Sælir vaktarar,
Nú er þetta orðiði eitthvað skrítið, síðan þeirra er búinn að vera í uppfærslu í allavega mánuð og engin sem hefur svarað í símann eða email í dágóðan tíma líka.
Ef einhver hefur fundið start.is má endilega láta mig vita
Start.is hættir?
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1020
- Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
- Reputation: 101
- Staðsetning: Reykjanesbær
- Staða: Ótengdur
Re: Start.is hættir?
Geronto skrifaði:Sælir vaktarar,
Nú er þetta orðiði eitthvað skrítið, síðan þeirra er búinn að vera í uppfærslu í allavega mánuð og engin sem hefur svarað í símann eða email í dágóðan tíma líka.
Ef einhver hefur fundið start.is má endilega láta mig vita
Mér skildist á einhverjum pósti sem var hérna um daginn að þeir væru farnir á hausinn.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16576
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2137
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Start.is hættir?
Lokað í dag, stendur á hurðinni. Er reyndar búið að standa í nokkrar vikur.
Facebook síður start.is og dreamware.is eru farnar og því líklegt að fyrirtækið sé hætt.
Facebook síður start.is og dreamware.is eru farnar og því líklegt að fyrirtækið sé hætt.
-
- Skjákortaníðingur
- Póstar: 5106
- Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
- Reputation: 930
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Start.is hættir?
Maður er ekki alveg viss um hvort vaktin góða hafi endilega verið til alls góð. Minnir í den að það hafi verið svakalegir séníar að vinna í þessum tölvubúðum, en núna oftar en ekki einhverjir freðnir unglingar sem vita nánast ekkert.
Maður fær það sem maður borgar fyrir.
Maður fær það sem maður borgar fyrir.
Re: Start.is hættir?
jonsig skrifaði:Maður er ekki alveg viss um hvort vaktin góða hafi endilega verið til alls góð. Minnir í den að það hafi verið svakalegir séníar að vinna í þessum tölvubúðum, en núna oftar en ekki einhverjir freðnir unglingar sem vita nánast ekkert.
Maður fær það sem maður borgar fyrir.
Ég myndi segja að menn séu að panta mun meira yfir internetið en áður.
Svo eru PC tölvur bara á undanhaldi, menn endurnýja mun sjaldnar, og flest heimili landsins ekki lengur með þetta á heimilinu.
Ef þú vilt finna "sökudólg" þá efast ég um að vaktin spili stórt hlutverk þar.
*-*
-
- Stjórnandi
- Póstar: 1198
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 03:55
- Reputation: 255
- Staðsetning: Reykjavík
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Start.is hættir?
Ég held það sé alveg hægt að fullyrða að margar búðirnar hefðu annaðhvort aldrei orðið til eða náð flugi á sínum tíma ef ekki hefði verið fyrir vaktin.is Þetta var ókeypis auglýsing og gerði allar búðirnar verulega sýnilegar og gaf litlu búðunum tækifæri á að koma höggi á þær stærri. Við Guðjón höfum það staðfest frá sumum stofnendunum að þetta hafi komið sér vel þrátt fyrir að viðkomandi hafi ekki alltaf verið grænn, heldur var það einmitt sýnileikinn sem skilaði alltaf sínu. Hvað sem öllu líður er glatað að missa búð úr lestinni, ég öfunda ekki verslunareigendur í dag þar sem þeir þurfa að keppa við erlenda netverslun á sama tíma og lagerinn þeirra úreldist mjög hratt og samkeppnin gríðarlega hörð. Það er ekkert grín að eiga alltaf allt til á lager og á samkeppnishæfu verði nema með því að panta í stórkostlegu magni. M.ö.o. er nær vonlaust að ætla að halda úti verslun þegar aðilar eins og Tölvulistinn og Tölvutek geta spilað út "ódýrari" búðum þeim til höfuðs, eina sérstaðan sem lítil verslun getur boðið upp á er þjónusta, og það getur reynst erfitt þegar álagningin er svo lítil að það borgar sig varla að standa í þessu.
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1744
- Skráði sig: Sun 02. Jan 2011 12:37
- Reputation: 41
- Staða: Ótengdur
Re: Start.is hættir?
hvað af þessum litlu búðum er eftir í séreign, semsagt ekki framlenging af stærri búðum.
Tölvulistinn á @tt er það ekki
Tölvutek á ódýrið
hvernig er þetta með restina eru þær allar í séreign?
Tölvulistinn á @tt er það ekki
Tölvutek á ódýrið
hvernig er þetta með restina eru þær allar í séreign?
-
- Vaktari
- Póstar: 2587
- Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
- Reputation: 482
- Staða: Ótengdur
Re: Start.is hættir?
Kristján skrifaði:hvað af þessum litlu búðum er eftir í séreign, semsagt ekki framlenging af stærri búðum.
Tölvulistinn á @tt er það ekki
Tölvutek á ódýrið
hvernig er þetta með restina eru þær allar í séreign?
Kísildalur og Tölvutækni?
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1744
- Skráði sig: Sun 02. Jan 2011 12:37
- Reputation: 41
- Staða: Ótengdur
Re: Start.is hættir?
Moldvarpan skrifaði:Kristján skrifaði:hvað af þessum litlu búðum er eftir í séreign, semsagt ekki framlenging af stærri búðum.
Tölvulistinn á @tt er það ekki
Tölvutek á ódýrið
hvernig er þetta með restina eru þær allar í séreign?
Kísildalur og Tölvutækni?
Computer.is ekki í séreign?