Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Allt utan efnis
Skjámynd

Dropi
FanBoy
Póstar: 791
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 20:54
Reputation: 229
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf Dropi » Fim 10. Des 2020 15:19

Spyr sá sem ekki veit, hljómar eins og þetta hafi verið risk management, var ekki gert grein fyrir þessum gjöldum þegar lánin voru tekin? Voru ekki lægri vextir fyrir þá sem tóku lán með uppgreiðslugjaldi?

Þeir sem tóku lánin án uppgreiðslugjalds og borguðu hærri vexti hafa væntanlega eitthvað um þetta að segja, eða eru allir kannski þegar búnir að endurfjármagna?


LG 38GN95B-B 3840x1600p160Hz - Logitech GMX508 - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X470 Strix - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf GuðjónR » Fim 10. Des 2020 16:14

Dropi skrifaði:Spyr sá sem ekki veit, hljómar eins og þetta hafi verið risk management, var ekki gert grein fyrir þessum gjöldum þegar lánin voru tekin? Voru ekki lægri vextir fyrir þá sem tóku lán með uppgreiðslugjaldi?

Þeir sem tóku lánin án uppgreiðslugjalds og borguðu hærri vexti hafa væntanlega eitthvað um þetta að segja, eða eru allir kannski þegar búnir að endurfjármagna?

Það sem ég hef heyrt í fjölmiðlum undanfarið eftir að dómur féll er það að þetta hafi verið "risk management" en á þann veg að verja sjóðinn fyrir hugsalegu áhlaupi en ekki að þetta ætti að verða ófrávíkjanleg tekjulind.

Þegar ég tók lánið 2007 þá bauðst mér 4.8% verðtryggt með gjaldi eða 5.15% verðtryggt ekki með þessu gjaldi, ráðgjafinn sagði þá að ef ég ætlað að búa lengur en 3-5 ár þá myndi það allan daginn borga sig að taka lægri vextina, uppgreiðslugjaldið yrði aldrei það hátt að það væri réttlætanlegt að fara í hærri vexti. Sem hugsanlega var rétt akkúrat á þeim tímapunkti, en síðan þá hefur margt gerst í heiminum. Það hefði enginn tekið lán með 0.35% lægri vöxtum gegn 7-17% uppgreiðslugjaldi á ALLAN höfuðstólinn ... ég fullyrði það bara hér og nú.



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf urban » Fim 10. Des 2020 19:05

einarhr skrifaði:
Njall_L skrifaði:Íslensk stjórnvöld búin að áfrýja þessum dómi: https://www.visir.is/g/20202047093d/afr ... -milljarda


.... Nú þurfum við ss skattgreiðendur að borga fyrir þessa áfríun íbúðarlánasjóðs svo sjóðurinn geti haldið áfram að stela af lántökum


Þó það nú væri að sá sem að sjái um skattpeningana okkar fari með þetta mál alla leið.
Þetta er algert tímamóta mál og það væri í raun alger þvæla að fara ekki með þetta alla leið til hæstaréttar til þess að fá endanlega skorið úr þessu.

Menn fara ekkert að breyta vinnubrögðum og borga út skaðabætur fyrr en þetta er farið fyrir lágmark landsrétt með sömu niðurstöðu.
Ég sem skattgreiðandi fer fram á að þetta fari alla leið.

Enda kostnaður við áfrýjun smápeningar miðað við það sem upphæðirnar sem eru undir.


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !

Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1261
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 384
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf Njall_L » Fös 18. Des 2020 08:32

Annar sambærilegur dómur féll í gær: https://www.frettabladid.is/frettir/ibu ... ytendalog/

Þessi dómur virðist vera sambærilegur í meginatriðum en gengur þó lengra en sá fyrri.
Fréttablaðið skrifaði:Hinn nýfallni dómur gengur þó enn lengra því auk þess að dæma ÍL-sjóð brotlegan við húsnæðislög er sjóðurinn einnig talinn hafa gerst brotlegur við neytendalög, meðal annars með lélegri upplýsingagjöf.

„Þessi dómur í raun og veru kemur með þau viðbótarsjónarmið að það hafi verið brotið gegn lögum um neytendamál með því að lánaskilmálar tiltóku ekki hvernig uppgreiðslugjald skyldi reiknað út,“ segir Jónas Fr. Jónsson hæstaréttarlögmaður sem sótti málið fyrir hönd hjónanna.


Löglegt WinRAR leyfi

Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 726
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 43
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf gRIMwORLD » Fös 18. Des 2020 11:06

Njall_L skrifaði:Annar sambærilegur dómur féll í gær: https://www.frettabladid.is/frettir/ibu ... ytendalog/

Þessi dómur virðist vera sambærilegur í meginatriðum en gengur þó lengra en sá fyrri.
Fréttablaðið skrifaði:Hinn nýfallni dómur gengur þó enn lengra því auk þess að dæma ÍL-sjóð brotlegan við húsnæðislög er sjóðurinn einnig talinn hafa gerst brotlegur við neytendalög, meðal annars með lélegri upplýsingagjöf.

„Þessi dómur í raun og veru kemur með þau viðbótarsjónarmið að það hafi verið brotið gegn lögum um neytendamál með því að lánaskilmálar tiltóku ekki hvernig uppgreiðslugjald skyldi reiknað út,“ segir Jónas Fr. Jónsson hæstaréttarlögmaður sem sótti málið fyrir hönd hjónanna.


Fyrri dómurinn fjallaði um það að ÍLS hefði farið út fyrir lagaheimild með því að setja á uppgreiðslugjald þar sem lagaheimildin krafðist sérstakra aðstæðna. Ss uppgreiðslugjaldið ólöglegt.

Seinni dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að upplýsingagjöf varðandi reikniformúlu uppgreiðslugjalds hefði verið svo brotin að lántökum hafi verið ómögulegt í raun að reikna út hve uppgreiðslan væri há hverju sinni.

Nú þurfum við að bíða niðurstöðu efri dómsstiga.


IBM PS/2 8086

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf GuðjónR » Fös 18. Des 2020 16:02

Svona reikna þeir uppgreiðslugjaldið:
https://www.althingi.is/altext/pdf/148/s/0475.pdf
Viðhengi
Screenshot 2020-12-18 at 15.53.49.png
Screenshot 2020-12-18 at 15.53.49.png (342.01 KiB) Skoðað 4226 sinnum
Screenshot 2020-12-18 at 16.01.11.png
Screenshot 2020-12-18 at 16.01.11.png (185.46 KiB) Skoðað 4226 sinnum



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf GuðjónR » Þri 19. Jan 2021 22:16





falcon1
Tölvutryllir
Póstar: 637
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 68
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf falcon1 » Mið 20. Jan 2021 18:31

Það verður áhugavert að sjá hvort að Hæstiréttur þori að staðfesta dóm Héraðsdóms.



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf GuðjónR » Mið 20. Jan 2021 19:54

falcon1 skrifaði:Það verður áhugavert að sjá hvort að Hæstiréttur þori að staðfesta dóm Héraðsdóms.

Já það verður það, en heldurðu að fólk almennt eigi auðvelt með að átta sig á uppgreiðslugjaldinu eftir uppgefnum formúlum hér að ofan?
Ef ekki, þá er þeim varla stætt á því að snúa niðurstöðu héraðsdóms.



Skjámynd

Nariur
Of mikill frítími
Póstar: 1860
Skráði sig: Sun 08. Jún 2008 01:18
Reputation: 219
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf Nariur » Mið 20. Jan 2021 21:57

Það er náttúrulega bara fólkinu sjálfu að kenna ef það skilur ekki einfalda stærðfræði. Þetta eru voðalega basic vaxtaútreikningar.
Þegar þú skrifar undir plagg upp á tugi milljóna berð þú ábyrgð á að hafa lesið og skilið það.


AMD Ryzen 9 5950X | Noctua NH-D15 | Nvidia Geforce RTX 3080Ti HOF | MSI MAG X570 Tomahawk | 32GB Corsair Vengeance RGB 3600MHz DDR4 | Corsair RM1000i | Samsung 950 Pro 512GB| Fractal Define R5 | LG CX 48" OLED

Skjámynd

gRIMwORLD
FanBoy
Póstar: 726
Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
Reputation: 43
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf gRIMwORLD » Fim 21. Jan 2021 11:10

Nariur skrifaði:Það er náttúrulega bara fólkinu sjálfu að kenna ef það skilur ekki einfalda stærðfræði. Þetta eru voðalega basic vaxtaútreikningar.
Þegar þú skrifar undir plagg upp á tugi milljóna berð þú ábyrgð á að hafa lesið og skilið það.


Aha...tell me more!!

En þegar þú ert með ÍLS lán og hringir í ÍLS til að fá að vita hvert uppgreiðslugjaldið er núna...og manneskjan á línunni segir að það "taki tíma að finna það út". Var reiknireglan aðgengileg á sínum tíma? nah það er too easy

Direct quote frá starfsmanni ÍLS:

"Þú er með svona lose lose lán!"


IBM PS/2 8086

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf GuðjónR » Fim 21. Jan 2021 12:17

Nariur skrifaði:Það er náttúrulega bara fólkinu sjálfu að kenna ef það skilur ekki einfalda stærðfræði. Þetta eru voðalega basic vaxtaútreikningar.
Þegar þú skrifar undir plagg upp á tugi milljóna berð þú ábyrgð á að hafa lesið og skilið það.

hahaha góður!
Einföld stærðfærði, starfsfólk stofnunarinnar getur ekki reiknað þetta út fyrir þig nema í þar til gerðu forriti :megasmile




gunni91
Vaktari
Póstar: 2997
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 217
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf gunni91 » Fim 15. Apr 2021 15:18

https://www.vb.is/frettir/sjo-domarar-i ... um/167933/


Ekki að ég græði eitthvað á þessu en frábært ef þetta gengur í gegn :baby :baby :baby



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf GuðjónR » Fim 15. Apr 2021 16:47

gunni91 skrifaði:https://www.vb.is/frettir/sjo-domarar-i-uppgreidslumalum/167933/


Ekki að ég græði eitthvað á þessu en frábært ef þetta gengur í gegn :baby :baby :baby

Það vona ég líka, þá á ég í kringum 2M kr. kröfu á þá.
„Málflutningur í málunum tveimur verður í byrjun maí.“




gunni91
Vaktari
Póstar: 2997
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 217
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf gunni91 » Mið 19. Maí 2021 09:48

Hefur einhver heyrt meira um þetta mál?

„Málflutningur í málunum tveimur verður í byrjun maí.“




Gormur11
Fiktari
Póstar: 99
Skráði sig: Lau 17. Des 2005 16:06
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf Gormur11 » Mið 19. Maí 2021 09:58

Málið var flutt í Hæstarétti þann 5. maí sl.

Það er ekki ólíklegt að dómur falli í lok maí eða byrjun ágúst.



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf GuðjónR » Mið 19. Maí 2021 14:51

Gormur11 skrifaði:Málið var flutt í Hæstarétti þann 5. maí sl.

Það er ekki ólíklegt að dómur falli í lok maí eða byrjun ágúst.


Ég las það einhvers staðar að niðurstaðan ætti að liggja fyrir í þessum mánuði.



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6395
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 463
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf worghal » Mið 19. Maí 2021 14:58



CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow


gunni91
Vaktari
Póstar: 2997
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 217
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf gunni91 » Mið 19. Maí 2021 15:00

worghal skrifaði:svo var þetta að detta inn https://www.visir.is/g/20212111220d?fbc ... A5VyjU7GJw


Ég einmitt kvittaði undir umboðið áðan. Það er frábært að sjá stofnun líkt og Neytendasamtökin að koma svona stórum málefnum af stað.



Skjámynd

g0tlife
1+1=10
Póstar: 1179
Skráði sig: Mán 05. Nóv 2007 15:57
Reputation: 166
Staðsetning: Sit í fanginu hans Guðjóns
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf g0tlife » Mið 19. Maí 2021 20:20

gunni91 skrifaði:
worghal skrifaði:svo var þetta að detta inn https://www.visir.is/g/20212111220d?fbc ... A5VyjU7GJw


Ég einmitt kvittaði undir umboðið áðan. Það er frábært að sjá stofnun líkt og Neytendasamtökin að koma svona stórum málefnum af stað.



Ég tók fyrsta lánið með breytilegum fyrir einu ári síðan. Ætti maður að kvitta undir þetta eða hvað?


Intel i9-10900KF // Nvidia RTX 3080 // 2x 1TB M.2 // 1TB Samsung 860 Evo // G.Skill 32GB Ripjaws V 3600MHz // ASRock Z490 Extreme4 // Samsung Odyssey G7 32''

My CPU's Hot But My Core Runs Cold


gunni91
Vaktari
Póstar: 2997
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 217
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf gunni91 » Mið 19. Maí 2021 21:33

g0tlife skrifaði:
gunni91 skrifaði:
worghal skrifaði:svo var þetta að detta inn https://www.visir.is/g/20212111220d?fbc ... A5VyjU7GJw


Ég einmitt kvittaði undir umboðið áðan. Það er frábært að sjá stofnun líkt og Neytendasamtökin að koma svona stórum málefnum af stað.



Ég tók fyrsta lánið með breytilegum fyrir einu ári síðan. Ætti maður að kvitta undir þetta eða hvað?


Jú myndi gera það. Þó vextir séu hagstæðari núna en síðustu ár eru alltaf einhverjar krónur á að sækja.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4196
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1342
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf Klemmi » Mið 19. Maí 2021 22:13

gunni91 skrifaði:Jú myndi gera það. Þó vextir séu hagstæðari núna en síðustu ár eru alltaf einhverjar krónur á að sækja.


Ha, ef vextir hafa bara lækkað síðan maður tók breytilega, þá hefur maður ekki orðið fyrir neinum skaða, og á þar með ekki rétt á neinum skaðabótum, eða hvað?
Eða er þetta því að ef vextir banka hefðu elt stýrivexti, þá væru þeir enn lægri?

Spyr sá sem ekki veit. Auðvitað sakar ekki að skrifa undir, en það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr þessu, nú þegar breytilegir vextir eru líklegir til að hækka.




gunni91
Vaktari
Póstar: 2997
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 217
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf gunni91 » Mið 19. Maí 2021 22:50

Klemmi skrifaði:
gunni91 skrifaði:Jú myndi gera það. Þó vextir séu hagstæðari núna en síðustu ár eru alltaf einhverjar krónur á að sækja.


Ha, ef vextir hafa bara lækkað síðan maður tók breytilega, þá hefur maður ekki orðið fyrir neinum skaða, og á þar með ekki rétt á neinum skaðabótum, eða hvað?
Eða er þetta því að ef vextir banka hefðu elt stýrivexti, þá væru þeir enn lægri?

Spyr sá sem ekki veit. Auðvitað sakar ekki að skrifa undir, en það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr þessu, nú þegar breytilegir vextir eru líklegir til að hækka.


Ja ég er að rugla sé ég #-o

Rétt skilið hjá þér, ég var að lesa yfir þetta betur og er þetta meðal annars lögsókn gegn ólögmætum vaxtahækkunnum.

Aðili sem tekur nýtt lán á ákveðnum kjörum er væntanlega ekki að fá krónu ef vextir hafa aðeins lækkað.

líkt og þú nefnir sakar ekki að veita umboð ef það styrkir málið.
Síðast breytt af gunni91 á Mið 19. Maí 2021 22:52, breytt samtals 1 sinni.




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4196
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1342
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf Klemmi » Mið 19. Maí 2021 22:59

gunni91 skrifaði:Ja ég er að rugla sé ég #-o

Rétt skilið hjá þér, ég var að lesa yfir þetta betur og er þetta meðal annars lögsókn gegn ólögmætum vaxtahækkunnum.

Aðili sem tekur nýtt lán á ákveðnum kjörum er væntanlega ekki að fá krónu ef vextir hafa aðeins lækkað.

líkt og þú nefnir sakar ekki að veita umboð ef það styrkir málið.


Ég rúllaði í gegnum þetta, og sá að þeir nefna samt líka að lán sem hafa fasta vexti í ákveðinn tíma, s.s. 3 - 5 ár, megi mögulega líta á sem lán með breytilegum vöxtum, þar sem vextir breytist á lánstímanum.

Það verður mjög fróðlegt að fylgjast með þessu, þar sem lög meðal annars kveða á um að það megi ekki krefjast uppgreiðslugjalds ef að lán ber breytilega vexti. Ef raunin verður að fyrrnefnd lán teljist til lána með breytilega vexti, þá er auðvitað um mikið víðtækara svið að ræða, og getur þetta munað umtalsverðu fyrir þá sem til dæmis hafa ákveðið að endurfjármagna og greiða uppgreiðslugjaldið, eða ef menn geta sýnt fram á skaða sem hlaust af því að þeir endurfjármögnuðu ekki, sökum uppgreiðslugjaldsins, og fóru því á mis við betri lánakjör.
Síðast breytt af Klemmi á Mið 19. Maí 2021 23:00, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16568
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2135
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppgreiðslugjald Íbúðalánasjóðs dæmt ólöglegt !!!

Pósturaf GuðjónR » Fim 20. Maí 2021 07:54

Klemmi skrifaði:
gunni91 skrifaði:Ja ég er að rugla sé ég #-o

Rétt skilið hjá þér, ég var að lesa yfir þetta betur og er þetta meðal annars lögsókn gegn ólögmætum vaxtahækkunnum.

Aðili sem tekur nýtt lán á ákveðnum kjörum er væntanlega ekki að fá krónu ef vextir hafa aðeins lækkað.

líkt og þú nefnir sakar ekki að veita umboð ef það styrkir málið.


Ég rúllaði í gegnum þetta, og sá að þeir nefna samt líka að lán sem hafa fasta vexti í ákveðinn tíma, s.s. 3 - 5 ár, megi mögulega líta á sem lán með breytilegum vöxtum, þar sem vextir breytist á lánstímanum.

Það verður mjög fróðlegt að fylgjast með þessu, þar sem lög meðal annars kveða á um að það megi ekki krefjast uppgreiðslugjalds ef að lán ber breytilega vexti. Ef raunin verður að fyrrnefnd lán teljist til lána með breytilega vexti, þá er auðvitað um mikið víðtækara svið að ræða, og getur þetta munað umtalsverðu fyrir þá sem til dæmis hafa ákveðið að endurfjármagna og greiða uppgreiðslugjaldið, eða ef menn geta sýnt fram á skaða sem hlaust af því að þeir endurfjármögnuðu ekki, sökum uppgreiðslugjaldsins, og fóru því á mis við betri lánakjör.


Tæknilega séð eru allir vextir á öllum óverðtryggðum lánum breytilegir, þeir breytast ýmist í takt við stýrivexti Seðlabanka eða breytast á 3-5 ára fresti. Þannig að 40 ára lán með svokallaða „fasta vexti“ breytir vöxtum 13 sinnum á líftíma sínum og því má færa rök fyrir því að það sé lán með breytilegum vöxtum. Ég reikna með að tekist verði á um þessar skilgreiningar.