Nýlenda á Mars?
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5590
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1051
- Staða: Ótengdur
Nýlenda á Mars?
Þessir vilja senda menn til Mars, til þess búa til nýlendu og búa þar til æviloka.
http://www.mars-one.com/
Hmmm....
http://www.mars-one.com/
Hmmm....
*-*
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1744
- Skráði sig: Sun 02. Jan 2011 12:37
- Reputation: 40
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
eða þangað til það er fundið upp eitthvað skip sem kemst báðar leiðir, sem verður klárlega eftir einhver ár.
-
- Vaktari
- Póstar: 2038
- Skráði sig: Mán 26. Mar 2012 21:26
- Reputation: 11
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
Ætli það sé ekkert erfitt að finna menn sem vilja fara frá öllu hér á jörðinni og fara að búa á Mars til æviloka?
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5590
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1051
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
Yawnk skrifaði:Ætli það sé ekkert erfitt að finna menn sem vilja fara frá öllu hér á jörðinni og fara að búa á Mars til æviloka?
Held að best væri að senda eldra fólk, kannski kringum 55-65 ára aldurinn, en auðvitað hraust. Ástæðan fyrir því er kannski augljós, þú vilt ekki endilega senda 20 ára gamlan einstakling til Mars ef hann sér fram á eymdarlíf á plánetunni næstu 50 árin, en önnur helsta ástæðan er sú að gamalt fólk þarfnast eins mikillar orku (matar) og er betur fallið til þess að fá á sig geislun, því sökum aldurs er ólíklegt að geislun valdi krabbameini eftir 15-20 ár, það verður líklega dáið af öðrum orsökum áður.
En það er nóg framboð af fólki sem er til í að fara, spurningin er bara að velja rétta einstakling og mynda saman réttan hóp sem kemur sér vel saman og vinnur vel saman.
Allavega, ég er alveg orðinn dolfallinn fyrir Mars-nýlendu. Held að þetta sé mjög áhugavert, en tel að þetta þurfi að vera miklu stærra dæmi en það sem Mars One er að skipuleggja. Ég myndi vilja senda allavega 8 manns strax í fyrstu ferð, með markmið að koma á fót aðstöðu fyrir allavega 12-20 manns í viðbót eftir 2-3 ár. Best væri að þetta væri alþjóðlegt samstarfsverkefni ýmissa landa í samvinnu við einkaframtakið, stuðning frá fyrirtækjum og svona.
*-*
-
- Vaktari
- Póstar: 2534
- Skráði sig: Fim 01. Júl 2010 13:16
- Reputation: 379
- Staðsetning: 800
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
Yawnk skrifaði:Ætli það sé ekkert erfitt að finna menn sem vilja fara frá öllu hér á jörðinni og fara að búa á Mars til æviloka?
Það er örugglega easy-peasy.. Myndir þú ekki vilja vera einn af þeim fyrstu til þess að búa á mars?
Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5590
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1051
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
HalistaX skrifaði:Yawnk skrifaði:Ætli það sé ekkert erfitt að finna menn sem vilja fara frá öllu hér á jörðinni og fara að búa á Mars til æviloka?
Það er örugglega easy-peasy.. Myndir þú ekki vilja vera einn af þeim fyrstu til þess að búa á mars?
Þetta er rosaleg áhætta. Myndi segja að það séu 50-60% líkur á að þú drepist innan 1-2 ára.
*-*
Re: Nýlenda á Mars?
http://www.youtube.com/watch?v=sy0c-EfRhOA
Mæli með að menn horfi á þetta.
Samvkæmt þessu hafa Bandaríkjamenn löngu verið komnir á Mars
Reyndar svolítið langdregin en ágætlega þess virði að sjá þessa þar sem ýmsir tæknilegar hliðar koma inní þetta

Gunnar skrifaði:hva enginn íslendingur???
https://applicants.mars-one.com/ALL/18/82/IS/ALL
https://www.google.is/search?q=i+don't+ ... 0&bih=1038
Jú, ég er þarna einhversstaðar
Re: Nýlenda á Mars?
Fyrir ári síðan var óskað eftir umsækjendum, u.þ.b. 200 þúsund umsækjendur sóttu um en 1058 einstaklingar komust áfram í umsóknarferlinu. Áætlað er að fjórir af þessum 1058 einstaklingum fari til Mars í fyrstu mönnuðu ferðinni eftir 10 ár (2024).
Þú hefur þá líklegast ekki komist áfram, því annars værir þú á þessum lista.
Xovius skrifaði:Jú, ég er þarna einhversstaðar
Þú hefur þá líklegast ekki komist áfram, því annars værir þú á þessum lista.
common sense is not so common.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16491
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2105
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
Bara að spá...af hverju fara þeir sem fengu þessa „frábæru“ hugmynd ekki sjálfir?
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5590
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1051
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
Þetta er gerlegt, en áhættusamt. Til þess að minnka áhættu þyrfti þetta að kosta óhóflega mikið, en í samanburði við margt annað, t.d. hernaðarbrölt, þá er þetta gáfulegri sóun á peningum.
Maður vill helst bara sjá sjónvarpsþættina fyrst, það myndi duga mér
Maður vill helst bara sjá sjónvarpsþættina fyrst, það myndi duga mér
*-*
-
- Kóngur
- Póstar: 4257
- Skráði sig: Mán 08. Sep 2008 19:39
- Reputation: 192
- Staðsetning: við talvuna
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
appel skrifaði:Þetta er gerlegt, en áhættusamt. Til þess að minnka áhættu þyrfti þetta að kosta óhóflega mikið, en í samanburði við margt annað, t.d. hernaðarbrölt, þá er þetta gáfulegri sóun á peningum.
Maður vill helst bara sjá sjónvarpsþættina fyrst, það myndi duga mér
Hugsa að það væri ekki alvitlaust að fá fyrirtæki/auðjöfra til að sponsa þetta. Áhugi almennings á svona verkefni verður gríðarlegur á heimsvísu þegar þetta byrjar og ef fyrirtækin sem sponsora þetta mikið prósentulega séð fá auglýsingu í staðinn er það mjög öflug auglýsing.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5590
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1051
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
Ég held að mesta mótstaðan við þetta, ef kalla má mótstöðu, er skilningsleysi á því að Mars er innan seilingar. Fyrir 50-100 árum síðan hefði þetta verið ómögulegt og fáránlegt að tala um, en í dag er tæknin til staðar. Stjórnmálamenn hafa bara annað að gera og hugsa um. Þeir vilja frekar eyða trilljón dollurum í herþotuþróun heldur en eitthvað svona ævintýri.
Annað áhugavert er að það myndi taka 1000 ár að gera loftþrýstingin á Mars nægilega mikinn svo menn þurfi ekki að vera í geimbúning með loftþrýstingi í, heldur bara súrefnishjálm og búning til varnar öðru. Auk þess myndi þykkari lofthjúpur draga verulega úr geimgeislun. Þ.e. það tæki bara 1000 ár að terraforma Mars á þann veg að mun einfaldara væri að búa þar.
Til að setja þessi 1000 ár í samhengi þá er það jafn langur tími og Ísland hefur verið byggt, augnablik í mannkynssögunni.

- Póstar: 1700
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Reputation: 37
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
appel skrifaði:Þetta er gerlegt, en áhættusamt. Til þess að minnka áhættu þyrfti þetta að kosta óhóflega mikið, en í samanburði við margt annað, t.d. hernaðarbrölt, þá er þetta gáfulegri sóun á peningum.
Já.. sóum aðeins meiri pening í geim stuff
-
- Stjórnandi
- Póstar: 3750
- Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
- Reputation: 474
- Staðsetning: Undir hægra megin
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
Stutturdreki skrifaði:appel skrifaði:Þetta er gerlegt, en áhættusamt. Til þess að minnka áhættu þyrfti þetta að kosta óhóflega mikið, en í samanburði við margt annað, t.d. hernaðarbrölt, þá er þetta gáfulegri sóun á peningum.
Já.. sóum aðeins meiri pening í geim stuff
[img]https://fbcdn-sphotos-d-a.akamaihd.net/hphotos-ak-prn1/1512695_733498223337858_1111040520_n.jpg[./img]
Þetta á einmitt líka við um peninga sem að er "sóað" í hernaðarbrölt.
í fyrsta lagi verið til tækni sem að síðar er notuð af almenningi.
og í öðru lagi þá er ekki farið og kveikt í peningunum, peningarnir fara aftur út í efnahagslífið. (eða megnið af þeim)
Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5590
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1051
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
urban skrifaði:Stutturdreki skrifaði:appel skrifaði:Þetta er gerlegt, en áhættusamt. Til þess að minnka áhættu þyrfti þetta að kosta óhóflega mikið, en í samanburði við margt annað, t.d. hernaðarbrölt, þá er þetta gáfulegri sóun á peningum.
Já.. sóum aðeins meiri pening í geim stuff
[img]https://fbcdn-sphotos-d-a.akamaihd.net/hphotos-ak-prn1/1512695_733498223337858_1111040520_n.jpg[./img]
Þetta á einmitt líka við um peninga sem að er "sóað" í hernaðarbrölt.
í fyrsta lagi verið til tækni sem að síðar er notuð af almenningi.
og í öðru lagi þá er ekki farið og kveikt í peningunum, peningarnir fara aftur út í efnahagslífið. (eða megnið af þeim)
Ég held að geim-tæknin sem er þróuð sé mun gagnlegri en hernaðarbröltstækni. En það er rétt hjá þér, hagkerfið, skattpeningar og svona þetta er bara í hringrás, stjórnvöld ráða því í hvaða farveg peningarnir fara.
Þetta er bara spurning um hvort gagnast mannkyninu meira, stríðsbúnaðarvæðing eða nýlenda á Mars, og þá meina ég í aðeins stærra samhengi. Við getum borið Víetnam-stríðið saman við Apollo-tunglferðina, sem áttu sér stað á sama tíma. Þegar jarðarbúar líta til baka þá er ljóst að Víetnam stríðið voru meiriháttar mistök, en enginn segir að Apollo-tunglferðin hafi verið mistök, helstu ein glæstasta stund mannkynsins.
En samt eyðum við hundruðir falt meiri peningum í styrjaldarbrölt. Jafnvel ef þú myndir 20-falda peningana sem NASA fær árlega þá myndi það ekki ná í 10% af því sem Department of Defense fær. Í raun eyða BNA meiri peningum í lúxuferðir, golfvelli, fyrir herforingjana sína heldur en könnunarferðir til Mars.
*-*
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1700
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Reputation: 37
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
Ef BNA sóuðu jafn mikið í NASA og þeir sóa í herinn ætla ég að lofa mér að fullyrða að við (eða þeir) væru löngu komnir til mars og líklega enn víðar.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 16491
- Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
- Reputation: 2105
- Staðsetning: Hérna
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
appel skrifaði:...en enginn segir að Apollo-tunglferðin hafi verið mistök, helstu ein glæstasta stund mannkynsins..
Allt sviðsett... sorry!
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1863
- Skráði sig: Þri 09. Des 2008 07:12
- Reputation: 85
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
GuðjónR skrifaði:appel skrifaði:...en enginn segir að Apollo-tunglferðin hafi verið mistök, helstu ein glæstasta stund mannkynsins..
Allt sviðsett... sorry!
Svo þú ert einn af þeim Guðjón !.. á þessum tíma voru Bandaríkinn og Rússland í geimkeppninni svokölluðu.. þegar bandaríkjamenn lentu á tunglinu voru rússar með alla sína sjónauka og græjur að fylgjast með þeim.. og þeir fylgdust með þeim alla leið, og á meðan þeir lentu á tunglinu.. þeir fylgdust með þeim á radar og sjónauka alla leið til tunglsins. haldið þið að að það hafi einginn verið að fylgjast með þeim eða?
Rússar fylgdust með þeim allann tímann.. ef þeir hefðu ekki farið eða lent á tunglinu haldiði þá að rússar hafi bara sætt sig við einhver myndbönd frá bandaríkjunum ?? þeir voru að horfa á allann tímann !
Corsair Obsidian 450D - Corsair RM850x 850W - Gigabyte Z490 Gaming X - Intel i5 10600K @ 5Ghz - Corsair H115i Pro - Asus 5700 XT OC 8GB - 16GB DDR4 3600MHz - 1 TB ADATA XPG SX8200 Pro - Windows 10.
-
- FanBoy
- Póstar: 785
- Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
- Reputation: 3
- Staðsetning: 404 - Location Not found.
- Staða: Ótengdur
Re: Nýlenda á Mars?
GuðjónR skrifaði:appel skrifaði:...en enginn segir að Apollo-tunglferðin hafi verið mistök, helstu ein glæstasta stund mannkynsins..
Allt sviðsett... sorry!
Þeir skildu eftir spegla og fullt af drasli, ég neita að trúa því að tunglið sé svo langt í burtu að enginn getur séð það.
Hversu stórann kíkir þarf?