Vandræði með WD 160 GB IDE HDD


Höfundur
valdiþ
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mið 22. Des 2004 01:16
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vandræði með WD 160 GB IDE HDD

Pósturaf valdiþ » Fös 18. Feb 2005 17:04

Sælir

Ég er í smá vandræðum með einn WD 160 GB IDE harðan disk sem ég keypti nýlega (fyrir ca. 2-3 vikum).

Þannig er mál með vexti að ég hef ekki getað formattað hann nema með því að gera quick format en ef ég reyni hitt þá stoppar það alltaf í 84% og ég verð bara að gera cancel format.
Ef ég opna disk management þá stendur við diskinn Healty(at risk).
Ég næ heldur ekki að gera primary partition á honum, bara simple volume.
Ég reyndi líka að gera error check sem Windows framkvæmir svo næst þegar kveikt er á vélinni. Það er í 5 liðum og það stoppaði í 5. liðnum þar sem var verið að "checking free space" en þar varð allt stopp í 84% líka.

Hvað getur verið að?
Er diskurinn gallaður og ætti ég að fara og skipta honum?



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vandræði með WD 160 GB IDE HDD

Pósturaf MezzUp » Fös 18. Feb 2005 17:09

valdiþ skrifaði:Ef ég opna disk management þá stendur við diskinn Healty(at risk).
Er það ekki afþví að diskurinn er „Dynamic“ hjá þér en ekki „Basic“.

Annars myndi ég bara bjalla í tölvubúðina og spyrja þá hvort að þú eigir ekki bara að kíkja með diskinn, ég hugsa að þeir játi því




Höfundur
valdiþ
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mið 22. Des 2004 01:16
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf valdiþ » Fös 18. Feb 2005 17:12

Get ég þá breytt disknum úr dynamic í basic einhvernveginn? (stupid question? :oops: )

Veit ekki með að hringja í búðina (BT), fer bara frekar þangað.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Fös 18. Feb 2005 17:41

valdiþ skrifaði:Get ég þá breytt disknum úr dynamic í basic einhvernveginn? (stupid question? :oops: )
Hehe, alls ekki :)

Til þess að breyta úr Dynamic í Basic ferðu í Control Panel -> Administrative Tools -> Computer management. Ferð síðan í Disk Management vinstra megin og hægriklikkar þar sem að ég bendi á í screenshottinu. Stendur nú samt líklega eitthvað annað þar sem að minn er Basic og bíður hún mér uppá að breyta í Dynamic disk.
Myndi samt leyfa disknum að vera Dynamic nema að þú hafir sérstaka ástæðu fyrir því að breyta honum í Basic. Ég er nokkuð viss um að öll gögn eyðist af disk ef að honum er breytt í Basic.
Athugðu líka að dynamic/basic skiptir líklega ekki miklu máli í sambandi við vandamálið þitt.

Ættir bara að fara með hann í BT og segja frá vandamálinu þínu, og taka þá fram bæði að þú getir ekki formattað og að Windows segi að hann sé „at risk“
Viðhengi
disk_management.jpg
disk_management.jpg (130.26 KiB) Skoðað 378 sinnum




Höfundur
valdiþ
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mið 22. Des 2004 01:16
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf valdiþ » Fös 18. Feb 2005 18:16

Takk fyrir góð svör MezzUp

Einhverra hluta vegna þá fæ ekki ég val um að breyta disknum í basic.

Skelli mér bara í BT með gripinn og vona að allt reddist.



Skjámynd

MezzUp
Besserwisser
Póstar: 3694
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 15:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf MezzUp » Fös 18. Feb 2005 18:49

valdiþ skrifaði:Takk fyrir góð svör MezzUp

Einhverra hluta vegna þá fæ ekki ég val um að breyta disknum í basic.
Átt líklega eftir að delete'a öllum volume'um af disknum áður en að sá möguleiki birtist þér.