SoundBlaster Live! Value


Höfundur
icemob
Græningi
Póstar: 25
Skráði sig: Mið 05. Feb 2003 14:09
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

SoundBlaster Live! Value

Pósturaf icemob » Mið 05. Feb 2003 15:31

Sælir/sælar

Þá er komið að því, eftir að hafa lesið næstum allt á þessu spjalli, og haft mikið gagn og gaman af.
Þannig er að ég er með þetta forláta hljóðkort í tölvuni (SB Live! value) og er að nota það á ofurvélini minni, PII 400 :roll: nú hef ég verið að spila hina og þessa leiki og lendi þá í því að það koma einhver aukahljóð,einhverskonar hátíðni tíst. Ég er að vona að þetta sé eitthvað rekkla vandamál en ekki vélbúnaðarmál.
Og þar sem Creative hefur ekki gefið frá sér rekkil fyrir þetta hljóðkort síðan 1999 (sblw9xup.exe)þá er ég að vona að einhver hér á spjallinu hafi vitneskju um hvar hægt væri að nálgast nýrri rekkil.

Ef einhver hefur orðið fyrir sama vandamáli, þá mætti sá hinn sami gjarnan pósta hérna uppl. um hver lausnin var( ef einhver er)



Skjámynd

kiddi
Stjórnandi
Póstar: 1198
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
Reputation: 255
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kiddi » Mið 05. Feb 2003 16:10

Passaðu að Mic-In & Line-In, Modem og öll þessi aukatengi séu stillt á MUTE - Þú getur stillt það í Volume Control í Windows... farðu í Advanced og hakaðu við allar rásirnar sem þú getur bætt við í volume control gluggann, og settu mute á allt sem þú þarft ekki að nota =)

Vona að þetta leysi málið =)



Skjámynd

Atlinn
Ofur-Nörd
Póstar: 264
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 14:33
Reputation: 0
Staðsetning: Nordock Iceland
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Atlinn » Mið 05. Feb 2003 16:41

gæti líka verið að það sé og mikið hardware acceleration

Start--> Settings--> Control Panel--> Sounds and Audio Devices--> þar í Speaker settings íttu á Advanced--> og þar í Performance, og lækkaði hardware acceleration, ætti að vera nóg að setja það í næst minsta


hah, Davíð í herinn og herinn burt


Höfundur
icemob
Græningi
Póstar: 25
Skráði sig: Mið 05. Feb 2003 14:09
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Pósturaf icemob » Fös 07. Feb 2003 13:05

Takk fyrir ráðleggingarnar.
því miður þá leystu þær ekki vandamálið.
Þetta virðist samt vera bundið við einn leik sem ég hef verið að reyna að spila. Það er Commandos2, prófaði að setja hann í aðra tölvu, jafngamla með einhverju SB64 hljóðkorti og PII 350 mhz örgjörva virkaði fínt þar enginn tíst hljóð. :bri
Þannig að hljóðkortið er líkast til sökudólgurinn!