Bendill skrifaði:ég myndi trúa að þetta væri suð sem kæmi frá spennustýringunni fyrir örgjörvann. En stundum getur tíðnin frá móðurborði og örgjörva haft skrýtin áhrif á málma og efni í kringum sig...
hmmm... já gæti verið eitthvað svoleiðis sem myndi líklega þýða að móbóið væri eitthvað gallað. En þetta virðist ekki vera þekkt vandamál því að MSI kannast ekki við þetta en þetta er reyndar frekar nýtt borð frá þeim (ný útgáfa af neo2) þannig að þetta hefur kannski ekki komið almennilega í ljós ennþá...???
Vandamálið er, eins og Gnarr benti réttilega á, er að þeir eru ekki beint að drepast úr þjónustulipurð þarna hjá Tæknibæ/Computer.is verkstæðinu!! Ég hef 3 þurft að eiga við þá og alltaf hefur verið eitthvað vesen. Fyrst var það bilað/gallað minni sem þeir skiptu um á endanum, verst að það tók þá f**king 8 daga að gera það!
Næst keypti ég usb minniskubb hjá þeim sem reyndist gallaður, ég fór með hann til þeirra og þeir staðhæfðu að hann væri í fínu lagi þannig að ég tók hann aftur tilbaka. Að sjálfsögðu var hann það ekki þannig að ég prófaði hann og einangraði vandamálið við það að zip skrár stærri en 1 mb urðu corruptaðar þegar maður setti þær yfir á kubbinn en ef zip skráin var undir 1 mb þá virkaði þetta fínt. Ég aftur upp í Tæknibæ og greindi þeim frá þessu, beið í ca korter á meðan þeir tékkuðu á þessu. Síðan kom gaurinn og tilkynnti að þetta væri ekkert mál því að hann hefði kóperað stóra EXE skrá og það var ekkert vandamál!!!
Ég vildi helst spyrja hvort að hann væri eitthvað vangefinn greyið en sat á mér og rak hann til baka að prófa zip skrá í þetta skiptið... síðan leið og beið og eftir 20 mín þá var mér nóg boðið (tekur engar 20 min að kópera 1+mb zip skrá... þá að gerandinn sé vangefinn!) og rauk inná verkstæðið (verslunin var mannlaus) og komst að því að það voru allir FARNIR í mat!!! djöfull fauk í mig þá...
Í þriðja skiptið uppfærði ég vél fyrir vinkonu mína og eftir smá tíma gaf örraviftan sig. Hún fór með vélina til þeirra og þeir skiptu gölluðu viftunni út en létu einhverja cheap a@@ viftu í staðinn sem framleiddi meiri hávaða en sú gallaða, þegar þeim var bent á það þá voru þeir bara með stæla...
Þannig að eins og gefur að skilja þá er ég ekkert sérstaklega áfjáður í að eiga við verkstæðið hjá þeim enn einu sinni... A.m.k. er ég búin að læra mína lexíu, ég versla ALDREI aftur hjá computur.is/tæknibæ aftur!!! Skítakompaní...!