Vantar aðstoð við uppfærslu

Hér getur þú óskað eftir tölvum og tölvutengdum búnaði.

Höfundur
GGG
Ofur-Nörd
Póstar: 216
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 00:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vantar aðstoð við uppfærslu

Pósturaf GGG » Mið 14. Jan 2015 00:31

Ég er að spá í að uppfæra borðtölvuna mína og mig vantar móðurborð, örgjörva, 16 GB minni og SSD disk.

Með hverju mæliði fyrir ca. 50 - 70 þús? er líka alveg opinn fyrir nýju skjákorti (er með HD 5700) ef það er hægt fyrir þennan pening :)

Fyrirfram þakkir G.




Davidoe
Fiktari
Póstar: 90
Skráði sig: Þri 04. Sep 2007 15:48
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð við uppfærslu

Pósturaf Davidoe » Mið 14. Jan 2015 11:28

Veit ekki hversu mikil uppfærsla þetta yrði fyrir þig en hérna eru hugmyndir úr tvem búðum, á undir 70þ.

Frá Tölvutækni með engu skjákorti getur þú fengið eitthvað svona.
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2751 MATX móurborð 12.900kr.
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=2739 i3 örgjafi 17.900kr.
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2518 120GB SSD 11.900kr.
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=2360 16GB (2x8) vinnsluminni 24.900k.
Samtals 67.600kr.

Og hjá Start er þetta einhvern veginn svona með skjákorti.
StartKarfa.png
StartKarfa.png (79.61 KiB) Skoðað 1381 sinnum


|i7-920@4GHz|Megahalems|GA-EX58-UD5|3x4GB+3x2GB 1600MHz|
|ZM850-HP|HD 5770|Zalman MS1000|Samsung 840 250GB|


vatr9
Nörd
Póstar: 122
Skráði sig: Fim 18. Sep 2008 13:34
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð við uppfærslu

Pósturaf vatr9 » Mið 14. Jan 2015 12:31

Er líka að spá í að uppfæra turninn minn. Af hverju 16GB í minni. Eru 8GB ekki nóg í dag í daglega vinnslu?
Er maður að fá hraðaaukningu með 16GB svo einhverju nemi?



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16554
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2130
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð við uppfærslu

Pósturaf GuðjónR » Mið 14. Jan 2015 12:54

vatr9 skrifaði:Er líka að spá í að uppfæra turninn minn. Af hverju 16GB í minni. Eru 8GB ekki nóg í dag í daglega vinnslu?
Er maður að fá hraðaaukningu með 16GB svo einhverju nemi?


Tæknilega séð eru 8GB mikið meira en nóg í daglega vinnslu.
En ef þú ert að rendera eða vinna þunga krefjandi vinnslu þá er betra að hafa meira.
Ég er t.d. með 2GB ram í gamla HP lappanum og þá háir mér ekkert.
Fullt af fartölvum koma t.d. með 4GB.
Meira vinnlsuminni eykur ekki beint hraðann en of lítið miðað við aðstæður hægir frekar á vinnslunni.




vatr9
Nörd
Póstar: 122
Skráði sig: Fim 18. Sep 2008 13:34
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð við uppfærslu

Pósturaf vatr9 » Mið 14. Jan 2015 16:33

Slatti af umræðu á netinu um muninn á 8 og 16GB.
t.d. þetta http://forums.anandtech.com/showthread.php?t=2295843
Hefði kannski haldið að betra væri að fara í aðeins betri örgörva og hafa 8GB minni í staðinn.



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð við uppfærslu

Pósturaf Gúrú » Mið 14. Jan 2015 17:13

vatr9 skrifaði:Hefði kannski haldið að betra væri að fara í aðeins betri örgörva og hafa 8GB minni í staðinn.


Sem er bara hárrétt pæling hjá þér. Ég er seint að fara að uppfæra mín 8GB.
Dugir til að hafa marga tölvuleiki opna og samt fara að leika sér að HD myndum í Photoshop.
GGG tók samt sérstaklega fram 16GB og lætur okkur vonandi vita ef það er í raun overkill svo það sé hægt að nýta betur peninginn.

@GGG ef þú ert ekki að spila neina tölvuleiki þá dugar skjákortið vel.

Tæki ekki neitt annað en Samsung 840 EVO 120GB sjálfur. (Fáránlegt value) Hann er til ódýrastur hjá @tt af þeim sem eiga hann, á 14.000 kr.
Erfitt að sleppa frá 2x8GB af vinnsluminni fyrir minna en 25.000 og Tölvutækni, Start og @att eru með þannig Crucial/Crucial/Corsair framl.
Þá er eftir 31k fyrir móðurborði og örgjörva sem er ekkert sérstaklega mikið. Verður aldrei með góðan örgjörva á því budgeti.
Ef þú gætir sett 12.000 af vinnsluminnis budgetinu í örgjörvann værirðu mun meira futureproof.


Modus ponens


Tesy
</Snillingur>
Póstar: 1075
Skráði sig: Mán 08. Feb 2010 01:20
Reputation: 12
Staðsetning: 108 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð við uppfærslu

Pósturaf Tesy » Mið 14. Jan 2015 20:37

Myndi frekar reyna að finna eitthvað notað fyrir þennan pening, færð ekki mikið fyrir 70 þúsund ef þú kaupir nýtt út í búð.




Höfundur
GGG
Ofur-Nörd
Póstar: 216
Skráði sig: Fim 10. Júl 2008 00:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð við uppfærslu

Pósturaf GGG » Fim 15. Jan 2015 22:31

Takk kærlega fyrir öll svörin, snilld að hafa aðgang að svona umræðum, ég er núna á því að 8 GB sé alveg nóg minni, frekar að nota peninginn í betri örgjörva eða jafnvel bara kaupa eitthvað notað :happy

Budget-ið er núna aðeins hærra ca. 70 - 80 þús, vonandi get ég fundið eitthvað nýtt eða notað, allar ábendingar aftur vel þegnar kæru vaktarar :D

.



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð við uppfærslu

Pósturaf Gúrú » Fim 15. Jan 2015 23:37

Samsung 840 EVO 120GB 13.950 kr.
Crucial 1x8GB 1600MHz CL9 12.450 kr.
Gigabyte Z97-D3H Socket 1150 4xDDR3 (Sérpöntun) 18.800 kr.
Intel i5 4690 3.5GHz (Sérpöntun) 29.900 kr. (eða Tölvulistanum engin bið)

Ég er skrítna týpan sem notar gott kælikrem og stock Intel viftuna á örgjörvann minn frekar en dýra örgjörvakælingu
en hérna er kæling á 5.490 kr. hjá Tölvutækni.

Heildarverð: 80.590.


Modus ponens

Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1268
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 143
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Vantar aðstoð við uppfærslu

Pósturaf Minuz1 » Fös 16. Jan 2015 03:20

Byrja á SSD og nýjum turni, kannski nýju power supply-i líka?
Taka svo móðurborð/cpu/minni saman.
Síðan GPU, eða taka það fyrst..


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það