Tölvusamsetning


Höfundur
GudlaugurGt
Nýliði
Póstar: 17
Skráði sig: Fös 20. Feb 2015 15:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Tölvusamsetning

Pósturaf GudlaugurGt » Mán 15. Sep 2025 23:12

Sjá viðhengi, er þetta góð tölva ? Er einhvað sem þið mynduð breyta eða bæta við?

Bestu kveðjur,
G
Viðhengi
IMG_0446.jpeg
IMG_0446.jpeg (647.6 KiB) Skoðað 1494 sinnum




Viggi
Geek
Póstar: 811
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 129
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Viggi » Mán 15. Sep 2025 23:23

Lýst vel á þetta. Getur samt tekið windows út og keypt lykil á netinu fyrir klink


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.


Hausinn
FanBoy
Póstar: 761
Skráði sig: Mið 15. Jan 2020 18:14
Reputation: 172
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Hausinn » Þri 16. Sep 2025 08:20

Eina sem ég myndi breyta væri að taka aðeins ódýrari aflgjafa og kælingu og kaupa 2TB SSD í staðinn. Annars flott tölva.

Ég myndi einnig stela Windows.
Síðast breytt af Hausinn á Þri 16. Sep 2025 08:22, breytt samtals 3 sinnum.




ejm
Græningi
Póstar: 29
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf ejm » Þri 16. Sep 2025 10:08

Ef þetta er hugsað sem gjöf þá er kannski betra að hafa Windows legit með, en ég myndi frekar nota massgrave en að kaupa lykil á netinu á klink, miðað við vesenið sem maður hefur heyrt af.



Skjámynd

Oddy
Geek
Póstar: 838
Skráði sig: Sun 12. Jan 2020 20:34
Reputation: 77
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Oddy » Þri 16. Sep 2025 11:05

ejm skrifaði:Ef þetta er hugsað sem gjöf þá er kannski betra að hafa Windows legit með, en ég myndi frekar nota massgrave en að kaupa lykil á netinu á klink, miðað við vesenið sem maður hefur heyrt af.


Þarf orðið lykil við uppsetningu?




blitz
Of mikill frítími
Póstar: 1806
Skráði sig: Þri 22. Jan 2008 13:36
Reputation: 147
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf blitz » Þri 16. Sep 2025 11:07

Er ekki verið að ráðleggja fólki gegn því að taka AsRock borð með 9000-seríu af Ryzen?

https://www.youtube.com/watch?v=8UdTQbcduio&t=228s


PS4

Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2052
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 82
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf hfwf » Þri 16. Sep 2025 11:28

blitz skrifaði:Er ekki verið að ráðleggja fólki gegn því að taka AsRock borð með 9000-seríu af Ryzen?

https://www.youtube.com/watch?v=8UdTQbcduio&t=228s


Miðað við þau gögn sem liggja fyrir þá hefur ASROCK selt kannski 3-4-5m MBs fyrstu 9 mánuði ársins, ef miðað er við gögn þá frá 2024 (EST), amd selt eitthvað eitthvað, bios 3.40 kom út fyrir nokkrum vikum, ASROCK segja að þeir séu búnir að laga eitthvað bla bla, gefa ekkert upp, en frá 3.25 held ég segja þeir að þetta væri úr sögunni og kenna AMD um eða hvernig sem það var eða öfugt, en gefið að það er niche markaður af notendum inn á r/asrock, 200? kannski nenni ekki að telja sem þetta er að koma fyrir, þá sé ég ekkert að því að mæla með asrock og amd.

er með asrock og am5 9XXX x3d týpu, síðustu 3 mánuði á 3.25 bios þar sem téð á að hafa verið "lagað" ekkert vandamál hér *knock on wood*, en er í 3 ára ábyrgð og ef eitthvað kemur fyrir , þá er þetta tryggt.
Ef fólk efast eitthvað þá bara ekki taka asrock mb, mjög einfalt.




ejm
Græningi
Póstar: 29
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf ejm » Þri 16. Sep 2025 13:25

Oddy skrifaði:
ejm skrifaði:Ef þetta er hugsað sem gjöf þá er kannski betra að hafa Windows legit með, en ég myndi frekar nota massgrave en að kaupa lykil á netinu á klink, miðað við vesenið sem maður hefur heyrt af.


Þarf orðið lykil við uppsetningu?


Nei, held ekki. Kemur bara svona Activation banner á skjáinn hjá manni.




Vaktarinn
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2025 17:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Vaktarinn » Þri 16. Sep 2025 18:56

Mundi forðast Assrock með 9000 seríunni og alls ekki borga fyrir windows, það er frítt




oskarom
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 328
Skráði sig: Mán 05. Mar 2007 18:51
Reputation: 12
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf oskarom » Mið 17. Sep 2025 09:53

Hæ,

Til að fá sem gagnlegust svör þá væri mjög sniðugt að taka fram hvernig í hvað tölvan verður notuð ásamt hugmyndum um kröfur og budget.




Sinnumtveir
Gúrú
Póstar: 577
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 181
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Sinnumtveir » Mið 17. Sep 2025 18:54

Mín tvö sent:

Aflgjafi og kæling eru overkill. 32GB minni finnst mér fáránlega lítið.

Meira minni er alltaf betra, þýðir m.a. minna slit á SSD sem búbót.

Ég mynd sennilega reyna að hafa SSD aðeins stærri, en 1TB er alveg vel nothæft.



Skjámynd

Úlvur
Fiktari
Póstar: 80
Skráði sig: Þri 30. Jan 2018 13:52
Reputation: 9
Staðsetning: Keflavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Úlvur » Mið 17. Sep 2025 21:41

Sinnumtveir skrifaði:Mín tvö sent:

Aflgjafi og kæling eru overkill. 32GB minni finnst mér fáránlega lítið.

Meira minni er alltaf betra, þýðir m.a. minna slit á SSD sem búbót.

Ég mynd sennilega reyna að hafa SSD aðeins stærri, en 1TB er alveg vel nothæft.


Sammála þessum herramanni.
Nema ég hef aldrei heyrt um að overkill af minni hjálpi ssd drifum að slitna minna. Myndi mæla með 32gb fyrir gaming, meira fyrir video vinnslu eða einhverja álíka vinnu.

Hjálpar að nefna hvað tölvan er notuð í. :)
Síðast breytt af Úlvur á Mið 17. Sep 2025 21:49, breytt samtals 1 sinni.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4237
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1397
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Klemmi » Mið 17. Sep 2025 23:42

Bara sama og hinir hafa sagt.

Óþarflega öflugur aflgjafi og kæling.
Móðurborðið líka óþarflega dýrt, en reyndar lítið í boði þar nema m-ATX ódýrara.

Færi í ódýrari týpu af 2TB disk, ef þetta er leikjavél, þá er 1TB fljótt að fyllast nema þið spilið takmarkað magn af leikjum.

Svo fer það eftir notkun og budgetti, en mögulega kæmi betur út að taka þennan sparnað, og spara meira og fara í 7800X3D og skella í RTX 5080 í staðin, eða hlæja með mismuninn í bankann, eða eyða honum í jaðartæki... skjá, heyrnatól eða USB eldflaugar.


Starfsmaður Tölvutækni.is


Sinnumtveir
Gúrú
Póstar: 577
Skráði sig: Fim 28. Sep 2017 09:44
Reputation: 181
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Sinnumtveir » Fim 18. Sep 2025 00:12

Úlvur skrifaði:
Sinnumtveir skrifaði:Mín tvö sent:

Aflgjafi og kæling eru overkill. 32GB minni finnst mér fáránlega lítið.

Meira minni er alltaf betra, þýðir m.a. minna slit á SSD sem búbót.

Ég mynd sennilega reyna að hafa SSD aðeins stærri, en 1TB er alveg vel nothæft.


Sammála þessum herramanni.
Nema ég hef aldrei heyrt um að overkill af minni hjálpi ssd drifum að slitna minna. Myndi mæla með 32gb fyrir gaming, meira fyrir video vinnslu eða einhverja álíka vinnu.

Hjálpar að nefna hvað tölvan er notuð í. :)


Skrif á SSD slítur disknum, hann hefur endanlegan líftíma í skrifum. Meira minni == minna "paging", minna slit, meiri ending.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17118
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2328
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf GuðjónR » Fim 18. Sep 2025 12:33

Það er ekkert að ASRock móðurborðunum með 9000 seríuna af AMD.
Löngu búið að laga það með BIOS uppfærslum, sá nýjasti er 3.40 og ekki gleyma það er ábyrgð á þessu dóti.



Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2776
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 528
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf Moldvarpan » Fim 18. Sep 2025 13:19

Er þetta aðallega fyrir leikja spilun?

Ég myndi persónulega taka ódýrari örgjörva og móðurborð, og taka dýrara skjákort.




Höfundur
GudlaugurGt
Nýliði
Póstar: 17
Skráði sig: Fös 20. Feb 2015 15:26
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf GudlaugurGt » Fim 18. Sep 2025 19:44

Takk allir fyrir skilaboðin. Ég er aðallega að spila CS2 og stöku sinnum hoppar maður í þyngri leiki td COD eða BF. Langar að hafa þetta pínu future proof. Eyða meira núna og minna seinna.

Mér lýst langbest á að versla allt hjá Kísildal, eftir að hafa farið og hitt á þá. Þeir setja allt upp og þriggja ára ábyrgð á öllu.

Budget einhver staðar undir 500.000




oskarom
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 328
Skráði sig: Mán 05. Mar 2007 18:51
Reputation: 12
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf oskarom » Fim 18. Sep 2025 21:25

Eins og ég skil CS2 þá er 240hz sweetspotið og FPS viðmiðið yfir skjá hz, en allt umfram, talandi ekki um ef þú ert kominn umfram skjá hz í 1% lows, ekki að skila neinu, en ef þú ert með budgetið þá bara rúllarðu beint í þetta.

1000w er yfirgengilegt fyrir þennan CPU og GPU, en mjög future proof vissulega, ég myndi hinsvegar bæta við viftum í þennan kassa, það koma 2x 140mm með, ég myndi alltaf bæta við amk 2x 140mm við, persónulega myndi ég bæta við 3x og láta fremri top viftuna blása inn, aftari út auðvitað.

Færi sömuleiðis alltaf í 2TB NVME, 1TB er bara alltof fljótt að fara ef þú ert eitthvað að spila aðra leiki en CS2



Skjámynd

TheVikingBear
Fiktari
Póstar: 84
Skráði sig: Lau 01. Maí 2021 08:58
Reputation: 4
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Tölvusamsetning

Pósturaf TheVikingBear » Fim 18. Sep 2025 22:13

GuðjónR skrifaði:Það er ekkert að ASRock móðurborðunum með 9000 seríuna af AMD.
Löngu búið að laga það með BIOS uppfærslum, sá nýjasti er 3.40 og ekki gleyma það er ábyrgð á þessu dóti.


Fyndnasta er að þetta var alveg jafn mikið vandamál hjá MSI, Gigabyte og Asus, Asrock voru bara þeir einu sem viðurkenndu það og ræddu þetta.


Gamemax Spark White - ASRock B550M Steel Legend µATX AM4 - Ryzen7 5800X3D AM4 - GeForce RTX™ 2080 Super - G.Skill 32GB (2x16GB) TridentZ Neo 3600MHz DDR4 - Gamemax GX-850 Pro WT 850W - Deepcool AK620 White - 1TB Samsung 980 Pro m.2 Nvme - 2x4TB Toshiba N300