XP Home/XP Pro


Höfundur
blabla001
Nýliði
Póstar: 16
Skráði sig: Sun 20. Nóv 2005 00:37
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

XP Home/XP Pro

Pósturaf blabla001 » Þri 29. Ágú 2006 17:59

Félagi minn var eitthvað að tala um það að sumstaðar þarsem það er þráðlaust net þurfi að vera XP Pro til að komast inná það? Er eitthvað til í því?

Er nefnilega að spá í að kaupa tölvu í skólan og slæmt að sitja fastur með Home og komast ekki á netið :shock: En já, ef það er eitthvað til í því er þá almennt hægt að skipta(þegar þú skoðar fartölvur er yfirleitt skráð XP Home/XP Pro og stór hluti tölva virðist vera XP Home svo ég var að spá hvort það væri eitthvað vesen við kaupa á fartölvu að fá að breyta úr Home yfir í Pro?



Skjámynd

Mazi!
ÜberAdmin
Póstar: 1326
Skráði sig: Fim 13. Okt 2005 15:25
Reputation: 1
Staðsetning: Skúrinn
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Mazi! » Þri 29. Ágú 2006 21:39

það er ekk ert vesen að skipta gætir reint að fá vélina stírikerfis lausa og keipt þér pro (sem er súrt :x þar sem vista kemur á næsta ári)


Mazi -

Skjámynd

Stutturdreki
Of mikill frítími
Póstar: 1701
Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
Reputation: 37
Staða: Ótengdur

Pósturaf Stutturdreki » Mið 30. Ágú 2006 12:52

Þarft Win XP Pro til að geta tengst inn á Domain, en ættir alveg að komast inn á þráðlaust net svona almennt. Kannski spurning um WPA/WEP stuðning í Win XP Home.




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Mið 30. Ágú 2006 17:47

Svo eru margir skólar sem nota novell, þannig að þær vélar mega alveg vera með XP Home (correct me if I'm wrong).




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Mið 30. Ágú 2006 23:00

Novell er helvíti, efast um að nokkur skóli noti það lengur.




corflame
Tölvutryllir
Póstar: 678
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
Reputation: 0
Staðsetning: Keyboard central
Staða: Ótengdur

Pósturaf corflame » Fim 31. Ágú 2006 10:55

gumol skrifaði:Novell er helvíti, efast um að nokkur skóli noti það lengur.


Allir grunnskólar í Reykjavík a.m.k. keyra á Novell neti. Þ.e. allt sem heyrir undir fræðslusvið hjá Reykjavíkurborg keyrir á Novell.




Birkir
Kerfisstjóri
Póstar: 1284
Skráði sig: Fim 13. Nóv 2003 15:57
Reputation: 0
Staðsetning: Utan þjónustusvæðis
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Birkir » Fim 31. Ágú 2006 12:22

Novel er notað í mínum skóla. (FVA)




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Fim 31. Ágú 2006 18:36

corflame skrifaði:Allir grunnskólar í Reykjavík a.m.k. keyra á Novell neti. Þ.e. allt sem heyrir undir fræðslusvið hjá Reykjavíkurborg keyrir á Novell.

Eru grunnskólakrakkar farnir að nota ferðatölvur og með þráðlaust net í skólunum?

Ég var að tala um á einstaklingstölvum nemenda eins og hann var að spurja um, ekki tölvur skólanna.




corflame
Tölvutryllir
Póstar: 678
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
Reputation: 0
Staðsetning: Keyboard central
Staða: Ótengdur

Pósturaf corflame » Fös 01. Sep 2006 13:54

gumol skrifaði:
corflame skrifaði:Allir grunnskólar í Reykjavík a.m.k. keyra á Novell neti. Þ.e. allt sem heyrir undir fræðslusvið hjá Reykjavíkurborg keyrir á Novell.

Eru grunnskólakrakkar farnir að nota ferðatölvur og með þráðlaust net í skólunum?

Ég var að tala um á einstaklingstölvum nemenda eins og hann var að spurja um, ekki tölvur skólanna.


Reyndar sagðir þú:
gumol skrifaði:Novell er helvíti, efast um að nokkur skóli noti það lengur.


Fyrirgefur mér þó ég hafi ekki getað séð þetta út úr því ;)

En, nei, enginn skóli lætur nemendur setja upp Novell client hjá sér (sem betur fer).




gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Fös 01. Sep 2006 14:59

corflame skrifaði:Fyrirgefur mér þó ég hafi ekki getað séð þetta út úr því ;)

Ég geri það. Upphaflega bréfið var um einhvern sem var að fara í framhaldsskóla og vildi vita hvort hann þyrfti að fá sér XP Pro á ferðtölvuna. Einhver svaraði því að hann þyrfti ekki að vera með það ef hann notar novell svo ég svaraði að Novell væri bla bla og að ég vonaði að enginn skóli notaði það lengur. Hélt ég þyrfti ekki að taka fram að ég væri að meina á ferðatölvur nemenda þar sem umræðan snérist akkurat um þær.
(já, ég er í stuði til að þursast :))

corflame skrifaði:En, nei, enginn skóli lætur nemendur setja upp Novell client hjá sér (sem betur fer).
Gott að vita það. Ætli það hafi ekki bara verið MK sem gerði það.

En svona til að lýsa netþjónustunni í MK þá fór einn inn í tölvuhjálpina til að skrá netkortið sitt. Konan sem var að afgreiða rak augun í OpenOffice hjá honum og spurði "Er þetta ekki einhver vírus?"




wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Lau 02. Sep 2006 14:53

LOL :shock:


Tölvuverslunin Kísildalur, staðurinn þar sem nördin versla :)
...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal


gumol
Besserwisser
Póstar: 3929
Skráði sig: Sun 27. Okt 2002 00:12
Reputation: 0
Staðsetning: Kópavogur
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf gumol » Þri 05. Sep 2006 11:16

Ég er að skrifa þetta á netinu í MK á Windows XP Home. Það þarf greinilega ekki að hafa pro til að komast á netið þótt það standi heimasíðu skólans.