhz 64gb |Storage: 1x Samsung 990Pro 4Tb (OS)1x Samsung 980Pro 2Tb| OS: Windows 11 Enterprise E5 64bit

Skjámynd

ZoRzEr
/dev/null
Póstar: 1404
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
Reputation: 42
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf ZoRzEr » Fös 02. Des 2011 09:02

dori skrifaði:En varðandi merki á hefðbundnum mechanical borðum. ZoRzEr, hvaða týpur er það sem þú hefur keypt?

Hef sjálfur átt eitt Razer BlackWidow borð, fílaði það ekki alveg nógu vel. Aðalega letrið á tökkunum og það var aðeins og flimsy.
Svo er ég búinn að vera fylgjast með Corsair Vengeance K60 borðinu, en það er meira gaming borð, sem hentar mér betur.
Á eitt Filco Tenkeyless með White Apls switch'um, þeir eru of stífir fyrir minn svekk, mun erfiðara að skrifa rétt og hratt á það miðað við önnur cherry-mx borð. Það keypti ég af thekeyboardco.com. Kostaði 65 pund + sendingarkostnaður á sínum tíma rétt eftir hrun, var komið heim á rúmann 16-17þ íslenskar. Þeir eru hættir að selja það.
Svo hef ég keypt eitt full size Filco Majestouch-2 með blue-mx switch'um. Það var hávært en alveg hrikalega gott að skrifa á. Pabbi notar það daglega í vinnunni og er orðinn hraðari en ég að skrifa og hann er 44' árgerð. Það var einnig keypt af thekeyboardco.com á 95 pund.

Varðandi að hafa tenkeyless lyklaborð þá er stærðinn frábær, en stundum frekar pirrandi að vera ekki með numpad. Í dag myndi ég einungis kaupa full size, bara upp á þægindin að gera.

Það er frekar erfitt að útskýra hvernig er að nota mekaníst lyklaborð, en munurinn er mun meiri en manni grunar. Dúndraðu fleiri spurningum á mig ef þú villt. Getur líka fengið að koma við og prófa borðið mitt heima frá Filco. Fundið hvernig White Alps takkarnir eru og séð build quality.

13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini

Skjámynd

Höfundur
dori
Besserwisser
Póstar: 3608
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf dori » Fös 02. Des 2011 10:19

ZoRzEr skrifaði:Hef sjálfur átt eitt Razer BlackWidow borð, fílaði það ekki alveg nógu vel. Aðalega letrið á tökkunum og það var aðeins og flimsy.
Svo er ég búinn að vera fylgjast með Corsair Vengeance K60 borðinu, en það er meira gaming borð, sem hentar mér betur.
Ég tek eitt og eitt LAN með félögunum en spila ekkert þess á milli þannig að gaming borð væri hálf kjánalegt fyrir mig. Frekar að taka t.d. brown frekar en blue ef blue eru mun verri fyrir leikjaspilun og brown næstum því jafn góðir fyrir vélritun.

ZoRzEr skrifaði:Á eitt Filco Tenkeyless með White Apls switch'um, þeir eru of stífir fyrir minn svekk, mun erfiðara að skrifa rétt og hratt á það miðað við önnur cherry-mx borð. Það keypti ég af thekeyboardco.com. Kostaði 65 pund + sendingarkostnaður á sínum tíma rétt eftir hrun, var komið heim á rúmann 16-17þ íslenskar. Þeir eru hættir að selja það.
Svo hef ég keypt eitt full size Filco Majestouch-2 með blue-mx switch'um. Það var hávært en alveg hrikalega gott að skrifa á. Pabbi notar það daglega í vinnunni og er orðinn hraðari en ég að skrifa og hann er 44' árgerð. Það var einnig keypt af thekeyboardco.com á 95 pund.

Varðandi að hafa tenkeyless lyklaborð þá er stærðinn frábær, en stundum frekar pirrandi að vera ekki með numpad. Í dag myndi ég einungis kaupa full size, bara upp á þægindin að gera.

Það er frekar erfitt að útskýra hvernig er að nota mekaníst lyklaborð, en munurinn er mun meiri en manni grunar. Dúndraðu fleiri spurningum á mig ef þú villt. Getur líka fengið að koma við og prófa borðið mitt heima frá Filco. Fundið hvernig White Alps takkarnir eru og séð build quality.
Ég er eiginlega búinn að afmarka þetta niður í bláir eða brúnir cherry, myndi samt skoða annað en það er erfitt þegar maður getur ekki prufað þetta allt hlið við hlið. Ég er bara svo vanur því að vera ekki með tenkey (er með svona ömurlegt apple chiclet lyklaborð) og það háir mér lítið. Það væri spurning að fá sér líka tenkeys (þetta filco cherry brown eða bara rubber dome) og geta haft þá staka þegar maður þarf.

Svo er líka spurning varðandi hávaða. Cherry brown er ekki jafn hávært og blue er það ekki? Það er spurning hvort maður taki það inní reikinginn...

Ég fæ kannski að kíkja á þetta hjá þér við tækifæri til að prufa... Sjáum til :)

jakobs
Fiktari
Póstar: 85
Skráði sig: Sun 02. Des 2007 13:04
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf jakobs » Fös 02. Des 2011 10:24

schaferman skrifaði:uss,,,,,er farinn að halda að gömlu keytronic lykklaborðin séu bara best

Ég nota enn gamalt Keytronic lyklaborðið sem fylgdi fyrsta pésanum mínum, frá 1998/9.

Það er nú aðeins farið að gefa sig. 'W' og space eru aðeins orðnir slappir.

Borðið er mjög líkt þessu
Mynd

Hvar fæ ég borð sem er í líkingu við þetta?

Kveðja,
Kobbi
Síðast breytt af jakobs á Fös 02. Des 2011 12:51, breytt samtals 1 sinni.

Skjámynd

ZoRzEr
/dev/null
Póstar: 1404
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
Reputation: 42
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf ZoRzEr » Fös 02. Des 2011 10:28

dori skrifaði:Ég er eiginlega búinn að afmarka þetta niður í bláir eða brúnir cherry, myndi samt skoða annað en það er erfitt þegar maður getur ekki prufað þetta allt hlið við hlið. Ég er bara svo vanur því að vera ekki með tenkey (er með svona ömurlegt apple chiclet lyklaborð) og það háir mér lítið. Það væri spurning að fá sér líka tenkeys (þetta filco cherry brown eða bara rubber dome) og geta haft þá staka þegar maður þarf.

Svo er líka spurning varðandi hávaða. Cherry brown er ekki jafn hávært og blue er það ekki? Það er spurning hvort maður taki það inní reikinginn...

Ég fæ kannski að kíkja á þetta hjá þér við tækifæri til að prufa... Sjáum til :)

Það er afgerandi munur á brown og blue. Þegar pabbi er að nota sitt borð fer ekki framhjá neinum að hann er að skrifa, eins og gamaldags typewriter.

Miðað við lýsingar ættu brown að vera þér nærri. Alveg eins og White Alps sem eru á mínu er háværir og stífir, að mínu mati. En auðvitað er það bara smekksatriði.

Minnsta mál að fá að líta við um helgina og fá að pikka aðeins á borðið mitt sem er heima.

13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini

Skjámynd

Benzmann
Bara að hanga
Póstar: 1572
Skráði sig: Þri 11. Nóv 2008 14:58
Reputation: 46
Staðsetning: Breiðholt
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf Benzmann » Fös 02. Des 2011 11:55

gömlu keytronic klikka ekki

CPU: Intel i9 13900K | MB: Asus ROG Strix Z790-E Gaming| GPU: Asus TUF RTX 3080 OC 10gb | Case: Corsair 7000D| PSU: Corsair RM850x 850W | RAM: Kingston Fury 5600mhz 64gb |Storage: 1x Samsung 990Pro 4Tb (OS)1x Samsung 980Pro 2Tb| OS: Windows 11 Enterprise E5 64bit

Skjámynd

ZoRzEr
/dev/null
Póstar: 1404
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
Reputation: 42
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf ZoRzEr » Fös 02. Des 2011 16:59

Fann tvö gömul og góð lyklaborð í vinnunni í dag. Copam+ með litlum tökkum og stórum gormum, eitthvað sem ég hef persónulega ekki séð sjálfur. Miðlungsstífir og clicky. Skítugt og flott. Virkar 100% eftir góð þrif, er að nota það núna.

http://img259.imageshack.us/img259/7356/img0739wb.jpg
http://img830.imageshack.us/img830/2195/img0740jn.jpg

Svo eitt annað ómerkt, eitthvað eldra en hitt. White Alps tengi sem er reyndar töluvert þægilegra en það fyrri, á bara eftir að þrífa það almennilega.

Bæði borðin eru með DIN tengjum. Átti eitt DIN - PS/2 breyti heima sem ég nota með báðum borðunum. Fer og teki hitt í gegn núna.

Kemur og kíkir á þetta ef þú villt.

Á eftir að þrífa þetta. Virðist vera töluvert þægilegra til að skrifa, en ekki með þessu venjulega layout'i sem við erum vön. Sjáum hvað setur.
Mynd

Hér er borðið sem ég er að nota núna tímabundið.
Mynd

13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini

Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf gardar » Fös 02. Des 2011 18:14

dori skrifaði:
gardar skrifaði:
dori skrifaði:
gardar skrifaði:Ef þú ætlar að gera þetta rétt og vel, þá verslarðu þér svona og venur þig svo á dvorak http://www.kinesis-ergo.com/contoured.htm
Það eru kostir og gallar. Ég vélrita ekki svo svakalega mikið þannig að ég veit ekki hversu miklu máli það skiptir. Dvorak er pæling sem maður skoðar kannski...

En ég vil eiginlega ekki taka eitthvað funky. Þó svo að þetta sé mikið betra. Ég hef heyrt frá fólki sem hefur vanið sig á svona að það sé ömurlegt að skrifa á allt annað. Er það eitthvað gott að vera með svona á 1/3 af þeim stöðum sem maður notar tölvu af einhverju viti og líða svo eins og aðkomumanni hina 2/3?

Gætir náttúrulega sleppt því að fara alla leið og tekið annað hvort af þessum:
http://www.kinesis-ergo.com/max-spec.htm
http://www.kinesis-ergo.com/freestyle.htm

Hmm... Það er eitthvað til að skoða. Kannski verður þetta seinbúin jólagjöf :uhh1
Eru þetta samt mechanical takkar? Það er ekkert tekið fram á síðunni hvað það varðar.

Ég held að öll lyklaborðin frá þeim séu mechanical

Skjámynd

Höfundur
dori
Besserwisser
Póstar: 3608
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf dori » Lau 03. Des 2011 02:40

gardar skrifaði:Ég held að öll lyklaborðin frá þeim séu mechanical

Ok, flott... töffarar að hafa það standard :)

@ZoRzEr, þetta lýtur vel út... Það væri gaman að prófa.

Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf gardar » Lau 03. Des 2011 15:57

Svo verðurðu náttúrulega að fá þér foot-switch líka: http://www.kinesis-ergo.com/foot.htm

:lol:

Skjámynd

ZoRzEr
/dev/null
Póstar: 1404
Skráði sig: Þri 28. Apr 2009 12:11
Reputation: 42
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf ZoRzEr » Fim 15. Des 2011 13:22

Var að pikka upp eitt stykki Corsair Vengeance K60 af Tölvulistanum rétt í þessu.

Kem til með að vera með unboxing þráð um leið og ég kem heim.

13700K | Asus Z790 Prime| 32GB DDR5 | Zotac 4080 | 2TB 960 Pro m.2 | Corsair AX1200i | Fractal North | LG 34GN850-B
Synology DS1817+ | 20TB
USG | US-8-60W | nanoHD | Flex Mini

Skjámynd

Höfundur
dori
Besserwisser
Póstar: 3608
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Val á mechanical lyklaborði

Pósturaf dori » Fim 15. Des 2011 13:57

úúú... magnað