Vesen Iphone 5s læstur -_-

Allt utan efnis

Höfundur
Bragi Hólm
Ofur-Nörd
Póstar: 202
Skráði sig: Sun 30. Okt 2011 16:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf Bragi Hólm » Lau 06. Sep 2014 10:33

Góðan dag

Er með Iphone 5s sem ég verslaði notaðan. Strákurinn lét mig hafa hann ásamt passcode inná hann. Virkaði fínt og flott. Hann sagði ég yrði bara tengja við itunes ef ég vildi setja hann upp aftur. Komnar 3-4 vikur síðan ég fékk hann. Fékk loks tölvu í gær og nettengingu svo ég setti upp Itunes og ætlaði að dunda mér í þessu. Nema dóttir mín fiktaði eitthvað í honum meðan ég var að elda og núna er hann læstur og ég næ ekkert á manninn því hann sagði mér hann væri að flytja til Noregs. Hvernig kemst ég inní skrambans símann? Eða aflæsi þessu dóti. Kemur á skjáinn símanúmer og að síminn sé týndur. En slökkt á því númeri og kemur útlensk kelling að blaðra eitthvað þegar ég reyni að hringja í strákinn.

Einhver ráð? Og nei ekki stolinn, ya held ég allavega, ekki tilkynntur til lögreglu þá. Athugaði það í gær og þeir sögðu mér bara að halda áfram að reyna ná í manninn.

Einhver ráð???



Skjámynd

rickyhien
Gúrú
Póstar: 562
Skráði sig: Lau 25. Maí 2013 20:39
Reputation: 29
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf rickyhien » Lau 06. Sep 2014 12:29

hvernig er hann læstur? vantar kóða til að komast inn? eða er einhver texti?



Skjámynd

Squinchy
FanBoy
Póstar: 777
Skráði sig: Mið 05. Maí 2010 15:23
Reputation: 45
Staðsetning: Grafarholt
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf Squinchy » Lau 06. Sep 2014 12:48

Googlaðu "DFU restore iphone", varstu búinn að setja upp þitt apple-ID á símann?


Fractal Design R4 White | MSI Z270 Gaming Pro Carbon | i7 7700K @4.5GHz | Noctua NH-D15 | 32GB Corsair DDR4 @3200MHz | MSI GTX 1080 Ti Gaming X 11GB | 250GB Samsung 850 EVO SSD | Corsair RM750x | 27" ASUS PG279Q | Presonus 22VSL | M-Audio BX5a

Fractal Design R5 Black | FreeNAS | Gigabyte M3 Sniper | i7 3770K @3.9GHz | Noctua NH-U12s | 24GB DDR3 | 10TB | Eaton 5SC 1000i UPS

Skjámynd

Oak
Bara að hanga
Póstar: 1590
Skráði sig: Fim 15. Okt 2009 16:51
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf Oak » Lau 06. Sep 2014 15:00

Ef að hann er með hann ennþá í icloud hjá sér að þá geturðu ekki gert dfu restore. Síminn hleypir þér ekki í gegnum uppsetninguna eftir það.


i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64

Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 833
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 141
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf Hrotti » Lau 06. Sep 2014 19:43

hann þarf að slökkva á find my iphone, Það er nóg fyrir hann að logga sig inn á icloud.com - findmyiphone og henda símanum þar út.


Hann=fyrri eigandi :)


Verðlöggur alltaf velkomnar.


Höfundur
Bragi Hólm
Ofur-Nörd
Póstar: 202
Skráði sig: Sun 30. Okt 2011 16:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf Bragi Hólm » Lau 06. Sep 2014 22:56

Nei ég fæ ekkert upp neitt svona kóða dót bara texti á skjánum. Því hélt ég hann væri kanski stolinn en hann er allavega ekki tilkynntur til lögreglu. En ég bara næ ekkert í manninn :( og nei var ekki búinn að restora hann og setja mitt apple ID á hann....

Hann lét mig hafa númerið með símanum til að geta komist inní hann og það virkaði fínt en svo bara eftir að dóttir mín var að fikta þá bara kom þetta upp á honum og get ekkert gert :(




berteh
has spoken...
Póstar: 172
Skráði sig: Fim 06. Maí 2010 15:21
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf berteh » Sun 07. Sep 2014 11:55

Hvað stendur nákvæmlega á skjánum ? Það eina sem þú getur gert er að dfu restora honum og vona að hann hafi ekki verið með find my iphone virkt..



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16493
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf GuðjónR » Sun 07. Sep 2014 12:09





Höfundur
Bragi Hólm
Ofur-Nörd
Póstar: 202
Skráði sig: Sun 30. Okt 2011 16:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf Bragi Hólm » Sun 07. Sep 2014 15:26

Það stendur þessi sími er týndur vinsamlega hafið samband í síma *** **** en það er slökkt á því númeri sem kemur upp



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16493
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf GuðjónR » Sun 07. Sep 2014 15:42

Bragi Hólm skrifaði:Það stendur þessi sími er týndur vinsamlega hafið samband í síma *** **** en það er slökkt á því númeri sem kemur upp

Það lítur út fyrir að þú hafir keypt stolinn síma. :svekktur




Höfundur
Bragi Hólm
Ofur-Nörd
Póstar: 202
Skráði sig: Sun 30. Okt 2011 16:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf Bragi Hólm » Sun 07. Sep 2014 15:47

Oooohhhhh frábært!

En af hverju þá fyrst núna? Er búinn að vera með hann í alveg 3-4 vikur ekkert vesen fyrr en stelpan fiktaði í honum -_-



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf dori » Sun 07. Sep 2014 15:52

Er það íslenskt númer sem kemur? Geturðu ekki tékkað á símafyrirtækinu sem er með það skráð og séð hvort þeir finni eigandann?

Eða fengið lögguna til að gera eitthvað þannig.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16493
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2105
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf GuðjónR » Sun 07. Sep 2014 15:55

Bragi Hólm skrifaði:Oooohhhhh frábært!

En af hverju þá fyrst núna? Er búinn að vera með hann í alveg 3-4 vikur ekkert vesen fyrr en stelpan fiktaði í honum -_-


Kannski hefur sá sem seldi þér símann fundið hann, réttur eigandi síðan í millitíðinni læst honum með "find my iPhone".

Hugsanlega er hægt að rekja símann ef þú ferð með hann í epli.is
Þegar þú borgaðir fyrir símann, lagðir þú inn á reikning eða borgaðir með peningum?
iPhone5s er það nýlegt tæki að þú hlýtur að hafa fengið original reikninginn með honum?
Er vonlaust fyrir þig að hafa upp á þeim sem seldi þér?




Höfundur
Bragi Hólm
Ofur-Nörd
Póstar: 202
Skráði sig: Sun 30. Okt 2011 16:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Vesen Iphone 5s læstur -_-

Pósturaf Bragi Hólm » Fim 18. Sep 2014 18:58

Kom í ljós þetta er stolinn sími. er að bíða eftir svari "fyrrum" eiganda hvort við getum samið eitthvað með þetta, það er að ég fái símann af honum. Þar sem rest er lögreglumál og hann víst búinn að fá símann bættan úr tryggingum. ár síðan símanum var stolið.. Fór reyndar að pæla hvort þetta hafi verið tryggingasvindl þar sem hann gat enga sérstaka útskýringu gefið af hverju hann virkjaði þetta þjófadrasl núna og af hverju viðkomandi aðili sem ég fæ hann hjá vissi pin codeið inní hann og gat látið mig hafa það með :face

takk samt fyrir alla aðstoð