Nettenglar í veggjum virka ekki


Höfundur
yamms
has spoken...
Póstar: 177
Skráði sig: Fim 12. Nóv 2009 23:18
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf yamms » Lau 17. Maí 2014 02:26

Sælir...

Ég er að reyna að fá virkni í net tenglana í veggjunum hjá mér. Það eru semsagt tengi herbergjunum og svo 1 í stofunni. Ég tengi snúru frá router í vegginn í stofunni og tengi svo aftur snúru inní herbergi hjá mér úr veggnum og í tölvu og býst við að það virki og að netið synci í gegn en það er stöðugt "identifying" á því. Er eitthvað annað sem þarf að gera sem ég er ekki að ná að græja?

Leiðin er semsagt þessi.

Ljósleiðarabox -> router -> veggtengill í stofunni -> veggtengill í herbergi -> tölva.


Eruði með einhver tips?

kv :D



Skjámynd

roadwarrior
Gúrú
Póstar: 570
Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf roadwarrior » Lau 17. Maí 2014 02:52

Er einhver kapall á milli?
Stundum er settur tengill til að fylla í gatið en enginn kapall



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6798
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf Viktor » Lau 17. Maí 2014 05:25

Þú verður að vita hvert þessi kapall liggur.

Ef það er fast í identifying hljómar þetta eins og það sé switch eða eitthvað tæki sem tölvan er að tengjast - ekki routerinn.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf Gúrú » Lau 17. Maí 2014 07:50

Mismunandi útfærslur á þessu en liggur ekki leið þessara kapla almennt á sameiginlegan stað?

Ef þú ert t.d. í Brunnahverfinu í Grafarholti þá fer þetta allt í rafmagnsboxið í bílskúrnum og þar setur fólk sviss.


Modus ponens

Skjámynd

Squinchy
FanBoy
Póstar: 778
Skráði sig: Mið 05. Maí 2010 15:23
Reputation: 45
Staðsetning: Grafarholt
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf Squinchy » Lau 17. Maí 2014 10:12

Mjög líklegt að þetta sé tengt sem síma tenglar, er tengibox í þvottarhúsinu eða einvherstaðar annarstaðar fyrir sjónvarp og síma?


Fractal Design R4 White | MSI Z270 Gaming Pro Carbon | i7 7700K @4.5GHz | Noctua NH-D15 | 32GB Corsair DDR4 @3200MHz | MSI GTX 1080 Ti Gaming X 11GB | 250GB Samsung 850 EVO SSD | Corsair RM750x | 27" ASUS PG279Q | Presonus 22VSL | M-Audio BX5a

Fractal Design R5 Black | FreeNAS | Gigabyte M3 Sniper | i7 3770K @3.9GHz | Noctua NH-U12s | 24GB DDR3 | 10TB | Eaton 5SC 1000i UPS


Skari
spjallið.is
Póstar: 488
Skráði sig: Fim 31. Mar 2005 11:35
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf Skari » Lau 17. Maí 2014 10:31

Veit ekki hvort þetta hjálpar þér eitthvað en ef þú færð identifying þá virðistu vera að ná einhverjum samskiptum.

Einnig, hversu nýlegt er þetta hús ? í gömlu íbúðinni hjá mér þá var netlagnirnar tengdar vitlaust, hver einasti tengill var raðtengdur (semsagt frá einum tengli til annars) og það virkar ekki í netkerfum.
Þurfti þá að opna tengilinn og aftengja kapalinn sem færi í næsta tengil hjá mér svo merkið færi ekki þangað.

Ef það er svipað hjá þér þá þarftu að opna tengilinn í stofunni hjá þér, hafa einungis kapalinn tengdan sem fer í herbergið þitt og aftengja þá kapla sem fara frá þínu herbergi í annan tengil (ef þetta er þannig uppsett hjá þér )



Skjámynd

FuriousJoe
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1623
Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
Reputation: 20
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf FuriousJoe » Lau 17. Maí 2014 11:57

Ég er með box inní þvottahúsi sem er svipað og rafmagnstaflan, þar lét ég mann tengja inn öll herbergin fyrir mig (ljósleiðaraboxið er tengt inn í það) svo tek ég sjónvarpið í gegnum tengil í stofunni, og routerinn inní tölvuherbergi og símann í annað. Hægt að setja þetta upp eftri smekk. (Allar snúrur voru til staðar, þurfti bara að leiða þetta saman)


Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD


Höfundur
yamms
has spoken...
Póstar: 177
Skráði sig: Fim 12. Nóv 2009 23:18
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf yamms » Lau 17. Maí 2014 14:22

Takk fyrir svörin allir :)

Það stemmir það sem þið voruð að tala um. Fann töflu við hliðiná rafmagnstöflunni sem er með öllum netköplunum og þeir eru allir í hrúgu þarna og þarf greinilega að yfirfara tengingarnar.
Þá er næsta mál að græja það og þá ætti þetta að smella :)

alltaf hægt að stóla á ykkur!

kv.



Skjámynd

roadwarrior
Gúrú
Póstar: 570
Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf roadwarrior » Lau 17. Maí 2014 16:37

Fá þér einn svona:
http://www.ebay.com/itm/Telephone-RJ11- ... 338960d3be
Þá getur þú fundið út hver hver kapall liggur ef þeir eru ekki merktir
Svo er næsta verkefni að setja upp switch í smápennutöflunni og þá ættir þú að vera góður



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf Gúrú » Lau 17. Maí 2014 18:50

roadwarrior skrifaði:Fá þér einn svona:
http://www.ebay.com/itm/Telephone-RJ11- ... 338960d3be
Þá getur þú fundið út hver hver kapall liggur ef þeir eru ekki merktir
Svo er næsta verkefni að setja upp switch í smápennutöflunni og þá ættir þú að vera góður


Úff held það séu margar leiðir hraðvirkari en þetta með tólunum við hendi, þetta myndi taka ~tvær vikur að komast í hendurnar á manni ekki satt?

Ef OP á router og fartölvu er þetta ekki beint lengi gert með því. :)


Modus ponens

Skjámynd

roadwarrior
Gúrú
Póstar: 570
Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf roadwarrior » Sun 18. Maí 2014 02:12

Gúrú skrifaði:
roadwarrior skrifaði:Fá þér einn svona:
http://www.ebay.com/itm/Telephone-RJ11- ... 338960d3be
Þá getur þú fundið út hver hver kapall liggur ef þeir eru ekki merktir
Svo er næsta verkefni að setja upp switch í smápennutöflunni og þá ættir þú að vera góður


Úff held það séu margar leiðir hraðvirkari en þetta með tólunum við hendi, þetta myndi taka ~tvær vikur að komast í hendurnar á manni ekki satt?

Ef OP á router og fartölvu er þetta ekki beint lengi gert með því. :)


Reyndar setti ég inn þennan link til viðmiðunar, þessi græja er til hér á landi. Td í Íhlutum og fl stöðum. Held jafnvel að þetta fáist í Byko en ég þori samt ekki að ábyrgjast það :baby
Reyndar miklu dýrara en þarna. :sleezyjoe
Fékk mér svona græju og hún hefur bjargað beikoninu á mér nokkrum sinnum

Væri jafnvel hægt að gera svipað með 9v batterí.
Tengja td + og - við blá/bláa-hvíta parið og mæla svo með volt mæli í tengli
Eða einfaldlega að ganga frá öllum kapalendum í töflunni og setja í samband við switchinn einn í einu og hlaupa á milli herbergja með tölvunna og finna þannig út hvaða kapall er hver.

Mæli samt með að merkja hvern kapal fyrir sig í töflunni hvert hann liggur, sparar vesen í framtíðnni :fly



Skjámynd

roadwarrior
Gúrú
Póstar: 570
Skráði sig: Þri 22. Apr 2008 20:00
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf roadwarrior » Sun 18. Maí 2014 02:19

Langar líka svo að bæta við að allir sem eiga Cat pressu töng ættu að fá sér svona græju. Þarf ekki nema að 1 pinni gangi ekki niður til að maður lendi í vandræðum. Ég prufa allt sem ég pressa með með svona prufutæki. Svoooo þægilegt



Skjámynd

Farcry
spjallið.is
Póstar: 406
Skráði sig: Mið 18. Apr 2012 16:38
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf Farcry » Sun 18. Maí 2014 11:25




Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Nettenglar í veggjum virka ekki

Pósturaf tdog » Sun 18. Maí 2014 12:02

Ég mæli með litlu sóntæki, vælu og sprota ef að menn ætla að fara í símalínusans.