Ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf næsta vor

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3175
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 546
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf næsta vor

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 09. Sep 2017 15:47

Vildi forvitnast hvort vaktarar hafi kynnt sér nýja persónuverndarlögjöfina sem kemur til fram­kvæmda hér á landi næsta vor ?

Vildi einnig forvitnast hvort mikil umræða hefur verið um þessa nýju löggjöf á ykkar vinnustað eða hvort þið hafið kynnt ykkur nýju löggjöfina og hvaða skoðun þið hafið á henni ?

Hérna er ágætis grein á Mbl sem fjallar um nýju persónuverndarlöggjöfina

Hérna fyrir neðan eru einnig linkar í kynningarefni persónuverndar um nýju löggjöfina.

Fyrirtæki

Einstaklingar

Ný persónuverndarlöggjöf 2018 - efni á Personuvernd.is
Síðast breytt af Hjaltiatla á Lau 09. Sep 2017 16:11, breytt samtals 3 sinnum.


Just do IT
  √

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2587
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 482
Staða: Ótengdur

Re: Ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf næsta vor

Pósturaf Moldvarpan » Lau 09. Sep 2017 16:01

Það er nú lítið sem ekkert fjallað um hverjar þessar breytingar eru.

Bara röflað í hringi um ekkert.

Get ekki myndað skoðun útfrá þessu mbl shitti.



Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3175
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 546
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf næsta vor

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 09. Sep 2017 16:08

Moldvarpan skrifaði:Það er nú lítið sem ekkert fjallað um hverjar þessar breytingar eru.

Bara röflað í hringi um ekkert.

Get ekki myndað skoðun útfrá þessu mbl shitti.


Ok, var að bæta við linkum í kynningarbæklinga frá Persónuvernd í upphaflega póstinn minn.

Það eru meira að segja myndir og alls konar í bæklingnum :evillaugh


Just do IT
  √

Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3175
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 546
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf næsta vor

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 09. Sep 2017 16:19

Persónulega finnst mér þessi viðauki mjög flottur

"Rétturinn til að gleymast
Þú átt rétt á því í vissum tilvikum að persónuupplýsingar um þig séu leiðréttar eða þeim eytt, t.d. ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess tilgangs sem þeirra var upphaflega aflað í. Einnig getur þú óskað eftir því að leitarvélar á Netinu afmái leitarniðurstöðu um þig, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, ef hún hefur neikvæð áhrif á friðhelgi einkalífs þíns."

Þetta er í boði fyrir fólk í ESB í dag
https://forget.me/faq


Just do IT
  √

Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1034
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: Ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf næsta vor

Pósturaf Revenant » Lau 09. Sep 2017 16:28

Það er ekki búið að innleiða þessa ESB lögjöf inn í íslenskt lagaumhverfi og heldur ekki segja reglugerð.
Hvað sem persónuvernd segir þá gilda enn lög nr. 77/2000 þangað til að ný löggjöf verður sett (með tilheyrandi reglugerð ef með þarf).
Þá má ekki gleyma að það þarf síðan aðlögunartíma/innleiðingartíma þannig þessi lög munu eflaust koma til framkvæmda 2019 eða 2020 á Íslandi.



Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3175
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 546
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf næsta vor

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 09. Sep 2017 16:34

Revenant skrifaði:Það er ekki búið að innleiða þessa ESB lögjöf inn í íslenskt lagaumhverfi og heldur ekki segja reglugerð.
Hvað sem persónuvernd segir þá gilda enn lög nr. 77/2000 þangað til að ný löggjöf verður sett (með tilheyrandi reglugerð ef með þarf).
Þá má ekki gleyma að það þarf síðan aðlögunartíma/innleiðingartíma þannig þessi lög munu eflaust koma til framkvæmda 2019 eða 2020 á Íslandi.


Jebb , það er ekki búið að innleiða þessa lögjöf.

Hins vegar eru einhver fyrirtæki byrjuð að innleiða þessa lögjöf t.d Landsbankinn. Hérna er t.d yfirskriftin af fyrirlestri sem Alma Tryggvadóttir
hjá Landsbankanum hélt í gær á Haustráðstefnu Advania.

"Ný persónuverndarlöggjöf: 259 dagar til stefnu!

Fyrirtæki og stofnanir eru í óða önn að undirbúa sig fyrir nýja persónuverndarlöggjöf sem kemur til framkvæmda um mitt ár 2018. Nýjar skyldur fyrirtækja og aukin réttindi einstaklinga liggja ljós fyrir og framundan er aðlögunarferli sem ljúka þarf á 259 dögum. Hvernig er persónuvernd og friðhelgi einkalífs smíðuð inn í menningu, verkferla og rekstur fyrirtækja? Hvernig er unnt að tryggja einstaklingum persónuvernd en jafnframt tryggja hagræði í rekstri og arðsemi? Greint verður frá því hvernig Landsbankinn er að undirbúa og aðlaga starfsemi sína að hinu breytta landslagi í persónuverndarmálum."


Sýnist á öllu að aðlögunartíminn sé hafinn á þessari nýju reglugerð.


Just do IT
  √


rbe
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 347
Skráði sig: Fös 06. Des 2013 00:11
Reputation: 73
Staða: Ótengdur

Re: Ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf næsta vor

Pósturaf rbe » Lau 09. Sep 2017 18:21

"Rétturinn til að gleymast"

ég er rétt að vona að fólk sé að grínast ?
það er auðveldara að fara á árabát yfir kyrrahafið ?
en að láta eyða kennitölunni þinni og nafni úr öllum gagnagrunnum sem þú ert í ?
ég ætla ekki einu sinni að reyna giska hvað kennitalan mín og nafnið mitt er í mörgum gagnagrunnum ?

hvað vitum við um fólk "common people" sem var til fyrir 500-1000 árum ?
væri forvitinlegt að fá gagnasúpuna um einn einstakling á einn stað í dag ?

voðalega lítið við þessu að gera ? svipað og að stoppa sjáfarföllin með fötu. heimurinn breytist dag frá degi.



Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3175
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 546
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf næsta vor

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 09. Sep 2017 18:27

rbe skrifaði:"Rétturinn til að gleymast"

ég er rétt að vona að fólk sé að grínast ?
það er auðveldara að fara á árabát yfir kyrrahafið ?
en að láta eyða kennitölunni þinni og nafni úr öllum gagnagrunnum sem þú ert í ?
ég ætla ekki einu sinni að reyna giska hvað kennitalan mín og nafnið mitt er í mörgum gagnagrunnum ?

hvað vitum við um fólk "common people" sem var til fyrir 500-1000 árum ?
væri forvitinlegt að fá gagnasúpuna um einn einstakling á einn stað í dag ?

voðalega lítið við þessu að gera ? svipað og að stoppa sjáfarföllin með fötu. heimurinn breytist dag frá degi.


Bið þig um að halda þig við málefnið og ekki byrja að ræða um flóttamenn á þessum þræði.
Er ekki viss hvernig þú last í lögjöfina "Rétturinn til að gleymast" eða hvort þú varst eingöngu að lesa þá línu.


Just do IT
  √


rbe
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 347
Skráði sig: Fös 06. Des 2013 00:11
Reputation: 73
Staða: Ótengdur

Re: Ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf næsta vor

Pósturaf rbe » Lau 09. Sep 2017 19:05

"Rétturinn til að gleymast
Þú átt rétt á því í vissum tilvikum að persónuupplýsingar um þig séu leiðréttar eða þeim eytt, t.d. ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess tilgangs sem þeirra var upphaflega aflað í. Einnig getur þú óskað eftir því að leitarvélar á Netinu afmái leitarniðurstöðu um þig, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, ef hún hefur neikvæð áhrif á friðhelgi einkalífs þíns."

ég var nú bara að kommenta á þetta sem þú sagðir , þú varst væntanlega að tala um málefnið ?
það sem ég var aðallega að meina með fyrri pósti að þegar ég er dauður og grafinn? megnið af þessum upplýsingum er tilgangslaus þá ?
t.d. ef upplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þágu þess tilgangs sem þeirra var upphaflega aflað í.