gunni91 skrifaði:GuðjónR skrifaði:Uppfært, september 2026.
hvort þessi þróun sé farin að vera úr takti við raunverulegt verðmæti þjónustunnar og almennt verðlag í þjóðfélaginu.
Sérstaklega þegar stór hluti þess sem er innifalið í pakkanum mínum er einfaldlega ekki nýttur.
Þegar ég skrifaði upphaflegu færsluna var ég að velta fyrir mér hvort ég ætti að halda áfram hjá Nova eða skoða aðra kosti.
Eftir þessar tvær hækkanir á árinu er spurningin orðin aðeins skýrari.
Kannski er því einfaldlega kominn tími til að skoða Hringdu aftur eftir öll þessi ár.
Þessar hækkanir á einu ári eru miklar og erfitt að réttlæta, en þá spyr maður sig er eitthvað annað betra í boði? Hvernig er samkeppnin.
Er þetta ekki bara orðið eins og með tryggingarfélögin? skoða í kringum sig á eins til tveggja ára fresti?
Þetta er orðið svo auðvelt að færa sig milli fjarskiptafyrirtækja í dag.
Er sjálfur hjá Vodafone og hef ekki pælt nógu mikið í þessu öllu saman.
Sammála. Þetta er farið að minna töluvert á tryggingamarkaðinn þar sem tryggð við eitt fyrirtæki er ekki endilega verðlaunuð og það borgar sig að bera saman verð reglulega.
Ég fór sjálfur nýlega yfir tryggingarnar mínar og sparaði rúmlega 113 þús. kr. á ári með því að skipta um félag.
Nú þegar ég skoða fjarskiptaþjónustuna sé ég að sambærileg lausn hjá Hringdu með 1 Gbit ljósleiðara og 5 farsíma kostar um 20.750 kr. á mánuði, á móti 28.150 kr. hjá Nova. Það er munur upp á 7.400 kr. á mánuði, eða 88.800 kr. á ári.
Til að vera sanngjarn þá fylgja Úrlausnir ekki með hjá Hringdu, auk þess eru hvorki 2f1 tilboð né 10% tækjaafsláttur eins og hjá Nova.
Samt finnst mér munurinn orðinn það mikill að það sé eðlilegt að fara að skoða málið alvarlega í stað þess að vera áfram af vana.

