Það er rosalega mikið af varning sem er mjög lélegur í umferð þegar kemur að hljóði. Vandaðu valið.
Aðal uppsetningin hjá mér eru Focal Alpha 65. Sem eru alveg hreint frábærir. Hægt að lesa nánar um þá hérna:
https://futuremusic.com/2022/02/review- ... -monitors/Ég er með vél með útværum DAC og það er alltaf kveikt á henni. Þannig að allar hinar vélarnar sem ég er með geta ræst Spotify spilun þangað. En það er algert jaðartilvik og ég myndi áætla að þar sé ég komin út fyrir pælinguna m.v. þetta borð sem er þarna.
En ég var að prófa um daginn lítið par frá Mackie. Þeir eru bara að koma nokkuð vel út hjá mér. Hljóðið er ekkert ýkt enda hægt að ýkja það sem þú vilt í hugbúnaði með EQ stillingum.
Hér að neðan er tengill í útgáfuna sem er ekki með Bluetooth en hitt ætti að birtast sem tengdar vörur. Þeir eru til í nokkrum stærðum og gerðum. Ég var í vandræðum sökum þess að mig vantaði par sem passaði með 43" 4K skjánum. Ekki séns að koma Focal þar fyrir m.v. stærðina á borðinu og hvernig uppsetningin er.
Mackie parið er hérna:
https://www.tonastodin.is/hljod/hatalar ... monitorar/Ég vil taka fram að ég hef enga tengingu við Tónastöðina.