Áhugavert project hjá CZ.NIC (TLD register fyrir CZ lénið) með nýjan router með OpenWRT stýrikerfinu:
https://omnia.turris.cz/en/
Ætti að vera future proof þegar 1 Gbps ljósleiðaratengingar koma
Turris Omnia
Re: Turris Omnia
Oh My God hvað þetta er sniðugt apparat! meira svona! takk kærlega fyrir að benda mér á þetta!
ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV
Re: Turris Omnia
Nú er ég alveg grænn þegar það kemur að netbúnaði. Nennið þið að útskýra hvað er svona framúrskarandi nýjung við þetta ?
-
Höfundur - </Snillingur>
- Póstar: 1034
- Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
- Reputation: 132
- Staða: Ótengdur
Re: Turris Omnia
mercury skrifaði:Nú er ég alveg grænn þegar það kemur að netbúnaði. Nennið þið að útskýra hvað er svona framúrskarandi nýjung við þetta ?
"Meðal-router" sem þú færð hjá símafyrirtækjum er með specca upp á ca. 400 MHz, 8MB ram og 32 MB flash disk.
Stýrikerfi á þessum búnaði sem var hent saman af lowest bidder oft með mjög gömlum hugbúnaðarútgáfum og veikleikum sem fyrirtæki nenna/tíma ekki að plástra.
Í raun er þetta lítil tölva með 5 auka lan tengjum og wifi korti með stýrikerfi sem þú getur uppfært, breytt og customizer-að eins og þér hentar.
Oft er það netbúnaðurinn sem höndlar ekki þá bandvídd/fjölda tenginga/álag sem heimilið er með (torrent, twitch, youtube o.s.frm) og veldur lélegri upplifun.
Þessir speccar (1,6 GHz, 1GB ram, 4 GB flash) eru svipaðir speccar og á OnHub routerinum sem Google er að promote-a.