Root á síma = Avoida warranty?
-
Höfundur - Tölvutryllir
- Póstar: 643
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2012 21:57
- Reputation: 22
- Staðsetning: ~/
- Staða: Ótengdur
Root á síma = Avoida warranty?
Ef að ég roota símann minn, avoida ég warranty? Keypti hjá Nova.
Samsung Galaxy S4.
Samsung Galaxy S4.
Desktop
| i7 3770k @4.7GHz 1.35v | Corsair H100i | Corsair Vengeance CL9 4x4GB | MSI GeForce GTX 980 Twin Frozr V | MSI Z77A-G43 | Corsair GS 700w | Samsung 840 Evo 120GB | Seagate 5TB 7200rpm |
Server
| i7 920 @2.66GHz | Corsair Vengeance 4x4GB | Seagate 3TB 7200rpm | XFX R9 280x

Re: Root á síma = Avoida warranty?
Búið að vera mikið debate um þetta og man ekki hvernig það endaði, held að intenz sé með þetta á hreinu, bíðum eftir svari frá honum.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3337
- Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
- Reputation: 35
- Staðsetning: /dev/null
- Staða: Ótengdur
Re: Root á síma = Avoida warranty?
Já þú gerir það því miður skv. framleiðendum, en það er hægt að afroota og núllstilla flash counterinn þannig að engin ummerki finnist.
https://play.google.com/store/apps/deta ... iangleaway
https://play.google.com/store/apps/deta ... iangleaway
i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64
Re: Root á síma = Avoida warranty?
Já nei nei triangle away er ekki hægt með nýjustu uppfærsluna í S4, allavega ekki ennþá. Reyndar gæti alveg verið að einhver hafi verið með lausn á þessu KNOX void dæmi. Ég væri alveg til í að vita af því ef svo er.
i7 950 @ 3.2 GHz | Scythe Yasha | GA-X58A-UD3R | Mushkin 12GB kit (3x4GB) DDR3 1333MHz | PNY GTX570 | HDD 1 TB | Tacens 700W | 24" ViewSonic | W7 x64
Re: Root á síma = Avoida warranty?
intenz skrifaði:Já þú gerir það því miður skv. framleiðendum, en það er hægt að afroota og núllstilla flash counterinn þannig að engin ummerki finnist.
https://play.google.com/store/apps/deta ... iangleaway
En að skipta bara um recovery og rom?
-
- Besserwisser
- Póstar: 3337
- Skráði sig: Mið 08. Okt 2008 22:07
- Reputation: 35
- Staðsetning: /dev/null
- Staða: Ótengdur
Re: Root á síma = Avoida warranty?
Oak skrifaði:Já nei nei triangle away er ekki hægt með nýjustu uppfærsluna í S4, allavega ekki ennþá. Reyndar gæti alveg verið að einhver hafi verið með lausn á þessu KNOX void dæmi. Ég væri alveg til í að vita af því ef svo er.
KNOX er ekki default virkt. Það er líka hægt að uninstalla því.
chaplin skrifaði:intenz skrifaði:Já þú gerir það því miður skv. framleiðendum, en það er hægt að afroota og núllstilla flash counterinn þannig að engin ummerki finnist.
https://play.google.com/store/apps/deta ... iangleaway
En að skipta bara um recovery og rom?
Alveg möguleiki, en ef þeir skoða flash counterinn bösta þeir þig.
i7 920 @ 2.8 GHz | Gigabyte EX58-UD3R | CSX 3x2 GB DDR3 @ 1600 MHz | Gigabyte ATi Radeon HD 5850 | Sileo 500 | RealPower 600W | Corsair Force 3 120 GB | 27" FullHD | W7 x64
Re: Root á síma = Avoida warranty?
intenz skrifaði:Alveg möguleiki, en ef þeir skoða flash counterinn bösta þeir þig.
Þannig að flash-a yfir höfuð er einfaldlega bannað, ef ég er að skilja þetta rétt. Annars auðvita lítið mál að note TriangleAway og algjörlega þess virði eins og allt frá Chainfire.
-
- Vaktin er ávanabindandi
- Póstar: 1623
- Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
- Reputation: 20
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Root á síma = Avoida warranty?
intenz skrifaði:Oak skrifaði:Já nei nei triangle away er ekki hægt með nýjustu uppfærsluna í S4, allavega ekki ennþá. Reyndar gæti alveg verið að einhver hafi verið með lausn á þessu KNOX void dæmi. Ég væri alveg til í að vita af því ef svo er.
KNOX er ekki default virkt. Það er líka hægt að uninstalla því.chaplin skrifaði:intenz skrifaði:Já þú gerir það því miður skv. framleiðendum, en það er hægt að afroota og núllstilla flash counterinn þannig að engin ummerki finnist.
https://play.google.com/store/apps/deta ... iangleaway
En að skipta bara um recovery og rom?
Alveg möguleiki, en ef þeir skoða flash counterinn bösta þeir þig.
Knox er tengt bootloadernum og er með counter þar, 0x0 er official rom, 0x1 er custom, og er ómögulegt að breyta því. (seinast þegar ég vissi)
Svo Knox er hardkóðað í tækið, en það á að vera hægt að roota ánþess að Knox sjái það, en ef þú flashar annað rom þá færðu "Knox warranty void 0x1"
Þetta á við um Samsung roms 4.3
Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD
-
- Gúrú
- Póstar: 542
- Skráði sig: Mán 24. Des 2007 11:23
- Reputation: 8
- Staðsetning: localhost
- Staða: Ótengdur
-
- Kóngur
- Póstar: 4273
- Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
- Reputation: 67
- Staða: Ótengdur
Re: Root á síma = Avoida warranty?
FuriousJoe skrifaði:Knox er tengt bootloadernum og er með counter þar, 0x0 er official rom, 0x1 er custom, og er ómögulegt að breyta því. (seinast þegar ég vissi)
Svo Knox er hardkóðað í tækið, en það á að vera hægt að roota ánþess að Knox sjái það, en ef þú flashar annað rom þá færðu "Knox warranty void 0x1"
Þetta á við um Samsung roms 4.3
Það er alveg umræða og góð pæling hvort "Knox warranty void" sé actually beintengt við verksmiðjuábyrgð.
Þegar þú ert búinn að voida Knox warranty þá geturu ekki notað Knox (sem er aðallega hugsað fyrir business síma í mínum skilningi) og getur ekki fengið official uppfærslur. Getur einnig ekki downgrade-að bootloaderinn og eitthvað svoleiðis dót.
En ég er ekki búinn að lesa um þetta nýlega. Gerði það bara þegar ég tók eftir þessu fyrst. Gæti verið að einhverjar nýjar upplýsingar séu komnar í ljós.
En til að svara OP: Ef þú ert með nýlega uppfærðan Galaxy síma geturu búist við því að vera með Knox bootloader svo þú getur ekki hreinsað til eftir þig ef það kemur að því að hann bilar. Fer allt eftir símanum hversu auðvelt það er að roota og unroota.
Re: Root á síma = Avoida warranty?
Avoid = forðast
void = ógilda
Annars vil ég ennþá meina að root ætti ekki að brjóta þessa lögbundnu tveggja ára ábyrgð sem er á öllum raftækjum keyptum innan evrópska efnahagssvæðisins, það væri kannski hægt að fara með það til Neytendastofu ef fyrirtæki neita því.
Edit: Fokkit, ég sendi póst til Neytendastofu. Fáum úr þessu skorið í eitt skipti fyrir öll. Býst ekki við svari fyrr en í næstu viku í fyrsta lagi, en ég skal pósta því hér um leið og það kemur.

Góðan daginn,
mér leikur forvitni á að fá úr skorið um ákveðið atriði varðandi mögulega ógildingu ábyrgðar á snjallsímum, spjaldtölvum og svipuðum tækjum, sérstaklega þeim sem keyra á Android stýrikerfinu. Þessi tæki eru ábyrgðarskyld til tveggja ára frá söluaðila, eins og önnur raftæki keypt innan evrópska efnahagssvæðisins. Á þeim er einnig gjarnan ábyrgð frá framleiðanda. Seinni ábyrgðinni fylgir gjarnan sú klausa að hún ógildist ef notendur framkvæmi aðgerð sem í daglegu tali er kölluð að "roota" tækin, sem gefur þeim aðgang að virkni sem væri þeim lokuð annars, sambærilegt og munurinn á að fá "admin" aðgang í tölvu sem keyrir Windows stýrikerfi. Sum forrit virka t.d. ekki nema tækið hafi verið "rootað" og þetta gefur notendum enn fremur kost á að skipta sjálfir um útgáfu á stýrikerfinu með því að setja upp svokölluð "custom ROM" sem eru stýrikerfisútgáfur frá þriðja aðila.
Það sem ég er forvitinn um er hvort þessi lögbundna tveggja ára ábyrgð á seldum raftækjum ógildist einnig við þetta. Eigendur þessara tækja eru gjarnan ekki vissir um hvar réttur þeirra liggur í þessum efnum, samanber umræður á snjalltækjaspjallborði Vaktarinnar (viewforum.php?f=73) í gegnum tíðina. Ég bendi á í þessu samhengi að eigendum borðtölva og fartölva er almennt frjálst að skipta um stýrikerfi á þeim tækjum eins og þeim sýnist án þess að ábyrgðin ógildist.
Með von um skýr svör,
---
[NAFNIÐ MITT]
tölvunarfræðingur
PC Fractal Design R4 | Intel 3770K @ 3.5GHz + NZXT Havik 140 | Asus Sabertooth Z77 | Corsair 16GB DDR3 1600MHz | Asus GeForce GTX 670 DirectCU II | Samsung 830 256GB | WD Green 2.0TB | Corsair AX 750W | 2x Dell 27" IPS S2740L | QPAD MK-80 (Cherry MX brown) | Asus RoG Gladius | Win 10 Pro 64bit
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
-
- FanBoy
- Póstar: 726
- Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
- Reputation: 43
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Staða: Ótengdur
Re: Root á síma = Avoida warranty?
Sá á erlendri spjallsíðu þar sem verið var að rökræða sama mál að framleiðandi getur fært fyrir því rök að rootaður sími, þeas sem er ekki að keyra ROM frá framleiðandanum, sé fallinn úr ábyrgð þar sem þeir geta ekki ábyrgst að hugbúnaðurinn keyri innan þeirra vélbúnaðartakmarkana sem fyrir eru. Ef til custom stýrikerfið höndlar power á öðruvísi hátt en framleiðandinn gerir ráð fyrir gæti tækið keyrt heitar og í lengri tíma.
Til eru líka dæmi um brikkaða síma þar sem Samsung var að nota íhluti sem voru lítillega breyttir af þeim sem custom rom forritararnir vissu ekki af. Það varð til þess að brikka símana þar sem stýrikerfið keyrði eftir þekktum gildum en tók ekki tillit til allra breytinganna sem Samsung hafði gert á vélbúnaðinum.
Bottom line held ég að ef það sjást ummerki um að þú hafir rootað símann þinn = úr ábyrgð

IBM PS/2 8086
Re: Root á síma = Avoida warranty?
Ein spurning.
Ef þeir leyfa ekki að skipt sé um stýrikerfi, bera þeir þá ábyrgð á stýrikerfinu, virkni þess, göllum og vanköntum?
Þetta er voðalega kjánaleg nálgun...
Ef þeir leyfa ekki að skipt sé um stýrikerfi, bera þeir þá ábyrgð á stýrikerfinu, virkni þess, göllum og vanköntum?
Þetta er voðalega kjánaleg nálgun...
Re: Root á síma = Avoida warranty?
rapport skrifaði:Ein spurning.
Ef þeir leyfa ekki að skipt sé um stýrikerfi, bera þeir þá ábyrgð á stýrikerfinu, virkni þess, göllum og vanköntum?
Þetta er voðalega kjánaleg nálgun...
Ég bíð bara eftir að framleiðendur fari að gera það sama.. "Abb abb abb kallinn minn, þú settir upp Linux á Dell tölvuna sem kom með W8, engin ábyrgð á vélbúnaði eftir svona brútal sókn"..
Þetta er auðvita fáranlegt að þú megir ekki setja upp annað (sama, bara breytt) stýrikerfi á símann þinn.

Hahaha... Það væri hrikalega fyndið ef svo væri. Fá að skipta símanum eftir 23 mánuði af því að það er galli í stýrikerfinu sem framleiðandi nennir ekki að patcha.
-
- FanBoy
- Póstar: 726
- Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
- Reputation: 43
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Staða: Ótengdur
Re: Root á síma = Avoida warranty?
Það er náttúrulega ekki verið að tala um hugbúnaðargalla heldur hvort vélbúnaðargalli hafi orsakast af hugbúnaði sem notandi setur upp á símann sinn. Ofhitnun og skemmdir vegna OC osfrv. Ef það gerist þegar stock stýrikerfið er uppsett þá er síminn í ábyrgð.
IBM PS/2 8086
Re: Root á síma = Avoida warranty?
gRIMwORLD skrifaði:Það er náttúrulega ekki verið að tala um hugbúnaðargalla heldur hvort vélbúnaðargalli hafi orsakast af hugbúnaði sem notandi setur upp á símann sinn. Ofhitnun og skemmdir vegna OC osfrv. Ef það gerist þegar stock stýrikerfið er uppsett þá er síminn í ábyrgð.
Og ef það er bara skipt um ROM og síminn ekki rootaður?
-
- FanBoy
- Póstar: 726
- Skráði sig: Fös 19. Des 2008 21:19
- Reputation: 43
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Staða: Ótengdur
Re: Root á síma = Avoida warranty?
chaplin skrifaði:gRIMwORLD skrifaði:Það er náttúrulega ekki verið að tala um hugbúnaðargalla heldur hvort vélbúnaðargalli hafi orsakast af hugbúnaði sem notandi setur upp á símann sinn. Ofhitnun og skemmdir vegna OC osfrv. Ef það gerist þegar stock stýrikerfið er uppsett þá er síminn í ábyrgð.
Og ef það er bara skipt um ROM og síminn ekki rootaður?
Segir sig sjálft að það ætti ekki að skipta máli ef ROM útgáfan kemur frá framleiðandanum. Í Evrópu er tveggja ára ábyrgð á tækjum og eitthvað sem mér skilst að sé "no questions asked" fyrstu 6 mánuðina. Eftir það þyrfti notandi að sanna að breytingarnar sem hann gerði hafi ekki verið orsökin á biluninni (mögulega fer ég með rangt mál).
IBM PS/2 8086
Re: Root á síma = Avoida warranty?
gRIMwORLD skrifaði: Eftir það þyrfti notandi að sanna að breytingarnar sem hann gerði hafi ekki verið orsökin á biluninni (mögulega fer ég með rangt mál).
Held að sönnunarbyrðin liggi ekki hjá notanda í svoleiðis tilvikum, frekar að ábyrgðaraðili þurfi að sanna að notandi hafi valdið biluninni með fikti.
PC Fractal Design R4 | Intel 3770K @ 3.5GHz + NZXT Havik 140 | Asus Sabertooth Z77 | Corsair 16GB DDR3 1600MHz | Asus GeForce GTX 670 DirectCU II | Samsung 830 256GB | WD Green 2.0TB | Corsair AX 750W | 2x Dell 27" IPS S2740L | QPAD MK-80 (Cherry MX brown) | Asus RoG Gladius | Win 10 Pro 64bit
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
-
- Bannaður
- Póstar: 5677
- Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
- Reputation: 1
- Staðsetning: ;)
- Staða: Ótengdur
Re: Root á síma = Avoida warranty?
1. Síðan hvenær hefur það verið á höndum neytanda að sýna fram á að hann hafi ekki verið valdur að biluninni?
2. Hvað kemur það málinu við á hverju verksmiðjur taka ábyrgð á og hverju ekki?
Það er vandamál þeirra sem sækja ábyrgðina þangað, þ.e. áframseljenda, en ekki íslenskra neytenda sem fá íslenska lögbundna neytendavernd.
3. Hvað "gildir" þetta þá um skv. ykkur sem halda þessu fram? Ekki borðtölvur, fartölvur, spjaldtölvur en síma? Spjaldtölvur líka? Fartölvur líka? Borðtölvur líka?

Modus ponens
-
- Kóngur
- Póstar: 4273
- Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
- Reputation: 67
- Staða: Ótengdur
Re: Root á síma = Avoida warranty?
chaplin skrifaði:rapport skrifaði:Ein spurning.
Ef þeir leyfa ekki að skipt sé um stýrikerfi, bera þeir þá ábyrgð á stýrikerfinu, virkni þess, göllum og vanköntum?
Þetta er voðalega kjánaleg nálgun...
Ég bíð bara eftir að framleiðendur fari að gera það sama.. "Abb abb abb kallinn minn, þú settir upp Linux á Dell tölvuna sem kom með W8, engin ábyrgð á vélbúnaði eftir svona brútal sókn"..
Þetta er auðvita fáranlegt að þú megir ekki setja upp annað (sama, bara breytt) stýrikerfi á símann þinn.
Þú getur frekar líkt þessu við því að setja upp breytta útgáfu af BIOS/firmware á vélbúnaðinn þinn. Android er ekki alveg sambærilegt við Windows / pc vélar í þessum dúr.
Re: Root á síma = Avoida warranty?
Swooper skrifaði:Fokkit, ég sendi póst til Neytendastofu. Fáum úr þessu skorið í eitt skipti fyrir öll. Býst ekki við svari fyrr en í næstu viku í fyrsta lagi, en ég skal pósta því hér um leið og það kemur.
Fékk svar í dag:
Sæll [NAFN]
Neytendastofa þakkar fyrir fyrirspurnina.
Ábyrgð tækja fellur undir lög nr. 48/2003 um neytendakaup. Neytendastofa fer ekki með eftirlit með þeim lögum.
Vakni upp ágreiningur um galla þá geta neytendur borið ágreiningsefnið undir Kærunefnd um lausafjár og þjónustukaup, sem sker úr um hvort tæki hafi verið í ábyrgð.
Þú getur skoðað álit nefndarinnar á eftirfarandi vefslóð og athugað hvort nefndin hafi tekið á þeim ágreiningsefnum sem þú ert að velta fyrir þér. http://www.neytendastofa.is/Pages/648
Bestu kveðjur/ Best regards
Berglind Rós Gunnarsdóttir
Lögfræðingur á neytendaréttarsviði
Neytendastofu /Consumer Agency
Svo, basically engin niðurstaða. Ugh.
PC Fractal Design R4 | Intel 3770K @ 3.5GHz + NZXT Havik 140 | Asus Sabertooth Z77 | Corsair 16GB DDR3 1600MHz | Asus GeForce GTX 670 DirectCU II | Samsung 830 256GB | WD Green 2.0TB | Corsair AX 750W | 2x Dell 27" IPS S2740L | QPAD MK-80 (Cherry MX brown) | Asus RoG Gladius | Win 10 Pro 64bit
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
Sími OnePlus X | Oxygen OS 3.1.3 [Android 6.0.1]
Tablet Nexus 9 32GB LTE | Stock 6.0.1
Re: Root á síma = Avoida warranty?
Klassískur lögfræðingur. Nóg af orðum en segir ekki neitt. (Samt 20 þúsund kall á tímann.)Swooper skrifaði:Swooper skrifaði:Fokkit, ég sendi póst til Neytendastofu. Fáum úr þessu skorið í eitt skipti fyrir öll. Býst ekki við svari fyrr en í næstu viku í fyrsta lagi, en ég skal pósta því hér um leið og það kemur.
Fékk svar í dag:Sæll [NAFN]
Neytendastofa þakkar fyrir fyrirspurnina.
Ábyrgð tækja fellur undir lög nr. 48/2003 um neytendakaup. Neytendastofa fer ekki með eftirlit með þeim lögum.
Vakni upp ágreiningur um galla þá geta neytendur borið ágreiningsefnið undir Kærunefnd um lausafjár og þjónustukaup, sem sker úr um hvort tæki hafi verið í ábyrgð.
Þú getur skoðað álit nefndarinnar á eftirfarandi vefslóð og athugað hvort nefndin hafi tekið á þeim ágreiningsefnum sem þú ert að velta fyrir þér. http://www.neytendastofa.is/Pages/648
Bestu kveðjur/ Best regards
Berglind Rós Gunnarsdóttir
Lögfræðingur á neytendaréttarsviði
Neytendastofu /Consumer Agency
Svo, basically engin niðurstaða. Ugh.
-
- Kóngur
- Póstar: 4273
- Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
- Reputation: 67
- Staða: Ótengdur
Re: Root á síma = Avoida warranty?
Gaman að lesa í gegnum þetta. Tók sérstaklega eftir nokkrum málum þar sem rafhlaða í fartölvu klikkar eftir tæp tvö ár og er ábyrgð neitað en álitsbeiðandi fær nýja rafhlöðu eftir að hann fer í neytendastofu.
En það virðist vera sem svo, af því sem ég las, að ef þú getur fært fyrir því rök að gallinn hafi verið til staðar eða hann sé ótengdur því sem þú ert búinn að gera við símann,þá eru góðar líkur á því að þú fáir ábyrgðina í gegn.

- Póstar: 785
- Skráði sig: Lau 14. Júl 2012 22:36
- Reputation: 3
- Staðsetning: 404 - Location Not found.
- Staða: Ótengdur
Re: Root á síma = Avoida warranty?
KermitTheFrog skrifaði:En það virðist vera sem svo, af því sem ég las, að ef þú getur fært fyrir því rök að gallinn hafi verið til staðar eða hann sé ótengdur því sem þú ert búinn að gera við símann,þá eru góðar líkur á því að þú fáir ábyrgðina í gegn.
Héld Það fari líka eftir því hvern þú átt viðskipti við, þegar ég keypti nexus 7 hjá vodafhone og þurfti að skila henni eftir viku( skjárinn var laus )
Og það er ekkert mál enn ég þarf svo að skipta henni aftur því í hvert skipti sem hún er tekin upp heyrist all svakalegt ískur í allri bakhliðinni bara yfrir hátalaran beisically.
Þá einmitt minnist hann á þetta með að "roota" tækið og ég sagði að ég vissi alveg hvað ég væri að gera og tek þá væntanlega ábyrgð á hugbúnaðinum (bricked)
Það var ekkert mál.
Bara að fyrirtæki geri þennan aðskilnað á 'hardware' galla og 'software' galla,
Ef þú ákveður að roota tækið og þér tekst svo að drepa OS þá á ábyrgðin ekki að bjarga þér.
Eru ekki lög um að fyrirtæki verða að geta sannað að galli meigi rekja til vanrækslu eða svona breytinga?