Google bíllinn

Allt utan efnis

starionturbo
Gúrú
Póstar: 542
Skráði sig: Mán 24. Des 2007 11:23
Reputation: 8
Staðsetning: localhost
Staða: Ótengdur

Re: Google bíllinn

Pósturaf starionturbo » Þri 17. Jún 2014 10:15

Haha guys, einkabíllinn mun alltaf vera til staðar.

10% af þjóðinni er með bíladellu, glætann að ég myndi ferðast á einhverjum ljótri prius druslu sem keyrir sjálf, ég þarf minn bíl, athyglina sem honum fylgir og adrenalínið.

Þetta er líklega draumur a-b snattarans, sem vinnur 9-5 og gerir lítið annað en það.

En þetta virkar ekki fyrir alla.


Foobar

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Google bíllinn

Pósturaf KermitTheFrog » Þri 17. Jún 2014 10:53

starionturbo skrifaði:glætann að ég myndi ferðast á einhverjum ljótri prius druslu sem keyrir sjálf


Sástu ekki Mercedes bílinn?



Skjámynd

oskar9
vélbúnaðarpervert
Póstar: 943
Skráði sig: Sun 08. Mar 2009 16:52
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Google bíllinn

Pósturaf oskar9 » Þri 17. Jún 2014 11:10

KermitTheFrog skrifaði:
starionturbo skrifaði:glætann að ég myndi ferðast á einhverjum ljótri prius druslu sem keyrir sjálf


Sástu ekki Mercedes bílinn?


Er á allra færi að kaupa 26 miljóna króna S500 ?

Annars vil ég keyra minn bíl sjálfur, svo væri gaman að sjá þetta keyra út götuna hjá mér hér á Akureyri eftir snjóþungar nætur.

Mér finnst líklegt að þróunin verði svona á þessu, þeas svona litlar tindósir sem virka í stórborgum verða útbúnar þessu og svo tugmiljóna lúxusbílar fyrir þá ríku, svo verður erfitt að yfirfæra þetta í venjulega bíla sem fólk notar í minni bæjum og þannig


"I think the phrase rhymes with Clucking Bell!"

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Google bíllinn

Pósturaf KermitTheFrog » Þri 17. Jún 2014 11:52

oskar9 skrifaði:svo verður erfitt að yfirfæra þetta í venjulega bíla sem fólk notar í minni bæjum og þannig


Hvernig færðu það út? Það væri vissulega erfitt að aðlaga eldri bíla sem ekki eru hannaðir með þetta í huga en eftir einhver ár gætu flestir ef ekki allir nýir bílar verið útbúnir á þennan hátt. Þó Mercedes framleiði 25M króna lúxusbíl þá þarf það ekki að vera normið.



Skjámynd

oskar9
vélbúnaðarpervert
Póstar: 943
Skráði sig: Sun 08. Mar 2009 16:52
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Google bíllinn

Pósturaf oskar9 » Þri 17. Jún 2014 12:05

KermitTheFrog skrifaði:
oskar9 skrifaði:svo verður erfitt að yfirfæra þetta í venjulega bíla sem fólk notar í minni bæjum og þannig


Hvernig færðu það út? Það væri vissulega erfitt að aðlaga eldri bíla sem ekki eru hannaðir með þetta í huga en eftir einhver ár gætu flestir ef ekki allir nýir bílar verið útbúnir á þennan hátt. Þó Mercedes framleiði 25M króna lúxusbíl þá þarf það ekki að vera normið.



ég var kannski frekar að meina að fólk sem býr í stórborgum þar sem einkabíll hentar illa væri góður markaðu fyrir þetta, svo á hinum enda skalans er ríkt fólk sem kaupir dýra sjálfkeyrandi lúxusbíla.
Ég sé ekki að nokkur ætti að kaupa þetta hér á Akureyri t.d, hér eru engar umferðateppur eða slík vandamál sem svona tækni breytir í minni bæjum en í stærri borgum þar sem umferðateppur eru vandamál, bílastæði eru af skornum skammti og fleira í þeim dúr.

Hér er ég ekki endilega að tala um bílinn sjálfan heldur þessa hugmynd að slíkur bíll sæki þig eftir pöntunum fyrir og eftir vinnu og þannig og dragi þannig verulega úr bílastæðavandamálum og fleira sem einkabíllinn hefur í för með sér.

Ég sé framtíð í þessu í t.d Miðbæ London eða New york


"I think the phrase rhymes with Clucking Bell!"