Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf hakkarin » Mið 27. Ágú 2014 17:49

Þetta eru alveg fínir bjórar don't get me wrong, en ég fatta ekki af hverju þetta er svona vinsælt. Fyrir utan að vera mest seldu bjóranir eftir því sem að ég get séð að þá eru þeir líka búnir að fá fullt af verðlaunum út í heimi (gull fékk verðlaun nr1 í eitthverjari frægri bjórkeppni út í heimi). Þetta er nátturúlega bara mikið smekksatriði en ég er ekki að sjá það hvað á að gera þessa bjóra svona spes. Gull er eiglega þunnur og frekar bragðdaufur, og viking sem mér finnst reyndar vera hinn fínnasti bjór er samt ekkert bara "OMG GÓÐUR!!!" heldur. Þá eru þessir bjórar líka ekkert eitthvað mikið ódýrari en flestir bjórar þannig að ekki er fólk að kaupa þetta út af því. Er þetta bara markaðssetning?

Eða kanski hef ég bara svona ömurlegan bjórsmekk? :sleezyjoe

EDIT: Spyr að því að ég var í bjór smökkun síðustu helgi og þá fór ég að pæla í þessu.



Skjámynd

svanur08
Vaktari
Póstar: 2567
Skráði sig: Fim 18. Feb 2010 16:05
Reputation: 124
Staða: Tengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf svanur08 » Mið 27. Ágú 2014 17:50

Ég kaupi alltaf Polar bjór því hann er svo ódýr.


Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR

Skjámynd

oskar9
vélbúnaðarpervert
Póstar: 943
Skráði sig: Sun 08. Mar 2009 16:52
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf oskar9 » Mið 27. Ágú 2014 18:00

Mér finnst allir þessir vinsælu Íslensku dósabjórar hálfgert refapiss, allt í lagi að sulla í þessu ef þetta er ískalt og fínt veður úti.

Annars er þetta minn uppáhalds framleiðandi, ásamt erdinger, La Trappe eru líka fínir sparibjórar í litlu magni


Mynd


"I think the phrase rhymes with Clucking Bell!"

Skjámynd

Frost
Besserwisser
Póstar: 3206
Skráði sig: Sun 16. Ágú 2009 02:30
Reputation: 61
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf Frost » Mið 27. Ágú 2014 18:03

Mér finnst þeir ágætir en ég er meira í því að kaupa mér einhvern bjór sem ég hef ekki smakkað áður. Einstök Hvítöl og Pale Ale eru mjög góðir. Sumar og Stinnings Kaldi eru í mjög miklu uppáhaldi hjá mér.

Annars er minn go-to bjór yfirleitt Stella, Guinnes eða Boli.


Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól

Skjámynd

Frantic
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Mið 04. Mar 2009 17:43
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf Frantic » Mið 27. Ágú 2014 18:14

Til að svara spurningunni þá, já að mínu mati.
Er að luva Einstök Weissbier.
Er með 2 stk inní ísskáp... aaaaaaaand they're gone!



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf tdog » Mið 27. Ágú 2014 18:15

Minn go-to bjór er Viking Gull, ég á alltaf amk 4 í ískápnum. Mér finnst bara voðalega gott bragð af honum.




biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf biturk » Mið 27. Ágú 2014 18:21

Mer fynnst egils gull ágætur en kaupi frekar tuborg, slots classic, heineken eða polar

Eftir þetta dick move hja egils langar mig lika litið i hann


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!

Skjámynd

einarhr
Vaktari
Póstar: 2011
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 276
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf einarhr » Mið 27. Ágú 2014 19:05

Sem lager bjór eru þetta ágætis bjórar. Ef ég kaupi mér Lager þá er það oftast Viking en annars er ég voðalega mikið í Pale Ale þessa dagana. Mér finnst Víking ágætur en kaupi líka aðra ljósa bjóra eins og Thule ofl.

Gull og Viking eru frá 2 stæðstu ölgerðunum og eru Gull og Víking vara nr 1 hjá þeim og ekkert skrítið að það seljist mikið af þeim þar sem þessi fyrirtæki ráða yfir örugglega 70% af markaðnum. Ég er hættur að kaupa áfengi og gos frá Egils vegna skítlegrar framkomu gagnvart frændum okkar Færeyingum. :happy

Einstök Ölgerð er mín uppáhalds ölgerð í dag, hef prófað Pale Ale, Porter og White Ale.


| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

Skjámynd

intenz
Besserwisser
Póstar: 3337
Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
Reputation: 35
Staðsetning: /dev/null
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf intenz » Mið 27. Ágú 2014 19:28

Já þeir eru ofmetnir, finnst ekkert varið í þá. Minn goto bjór er Boli (gamli Premium), það er bragðgóður bjór!


i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2850
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 217
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Tengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf CendenZ » Mið 27. Ágú 2014 21:38

Einstök hvítur og svo skammast ég mín fyrir að segja það, en Tuborg Classic... einsog drekka kalt kók.. úff hvað hann er góður



Skjámynd

Hnykill
Of mikill frítími
Póstar: 1863
Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
Reputation: 85
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf Hnykill » Mið 27. Ágú 2014 22:58

Víking Gylltur er minn uppáhalds bjór. hæfilega bragðmikill og stabíll í alla kannta. þetta er bjór sem ég get drukkið aftur og aftur án þess að fá leið af honum. prófa mikið af öðrum bjórum auðvitað, margir góðir þar. en Víking Gylltur er svona grunnurinn að bjórdrykkjunni minni :happy


Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.

Skjámynd

I-JohnMatrix-I
</Snillingur>
Póstar: 1020
Skráði sig: Fös 05. Apr 2013 19:01
Reputation: 101
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf I-JohnMatrix-I » Mið 27. Ágú 2014 23:47

Minn Go-to fyllerís bjór er Stella Artois en minn uppáhalds sparibjór mun vera La Trappe



Skjámynd

Jón Ragnar
</Snillingur>
Póstar: 1016
Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
Reputation: 206
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf Jón Ragnar » Fim 28. Ágú 2014 09:51

CendenZ skrifaði:Einstök hvítur og svo skammast ég mín fyrir að segja það, en Tuborg Classic... einsog drekka kalt kók.. úff hvað hann er góður



Ekkert að því að drekka Tuborg Classic, Ég gæti hreinlega trúað því að hann sé svipað vinsæll og Egils Gull

Bestu bjóranir eru samt India pale ale og double india pale ale :)



CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video

Skjámynd

Moldvarpan
Vaktari
Póstar: 2538
Skráði sig: Fös 16. Mar 2007 21:31
Reputation: 474
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf Moldvarpan » Fim 28. Ágú 2014 11:25

Mér finnst bjórar yfir höfuð vera verulega ofmetnir.

Ég drakk allt sem áfengt var þegar ég var yngri í massavís, og endaði oftast sót ölvaður.
Í dag gæti ég ekki hugsað mér að fara á fyllerí með bjór... svo mikið vatns sull.

Þegar ég fæ mér bjór, sem er mjög sjaldan, þá er það Stella Artois eða Faxe Royal.

Ef mig þyrstir í áfengi nú til dags, þá er sterkt áfengi alltaf fyrir valinu. Hvort sem það er skot, on the rocks eða með smá gosblöndu. Rommið finnst mér allra best. Fyrir mér er það eina vitið :happy



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5590
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1051
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf appel » Fim 28. Ágú 2014 11:43

Lagerbjór er almennt séð fínn hjá mér, bara hafa hann vel kaldan :)

Fuller's öl bjórar eru mínir uppáhalds.


*-*

Skjámynd

einarhr
Vaktari
Póstar: 2011
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 276
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf einarhr » Fim 28. Ágú 2014 13:37

Moldvarpan skrifaði:Mér finnst bjórar yfir höfuð vera verulega ofmetnir.

Ég drakk allt sem áfengt var þegar ég var yngri í massavís, og endaði oftast sót ölvaður.
Í dag gæti ég ekki hugsað mér að fara á fyllerí með bjór... svo mikið vatns sull.

Þegar ég fæ mér bjór, sem er mjög sjaldan, þá er það Stella Artois eða Faxe Royal.

Ef mig þyrstir í áfengi nú til dags, þá er sterkt áfengi alltaf fyrir valinu. Hvort sem það er skot, on the rocks eða með smá gosblöndu. Rommið finnst mér allra best. Fyrir mér er það eina vitið :happy



Bjór eða Bjór? Það er mikill munur á öltegundum eins og td Lager, Pale Ale, Porter, Wisebeer, Bock, Stout ofl. Sumir Lager eru jú vatnskenndir en sama er ekki hæft að segja um td porter. Ég skil þig að þú fílir ekki að drekka þig fullann af 4 til 4.5 prósent Faxe Royal en það eru til svo mikið af bragðmikluog jafnvel vel sterku öli á markaðnum í dag sem maður þarf ekki að sklurka í sig 15 bjórum til að ná ölvun.

Ég drekk lager og þá oftast Víking en það er yfirleytt bara til að fá sér einn eða tvo og þá þurfa þeir að vera vel kældir.


| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

Skjámynd

HalistaX
Vaktari
Póstar: 2534
Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
Reputation: 379
Staðsetning: 800
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf HalistaX » Fim 28. Ágú 2014 13:55

Moldvarpan skrifaði:Mér finnst bjórar yfir höfuð vera verulega ofmetnir.

Ég drakk allt sem áfengt var þegar ég var yngri í massavís, og endaði oftast sót ölvaður.
Í dag gæti ég ekki hugsað mér að fara á fyllerí með bjór... svo mikið vatns sull.

Þegar ég fæ mér bjór, sem er mjög sjaldan, þá er það Stella Artois eða Faxe Royal.

Ef mig þyrstir í áfengi nú til dags, þá er sterkt áfengi alltaf fyrir valinu. Hvort sem það er skot, on the rocks eða með smá gosblöndu. Rommið finnst mér allra best. Fyrir mér er það eina vitið :happy

Alveg sammála þér, finnast allir bjórar mjög ofmetnir.
Ég drekk bara það sem mér finnst gott, sterkt áfengi blandað í gos/safa, Cider og Breezer... Og eistun á mér eru alveg jafn stór og ykkar fyrir vikið.


Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7501
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1164
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf rapport » Fim 28. Ágú 2014 14:00

Ég er búinn að vera í vín og bjórsmökkunar sumarfríi...

Vín = spænsku hvítvínin með ávaxtakeim og hálfsæt = stóðu upp úr...

Cono Sur frá Chile = hvítt og rautt, allt gott frá þeim.

Ítölsk, frönsk, afríkönsk og frá USA, fann ekkert gott...

Bjór:

Boli og Thule voru þeir einu semég fékk ekki fljótt leið á.

Stella - Mjög fljótt leiður á henni, verð svo saddur eitthvað strax.

Tékkneski udwiserinn og Pilsner Urquel = klassískt.

Smakkaði einhvern Thailenskan sem var OK og ítalskan (á Primo, fann hann svo ekki í ríkinu) sem var góður.

Bríó = góður í 2-3 daga svo leiður á honum.

p.s. ég drakk c.a. 3-6 bjóra á kvöldi í 28 daga = c.a. 120 bjóra (léttist samt um 4kg. í fríinu)

Og ég reyndi að smakka helling...

Kemur hreinlega á óvart hvað niðurstaðan er ekki spennandi...



Skjámynd

Höfundur
hakkarin
Bannaður
Póstar: 826
Skráði sig: Mið 09. Feb 2011 01:37
Reputation: 23
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf hakkarin » Fös 29. Ágú 2014 04:10

Smá spurning...

Er það bara ég eða þegar maður fer á bar að ef maður vill kaupa bjór í flösku að þá eru eiglega bara vondir bjórar í boði? Á barnum nálægt mér (sem er annars bara mjög fínn) er til dæmis eiglega bara hægt að fá bjóra eins og miller, corona og heineken.

EDIT: Ok reyndar er þetta bull það er líka hægt að fá aðra bjóra. En það er bara hægt að fá þessa vondu ef að maður kaupir sér tilboð eins og "5 í fötu" og svona. Engir góðir bjórar í fötu :(



Skjámynd

svanur08
Vaktari
Póstar: 2567
Skráði sig: Fim 18. Feb 2010 16:05
Reputation: 124
Staða: Tengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf svanur08 » Fös 29. Ágú 2014 04:20

Sé að þú hefur mikinn áhuga á áfengi, værir góður barþjónn :happy


Sjónvarp: LG C3 (OLED48C3) Blu-ray spilari: SONY UBP-X800M2 Soundbar: LG S75QR

Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf tdog » Fös 29. Ágú 2014 07:43

Góðir bjórar eru oftast bara of dýrir svo það borgar sig ekki að setja þá á einhver tilboðsverð.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7501
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1164
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf rapport » Fös 29. Ágú 2014 11:29

tdog skrifaði:Góðir bjórar eru oftast bara of dýrir svo það borgar sig ekki að setja þá á einhver tilboðsverð.


nkl.




machinefart
Ofur-Nörd
Póstar: 288
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2014 12:23
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf machinefart » Fös 29. Ágú 2014 12:48

Ég þekki ekki nákvæmlega þessi verðlaun sem bjórarnir fá og nenni ekki að kynna mér það. Ég myndi hinsvegar halda að þegar þessir bjórar fá verðlaun, þá fá þeir verðlaun fyrir að vera lagerbjórar, þeas það er ekki verið að skoða klaustursbjóra, ale, hveitibjóra eða neitt annað en lager bjór.



Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf tlord » Fös 29. Ágú 2014 16:57

verðlaun af þessu tagi eru oft vafasöm (keypt)



Skjámynd

Haukursv
has spoken...
Póstar: 153
Skráði sig: Þri 29. Maí 2012 12:10
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Re: Eru Egils Gull og Víking ofmetnir?

Pósturaf Haukursv » Fös 29. Ágú 2014 20:56

rapport skrifaði:Ég er búinn að vera í vín og bjórsmökkunar sumarfríi...

Vín = spænsku hvítvínin með ávaxtakeim og hálfsæt = stóðu upp úr...

Cono Sur frá Chile = hvítt og rautt, allt gott frá þeim.

Ítölsk, frönsk, afríkönsk og frá USA, fann ekkert gott...

Bjór:

Boli og Thule voru þeir einu semég fékk ekki fljótt leið á.

Stella - Mjög fljótt leiður á henni, verð svo saddur eitthvað strax.

Tékkneski udwiserinn og Pilsner Urquel = klassískt.

Smakkaði einhvern Thailenskan sem var OK og ítalskan (á Primo, fann hann svo ekki í ríkinu) sem var góður.

Bríó = góður í 2-3 daga svo leiður á honum.

p.s. ég drakk c.a. 3-6 bjóra á kvöldi í 28 daga = c.a. 120 bjóra (léttist samt um 4kg. í fríinu)

Og ég reyndi að smakka helling...

Kemur hreinlega á óvart hvað niðurstaðan er ekki spennandi...


Þetta eru samt allt voðalega einsleitir og óspennandi bjórar sem þú ert að smakka, bara lager bjórar og þó að þessir pilsner bjórar geti verið góðir er svo margt annað margfalt betra (imo) í boði. Vera óhræddur að prufa sig áfram, íslensku brugghúsin eru alltaf að verða betri og betri, mæli sérstaklega með hveitibjórum og pale ale bjórum sem fyrstu skrefunum inní heim ölsins, það getur bara varla klikkað að mínu mati. Svo þegar á dregur get menn farið að prufa sig áfram og smakkað IPA,Trappist,Stout ofl fleiri bjórstíla, heimur bjórsins kemur mér sífellt á óvart.


i7-4790K | Asus GTX 970 | Asus Z97 Sabertooth | Zalman CNPS7X | 16GB Crucial DDR3 | 250gb Samsung EVO | Seagate 2TB HDD | Antec 750W modular | NZXT H230 | Logitech G710+ | Steelseries Rival | Benq xl2411z | Benq gl2450