Sælir vaktarar
Nú er ég að hugsa um að kaupa mér notaðan bíl af bílasölu og vantar ráðleggingar með hvað er sniðugt að hafa í huga til að kaupa ekki köttinn í sekknum.
Ég áætla að fara með bílinn í þjónustuskoðun, eru einhver verkstæði betri en önnur?
Umræddur bíll sem ég er að hugsa um er notaður bílaleigubíll, er eitthvað sem þarf sérstaklega að varast í þeim?
Ef eitthvað finnst að, mekanískt, útlitslegt eða annað, hversu mikið rými get ég áætlað til að semja um verð á bílnum?
Öll ráð eru vel þegin, ekki bara þau sem ég taldi upp hér að ofan
Að kaupa notaðan bíl - Ráð?
Re: Að kaupa notaðan bíl - Ráð?
Njall_L skrifaði:Umræddur bíll sem ég er að hugsa um er notaður bílaleigubíll, er eitthvað sem þarf sérstaklega að varast í þeim?
Það var nú stór skandall um árið með bílaleigubíla setta á endursölu með kílómetramælinn færðan tilbaka. Stundum um fleiri tugi þúsund kílómetra, gott að hafa þetta í huga. En þetta var svo stórt mál á sínum tíma að mér finnst ólíklegt að einhver reyni þetta núna, en það er aldrei að vita...
LG 38GN95B-B 3840x1600p160Hz - Logitech GMX508 - dasKeyboard Professional 4
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X470 Strix - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS
Xiaomi Mi Notebook Pro 15 i7/16/256
R5 5600 - 32GB DDR4@3200 - Asus X470 Strix - Zotac RTX 3080Ti Holo Amp
Unraid Xeon E5 2637 v4 - 256GB DDR4 ECC - Huananzhi F8 X99 - 4x 4TB Seagate Exos SAS
-
- Vaktari
- Póstar: 2534
- Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
- Reputation: 379
- Staðsetning: 800
- Staða: Ótengdur
Re: Að kaupa notaðan bíl - Ráð?
Þjónustuskoðunin sem þú nefndir er eitt, tvö og þrjú í mínum huga! Áður en ég keypti minn síðasta þá komu þrjú skipti í röð þar sem ég hugsaði "What's the worst that could happen??" og keypti 3 mishandónýta bíla sem endust misvel en allir illa samt sem áður!
Og svo er lang best að nota "Buddy-Systemið", þar að segja vera með einhvern félaga og vin sem þú treystir og kann bíla eins og handabakið á sér með þér þegar þú skoðar bílinn og prufukeyrir! Það klikkar seint sem aldrei!

Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
Re: Að kaupa notaðan bíl - Ráð?
Söluskoðun/Þjónustuskoðun !
Fyrst að þetta er bílaleigubíll skaltu reyna fá eins mikið af pappírum og eru til frá þeim.
Passaðu svo bara að km fjöldinn á þessu pappírum stemmi við dagsetningar:
Miðað við að Procar hefur ekki þurft að loka eða fengið neina sekt þá finnst mér ekkert ólíklegt að það séu fleiri í þessu...
Fyrst að þetta er bílaleigubíll skaltu reyna fá eins mikið af pappírum og eru til frá þeim.
- Hvenær og hvað hefur verið lagað, hvenær og hversu oft var hann "skoðaður" (væntanlega er þetta nýr bíll og hefur því ekki þurft venjulega ársskoðun)
- Hvenær og hversu oft var skipt um olíu; olíusíu, loftsíur og frjókornasíur
- Hefur verið skipt um/bætt á olíu á gírkassa/skiptingu (Þarf ekki endilega að hafa verið gert)
- Hefur einhverntíma þurft að lagfæra eitthvað í stýrisbúnaði
- Ástand á bremsuklossum/diskum
Passaðu svo bara að km fjöldinn á þessu pappírum stemmi við dagsetningar:
Dropi skrifaði:Njall_L skrifaði:Umræddur bíll sem ég er að hugsa um er notaður bílaleigubíll, er eitthvað sem þarf sérstaklega að varast í þeim?
Það var nú stór skandall um árið með bílaleigubíla setta á endursölu með kílómetramælinn færðan tilbaka. Stundum um fleiri tugi þúsund kílómetra, gott að hafa þetta í huga. En þetta var svo stórt mál á sínum tíma að mér finnst ólíklegt að einhver reyni þetta núna, en það er aldrei að vita...
Miðað við að Procar hefur ekki þurft að loka eða fengið neina sekt þá finnst mér ekkert ólíklegt að það séu fleiri í þessu...
Gigabyte X570 - Ryzen 5900 @ 4.5ghz all core - 5ghz single core - 64gb TridentZ 3400mhz - AMD 7900XTX
Re: Að kaupa notaðan bíl - Ráð?
Alltaf gott að fá söluskoðun á bílinn. Ef þú ert að kaupa af Avis(ALP), Hertz eða Höldur þá á viðhaldi að hafa verið sinnt vel ekki eins vel veit ég hjá Bílaleigu Kynnisferða en þarft ekki að hafa áhyggjur af kílómetrastöðu hjá þessum aðilum því það er allt í standi. Átt að geta sótt ábyrgð til þessara aðila í amk 6 mánuði eftir kaup en þá að sjálfsögðu á stórum hlutum eins og vél og gírkassa en ekki bremsum.
Ef eitthvað er að bílnum þá eru þessir 3 aðilar amk oftast tilbúnir að laga það sem umræðir fyrir þig og hægt að fá það skráð í afsal.
Ef eitthvað er að bílnum þá eru þessir 3 aðilar amk oftast tilbúnir að laga það sem umræðir fyrir þig og hægt að fá það skráð í afsal.
Ryzen 2600x - 24GB 2400MHz DDR4 - Phoenix GTX 1080 GLH 8GB - Gigabyte B450M DS3H
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 1263
- Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
- Reputation: 384
- Staða: Ótengdur
Re: Að kaupa notaðan bíl - Ráð?
Predator skrifaði:...ekki eins vel veit ég hjá Bílaleigu Kynnisferða...
Umræddur bíll sem ég er að hugsa um er akkúrat í eigu Bílaleigu Kynnisferða, takk fyrir þetta input
Baldurmar skrifaði:Fyrst að þetta er bílaleigubíll skaltu reyna fá eins mikið af pappírum og eru til frá þeim.
Góð pæling, var ekki endilega búinn að pæla í þessu.
Varðandi kílómetramælinn þá er það eina atriðið sem ég er smeykur við varðandi bílaleigubíl. En auðvitað gætu einstaklingar líka unnið þessar aðgerðir ef þeir vildu. Aðal málið sýnist mér að skoða bílinn vel og fá mat frá þriðja aðila.
Löglegt WinRAR leyfi