Mig langar að deila hér reynslu minni af Nova og sérstaklega þróun á verðlagningu AlltSaman pakkans síðustu ár. Markmiðið er ekki að ráðast á fyrirtækið eða starfsfólk, heldur að fara yfir staðreyndir og velta fyrir sér hvort þessi þróun sé sanngjörn gagnvart langtímaviðskiptavinum.
Af hverju skipti ég yfir til Nova í ágúst 2020
Í ágúst 2020 flutti ég mig frá Hringdu yfir til Nova og fór beint í stærsta AlltSaman pakkann. Á þeim tíma voru aðalástæðurnar tvær:
- Hringdu bauð ekki upp á úrlausn fyrir Apple Watch með eSIM.
- Ég varð var við bandvíddarstýringu á ljósleiðaranum hjá Hringdu þar sem erlent torrent maxaði yfirleitt í kringum 10 MB á sekúndu nema íslensk IP tækju þátt, þá stökk hraðinn upp í um 80 MB á sekúndu.
Nova bauð þá sambærilegt verð og Hringdu, en meira fyrir peninginn. Ótakmarkað internet án stýringar, úrlausnir, ýmis 2f1 tilboð og tíu prósent afsláttur af tækjum. Síma og gagnasamband reyndist mér einnig stöðugra á þeim tíma. Þetta var einfaldlega augljós ákvörðun.
Verðþróun AlltSaman pakkans
Í upphafi, í ágúst 2020, var mánaðargjaldið hjá Nova 19.900 krónur.
Hér er verðþróunin síðan þá:
- Ágúst 2020: 19.900 kr
- Janúar 2021: 20.290 kr
- Júní 2023: 20.490 kr
- Janúar 2024: 20.990 kr
- Júní 2024: 23.490 kr
- Febrúar 2025: 24.290 kr
- Október 2025: 24.990 kr
- Febrúar 2026 boðuð 8% hækkun: verð fer í 26.990 kr
Fyrstu árin voru hækkanir hóflegar. Á covid tímabilinu, var óvissan mikil og vextir í lágmarki, þá hélt Nova hækkunum í algjöru lágmarki og á skilið hrós fyrir. Þar sýndi fyrirtækið samfélagslega ábyrgð.
Eftir 2024 breytist mynstrið hins vegar verulega. Hækkarnir tvisvar á ári og sumar hverjar all hressilegar.
Samskipti við Nova
Í haust sendi ég póst og bað um að farið yrði yfir pakkann minn. Þar sem ég er ekki að nýta allt sem ég greiði fyrir:
- Ég er með þrjár úrlausnir en pakkinn inniheldur fimm.
- Ég nota hvorki router né kastara frá Nova þó ég greiði fyrir það í pakkanum.
Dæmið sem Nova setti upp var eftirfarandi:
- Ljósleiðari án router og kastara: 12.990 kr
- Farsími ótakmarkað gagnamagn, fimm númer: 16.450 kr
- Úrlausn, þrjú tæki: 1.770 kr
Þetta sýnir vissulega að AlltSaman pakkinn er ódýrari en að kaupa allt stakt. Það svarar hins vegar ekki spurningunni um hvort hækkunarhraðinn sé orðinn úr takti við raunverulegt virði og notkun.
Í ljósi nýlegra hækkana
Samkvæmt frétt á mbl.is hafa forsvarsmenn Nova nú boðað nýjar hækkanir um næstu mánaðamót. AlltSaman pakkinn hækkar um allt að 8 prósent, farsímaáskriftir og 5G þjónusta hækka einnig og ekki er lengra síðan en í október að síðasta hækkun gekk í gegn.
Þegar þetta er sett í samhengi við þróun síðustu ára er eðlilegt að langtímaviðskiptavinir spyrji sig hvort hér sé komið að ákveðnum vendipunkti.
Niðurstaða mín
Ég hef verið almennt sáttur við þjónustu Nova í gegnum árin og tel fyrirtækið hafa staðið sig vel á mörgum sviðum. Þetta snýst ekki um eitt einstakt atriði heldur heildarmyndina.
Spurningin sem ég sit eftir með er einföld: á ég að sætta mig við þessa þróun áfram, eða taka af skarið og skoða aðra kosti sem endurspegla betur mína raunverulegu notkun og væntingar?
Ég væri forvitinn að heyra hvernig aðrir hér á spjallinu upplifa þessa verðþróun og hvort fleiri séu að velta svipuðum spurningum fyrir sér.
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... rdhaekkun/