Hvernig virkar stigveldi stjórnmálaflokkana?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Hvernig virkar stigveldi stjórnmálaflokkana?

Pósturaf hakkarin » Lau 18. Okt 2014 09:30

Eða "hierarchy" eins og það heitir á ensku.

Á Íslandi er lýðræði þar sem að flokkar bjóða sig fram á þing, en hvernig virka valdakerfi stjórnmálaflokkana? Er lýðveldi þar líka?

Segjum að þú gangir í stjórnmálaflokk X í dag sem venjulegur meðlimur. Hvaða hierarchy þyrftir þú að klóra þig í gegn og hvernig á það sér stað? Er það gert með lýðræðislegum leiðum eða eru nýjir meðlimir í élítuna einfaldlega valdir að ofan?

Skjámynd

svanur08
Vaktari
Póstar: 2567
Skráði sig: Fim 18. Feb 2010 16:05
Reputation: 124
Staða: Tengdur

Re: Hvernig virkar stigveldi stjórnmálaflokkana?

Pósturaf svanur08 » Lau 18. Okt 2014 13:08

And he´s back !

Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR

Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Hvernig virkar stigveldi stjórnmálaflokkana?

Pósturaf hakkarin » Lau 18. Okt 2014 13:27

svanur08 skrifaði:And he´s back !

Hvað er málið með þetta einelti?

Bjosep
Geek
Póstar: 880
Skráði sig: Þri 16. Maí 2006 17:48
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Hvernig virkar stigveldi stjórnmálaflokkana?

Pósturaf Bjosep » Lau 18. Okt 2014 14:16

hakkarin skrifaði:Segjum að þú gangir í stjórnmálaflokk X í dag sem venjulegur meðlimur. Hvaða hierarchy þyrftir þú að klóra þig í gegn og hvernig á það sér stað? Er það gert með lýðræðislegum leiðum eða eru nýjir meðlimir í élítuna einfaldlega valdir að ofan?

Hvað er það nákvæmlega sem þú ert að reyna að klóra þig í gegnum?

Skjámynd

Stuffz
ÜberAdmin
Póstar: 1332
Skráði sig: Lau 11. Mar 2006 18:39
Reputation: 99
Staðsetning: 109 Rvk
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Hvernig virkar stigveldi stjórnmálaflokkana?

Pósturaf Stuffz » Lau 18. Okt 2014 14:27

Ætli það fari ekki mikið eftir pólitískum hæfileikum þeirra sem stunda sportið.

Intel NUC Hades Canyon 8Tb NVME +8Tb SSD +80Tb HDD, Nvidia Shield Android TV, Xbox Series X, Xiaomi 4K Projector
CAMS: Insta360 X3, X4, FLOW, GO, ACE Pro, Skydio 2. Rafskjótar: E-20, KS-16S, KS-S22, EB Commander
Búnaður: Lazyrolling Armored Jacket, Alpha Motorsport-pants, TSG Pass Pro, Fox Proframe
187 KP Wrist Guards, Leatt Dual-Axis, Kinetic DL EUC Shoes, P65 BOBLBEE Backpack

Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Hvernig virkar stigveldi stjórnmálaflokkana?

Pósturaf hakkarin » Lau 18. Okt 2014 15:46

Bjosep skrifaði:
hakkarin skrifaði:Segjum að þú gangir í stjórnmálaflokk X í dag sem venjulegur meðlimur. Hvaða hierarchy þyrftir þú að klóra þig í gegn og hvernig á það sér stað? Er það gert með lýðræðislegum leiðum eða eru nýjir meðlimir í élítuna einfaldlega valdir að ofan?

Hvað er það nákvæmlega sem þú ert að reyna að klóra þig í gegnum?

Stjórnmálaflokkar eru samtök og þar að leiðandi hlýtur að vera einhverskonar valdastigi eða stjórnskipulag?

Dæmi um skipulag http://brunching.com/images/geekchartbig.gif

Hvernig er þetta uppbyggt fyrir stjórnmálaflokka landsins?

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2538
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 474
Staða: Ótengdur

Re: Hvernig virkar stigveldi stjórnmálaflokkana?

Pósturaf Moldvarpan » Lau 18. Okt 2014 16:43

Basicly að vera góður í kjaftinum og með bakland (fólk sem viðkomandi safnar með sér í lið, til að styðja við hann).

Siðleysi og frekja hefur komið mörgum langt.

Annars er þetta leiðinleg pæling.

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7501
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1164
Staða: Ótengdur

Re: Hvernig virkar stigveldi stjórnmálaflokkana?

Pósturaf rapport » Lau 18. Okt 2014 17:13

Flokkarnir velja hverjir eru í framboði fyrir sína hönd.

Sumir gera það með innbyrðis framboðum með tilheyrandi kosningaáróðri innan flokkana í svokölluðum lokuðum prófkjörum.

Þessi aðferð á að vera lýðræðisleg en hefur verið misnotuð t.d. þegar ungmennasamtök flokkana eru að kjósa innan sinna raða og t.d. þegar Sigmundur Davíð yfirtók Framsóknarflokkinn.

Þá smala þeir liði rétt í lok þess frests sem leyfilegt er að skrá sig í flokkinn, fólk sem skráir sig í viðkomandi flokk til þess eins að koma vini/vinum sínum að.

Það er s.s. ekkert lýðræðislegt við þetta kerfi eins og það hefur verið misnotað.

Opin prófkjör, þá geta allir kosið þó að þeir séu ekki skráðir í flokkinn, það er lýðræðislegt en "by default" þá fá pólitískir andstæðingar að taka þátt og því held ég að þetta hafi aldrei veriðgert hér á landi.

Erlendis þá keppa flokkar að því að koma sínum áherslum að betra samfelagi að en hér á Íslandi er meira keppt í skítkasti og hagsmunapoti með því að nota allar mögulegar leiðir til að koma höggi á andstæðinga sína.

T.d. var Framsóknarflokkurinn svo seinna með valnefnd sem valdi frambjóðendur, en ekki prófkjör (líklega því þeir voru hræddir við að gamlir framsóknarmenn mundu yfirtaka flokkinn aftur), því margur heldur mig sig...

VG hefur yfirleitt ekki verið með prófkjör (óstaðfest, er skrifað eftir minni) sem er eðlilegt þegar um grasrótarhreyfingu er að ræða sem er nokkuð fámenn og því þyrfti ekki marga til að fokka upp þeirra starfi.

Þetta er ekki lýðræðislegt EF valnenfdin hundsar vilja fólksins í flokkinum og kemur fram sínum vila, en hjá VG þá hafa svona deilur nær eingöngu tengst einstaklingum sem áttu ekki samleið með flokknum en höfðu otað hann til að komast til áhrifa... s.s. flokkurinn lærir og er samtaka í gegnum sína kjörnu fulltrúa í valnefnd = lýðræði innan flokksins felst í að kjósa í valnefndina en ekki að kjósa hverjir fara í framboð.

En til að komast áfram innan þíns flokks þá er mjög misjafnt eftir áherslum flokks, fjölda í flokki og aðferð við val á framboðslista hvaða aðferðum er best að beita.

Mín skoðun á því er í takt við hvernig rannsóknavinna er unnin, quantative eða qualitative s.s. megindleg nálgun eða eigindleg nálgun... þá á hvernig maður "markaðssetur" sig sem stjórnmálamann.

Innan stærstu flokkana þá verður viðkomandi að hugsa um magn og hvernig hann nær að hala inn atkvæðum í prófkjöri. Það verður kostnaðarsamt og áhersla er á magn umfram gæði.

Smærri flokkar þar sem valnefndir starfa þá gefa þær sér tíma til að meta frambjóðendur, hvort og hvernig þeir hafa starfað í fortíðinni í anda viðkomandi flokks, hvernig þeir hafa komið fram og t.d. hvort þeir eru á sakaskrá og/eða komi heiðarlega fram. Þar snýst málið um gæði en ekki magn. Kosningabaráttan snýst því ekki um peninga eða hversu mörg atkvæði þú færð, heldur að þú hafi og munir standa þig í starfi. En líka má hugsa sér að valnenfnd velji vinsælustu kandídatana og hugsanlega vini sína, en þá er óhæfi hennar nokkuð augjóst og flokkurinn mundi ekki samþykkja tillögu hennar að framboðslista.

Samantekt:
Niðurstaða í prófkjöri stórs flokks = vinsældakeppni sem flokkurinn tekur beinan þátt í, niðurstaða ræðst af atkvæðum, enginn fær að sjá lokaniðurstöðuna fyrr en í blálokin og þá verður oftast engu breytt.
Niðurstaða valnefndar í litlum flokki = ráðningaviðtal og niðurstaða borin undir flokkinn sem getur samþykkt eða hafnað tillögu valnefndar.

Óbein heimild (þar sem þetta er skrifað eftir minni eftir óteljandi samtöl) = óbrennandiáhugi betri helmingsins á stjórnmálum enda er hún stjórnmálafræðingur BA, félagsráðgjafi BA og verðandi MA í félagsráðgjöf ;-)

capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Hvernig virkar stigveldi stjórnmálaflokkana?

Pósturaf capteinninn » Sun 19. Okt 2014 13:59

rapport skrifaði:Flokkarnir velja hverjir eru í framboði fyrir sína hönd.

Góð samantekt hjá þér