Armbandsúr tekið í tollinum

Allt utan efnis
Skjámynd

FriðrikH
Geek
Póstar: 895
Skráði sig: Lau 22. Sep 2007 20:25
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

Re: Armbandsúr tekið í tollinum

Pósturaf FriðrikH » Þri 07. Maí 2013 15:04

Af hverju að breyta þessu, ef það er ekkert mál að versla úti, tax free, og borga svo engan skatt heima, hvernig ætti að vera mögulegt að selja t.d. dýrari úr á Íslandi? Það mundu einfaldlega allirbara biðja næsta mann að pikka 3 milljón króna úrið með sér eða gera sér ferð til DK, UK eða hvað það nú er til að sækja hlutinn, enda kostar flugmiðinn mikið minna en virðisaukaskatturinn.
Mér finnst þessar reglur því fullkomlega eðlilegar.



Skjámynd

tlord
Tölvutryllir
Póstar: 601
Skráði sig: Mið 30. Nóv 2011 17:28
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Armbandsúr tekið í tollinum

Pósturaf tlord » Þri 07. Maí 2013 15:28

næst fara þeir að athuga hvort fólk er að koma með nýjar tannfyllingar



Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1582
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 58
Staða: Ótengdur

Re: Armbandsúr tekið í tollinum

Pósturaf Xovius » Þri 07. Maí 2013 15:36

Skil bara ekki fólk sem finnst það að komast upp með þetta lögbrot alveg sjálfsagður hlutur. Eftirlitið er nánast ekkert eins og er, ég hef sjálfur komið með dýra hluti og labbað beint í gegnum græna hliðið...



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3606
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 142
Staða: Ótengdur

Re: Armbandsúr tekið í tollinum

Pósturaf dori » Þri 07. Maí 2013 15:59

Xovius skrifaði:Skil bara ekki fólk sem finnst það að komast upp með þetta lögbrot alveg sjálfsagður hlutur. Eftirlitið er nánast ekkert eins og er, ég hef sjálfur komið með dýra hluti og labbað beint í gegnum græna hliðið...


Skil bara ekki fólk sem gerir eins og ég... wat?



Skjámynd

Templar
1+1=10
Póstar: 1162
Skráði sig: Fös 30. Sep 2011 11:54
Reputation: 408
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Armbandsúr tekið í tollinum

Pósturaf Templar » Þri 07. Maí 2013 16:39

Það er meira en nóg refsing að borga tollinn og sekt, upptaka úrsins er þjófnaður. Þeir sem ekki skilja að upptaka af hálfu hins opinbera er þjófnaður vantar skilning á eðli stakkheimtu og tolla, það er t.d. ekkert sjálfsagt að hafa toll eða rukka skatt, þú ert með valdboði að fara í veski náungans og skammta þér af eignum hans, samkomulag um þetta heitir samfélags sáttmáli og það samþykkir engin upptöku eigna, ergo því er þetta þjófnaður af hinu opinbera.

Xovier þú þarft að lesa aðeins meira um heimspeki, skatta og pólitískar stefnur nú og í sögunni og ég svara þér með þessu; ég skil bara ekki fólk sem finnst svona reglur í lagi og ekki að brjóta svona reglur sem eru bara þjófnaður.

Templar


--
|| 14900KS - Z790 - 96GB DDR6600 - 4090 - ||

Skjámynd

Xovius
Bara að hanga
Póstar: 1582
Skráði sig: Sun 08. Jan 2012 14:34
Reputation: 58
Staða: Ótengdur

Re: Armbandsúr tekið í tollinum

Pósturaf Xovius » Þri 07. Maí 2013 16:41

dori skrifaði:
Xovius skrifaði:Skil bara ekki fólk sem finnst það að komast upp með þetta lögbrot alveg sjálfsagður hlutur. Eftirlitið er nánast ekkert eins og er, ég hef sjálfur komið með dýra hluti og labbað beint í gegnum græna hliðið...


Skil bara ekki fólk sem gerir eins og ég... wat?


Ég skil ekki fólk sem finnst sjálfsagt að komast upp með þetta, mér finnst það ekki sjálfsagt.



Skjámynd

FriðrikH
Geek
Póstar: 895
Skráði sig: Lau 22. Sep 2007 20:25
Reputation: 28
Staða: Ótengdur

Re: Armbandsúr tekið í tollinum

Pósturaf FriðrikH » Þri 07. Maí 2013 17:02

Hvað meinarðu?? Sekt er upptaka á eignum? Er það þá líka þjófnaður að beita sektum? Reglurnar varðandi þetta eru alveg skýrar og ef fólk er tilbúið að taka þessa áhættu, þá á það að vera tilbúið að taka afleiðingunum.

Templar skrifaði:Það er meira en nóg refsing að borga tollinn og sekt, upptaka úrsins er þjófnaður. Þeir sem ekki skilja að upptaka af hálfu hins opinbera er þjófnaður vantar skilning á eðli stakkheimtu og tolla, það er t.d. ekkert sjálfsagt að hafa toll eða rukka skatt, þú ert með valdboði að fara í veski náungans og skammta þér af eignum hans, samkomulag um þetta heitir samfélags sáttmáli og það samþykkir engin upptöku eigna, ergo því er þetta þjófnaður af hinu opinbera.

Xovier þú þarft að lesa aðeins meira um heimspeki, skatta og pólitískar stefnur nú og í sögunni og ég svara þér með þessu; ég skil bara ekki fólk sem finnst svona reglur í lagi og ekki að brjóta svona reglur sem eru bara þjófnaður.

Templar



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Armbandsúr tekið í tollinum

Pósturaf Gúrú » Þri 07. Maí 2013 17:09

Templar skrifaði:Það er meira en nóg refsing að borga tollinn og sekt, upptaka úrsins er þjófnaður. Þeir sem ekki skilja að upptaka af hálfu hins opinbera er þjófnaður vantar skilning á eðli stakkheimtu og tolla, það er t.d. ekkert sjálfsagt að hafa toll eða rukka skatt, þú ert með valdboði að fara í veski náungans og skammta þér af eignum hans, samkomulag um þetta heitir samfélags sáttmáli og það samþykkir engin upptöku eigna, ergo því er þetta þjófnaður af hinu opinbera.
Xovier þú þarft að lesa aðeins meira um heimspeki, skatta og pólitískar stefnur nú og í sögunni og ég svara þér með þessu; ég skil bara ekki fólk sem finnst svona reglur í lagi og ekki að brjóta svona reglur sem eru bara þjófnaður.
Templar


Að fangelsa fyrir morð er mannrán. Það væri alveg nóg að skamma fólk bara. Samt fangelsum við fólk. Það er bara mannrán.


Modus ponens


Halli13
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 305
Skráði sig: Lau 06. Mar 2010 21:49
Reputation: 11
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Armbandsúr tekið í tollinum

Pósturaf Halli13 » Þri 07. Maí 2013 17:15

Afhverju ætti fólk ekki að missa vöruna?

Ef það höstlar vörunni inní landið þá er varan ólögleg, alveg einsog t.d fíkniefni og ólöglegir hlutir eru gerðir upptækir.

Geri mér alveg grein fyrir því að fíkniefni og úr eru ekki sömu hluturnir en eru bæði ólöglegt ef ekki er borgað tollur af úrinu.

Það þarf að vera refsing fyrir öll lögbrot og refsingin á ekki að vera sú sama og það sem hefði kostað að gera hlutinn löglega, það er ekki refsing.



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Armbandsúr tekið í tollinum

Pósturaf KermitTheFrog » Þri 07. Maí 2013 17:23

Halli13 skrifaði:Afhverju ætti fólk ekki að missa vöruna?

Ef það höstlar vörunni inní landið þá er varan ólögleg, alveg einsog t.d fíkniefni og ólöglegir hlutir eru gerðir upptækir.

Geri mér alveg grein fyrir því að fíkniefni og úr eru ekki sömu hluturnir en eru bæði ólöglegt ef ekki er borgað tollur af úrinu.

Það þarf að vera refsing fyrir öll lögbrot og refsingin á ekki að vera sú sama og það sem hefði kostað að gera hlutinn löglega, það er ekki refsing.


Þú borgar tollinn og sekt í ofanálag. Er varan ennþá ólögleg þegar þú ert búinn að borga af henni öll gjöld? Það er bara blaut tuska og putti í andlitið að taka vöruna líka.

Og btw, að líkja þessu við morð er bara vitleysa. Ég skil vel að menn reyni að sneiða okkar asnalega tollakerfi.




Halli13
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 305
Skráði sig: Lau 06. Mar 2010 21:49
Reputation: 11
Staðsetning: Kópavogur
Staða: Ótengdur

Re: Armbandsúr tekið í tollinum

Pósturaf Halli13 » Þri 07. Maí 2013 17:36

KermitTheFrog skrifaði:
Halli13 skrifaði:Afhverju ætti fólk ekki að missa vöruna?

Ef það höstlar vörunni inní landið þá er varan ólögleg, alveg einsog t.d fíkniefni og ólöglegir hlutir eru gerðir upptækir.

Geri mér alveg grein fyrir því að fíkniefni og úr eru ekki sömu hluturnir en eru bæði ólöglegt ef ekki er borgað tollur af úrinu.

Það þarf að vera refsing fyrir öll lögbrot og refsingin á ekki að vera sú sama og það sem hefði kostað að gera hlutinn löglega, það er ekki refsing.


Þú borgar tollinn og sekt í ofanálag. Er varan ennþá ólögleg þegar þú ert búinn að borga af henni öll gjöld? Það er bara blaut tuska og putti í andlitið að taka vöruna líka.


Sektinn í þessu tilfelli er úrið, sem er kannski rangt, en þá er sektin allavegna í hlutfalli við það sem þú braust af þér.

Sektin gæti einnig verið andvirði úrsins en aftur á móti hafa ekki allir efni á því að punga út þá upphæð aftur.



Skjámynd

natti
Tölvutryllir
Póstar: 663
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Reputation: 61
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Úr tekið í tollinum

Pósturaf natti » Mið 08. Maí 2013 21:05

coldcut skrifaði:
dori skrifaði:Þú þarft að taka á þig krók til að fara í rauða hliðið og þú ert, hef ég heyrt, trítaður eins og glæpamaður og leitað í öllu hjá þér ef þú gerir það.


Auðvitað þarf að breyta þessu en lög eru lög. Varðandi að vera trítaður eins og glæpamaður þá lenti ég ekki í því þegar ég fór þar í gegn og enginn annar af þessum 20+ sem fóru í rauða hliðið.


Hvenær fórstu síðast til útlanda?
Er mikið búið að breytast síðusta mánuðinn eða tvo? Ég gekk þarna síðast í gegn í mars...

a) Þú tekur engan "krók" til að fara í "rauða hliðið". Þetta er nánast eins og lúgusjoppa á leiðinni út.

b) Í "rauða hliðinu" ertu bara afgreiddur með það sem þú segir til um, það er engin leit eða þess háttar þar, undir venjulegum kringumstæðum þ.e.
Þú basically talar við einstakling, sýnir kvittanir, borgar, færð kvittun, og depending á hvernig tæki þetta er þá geturu fengið límmiða líka.
Þegar þú ert búinn þar, þá labbaru aftur inn á sama gang og allir aðrir ferðamenn, og heldur áfram að ganga út ganginn á leiðinni út.
Aðeins lengra eru tollverðirnir sem sjá um að pikkka fólk út fyrir leit.
Að öllu jöfnu hafa þessir tollverðir ekki hugmynd um hvort þú sért búinn að fara í rauða hliðið eða ekki, og hvort þú verður fyrir valinu í að það sé leitað hjá þér er þá á allt öðrum forsendum.
Eina undantekningin á þessu er ef einstaklingurinn sem afgreiddi þig í rauða hliðinu kalli til hinna tollvarðanna og biðji sérstaklega um að þú sért stoppaður, sem ég efast um að sé algengt nema þú sért sérstaklega grunsamlegur.


Mkay.


coldcut
Vaktari
Póstar: 2192
Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
Reputation: 0
Staðsetning: /dev/random
Staða: Ótengdur

Re: Úr tekið í tollinum

Pósturaf coldcut » Fös 10. Maí 2013 09:43

natti skrifaði:
coldcut skrifaði:
dori skrifaði:Þú þarft að taka á þig krók til að fara í rauða hliðið og þú ert, hef ég heyrt, trítaður eins og glæpamaður og leitað í öllu hjá þér ef þú gerir það.


Auðvitað þarf að breyta þessu en lög eru lög. Varðandi að vera trítaður eins og glæpamaður þá lenti ég ekki í því þegar ég fór þar í gegn og enginn annar af þessum 20+ sem fóru í rauða hliðið.


Hvenær fórstu síðast til útlanda?
...


Ég reikna með að þú hafi quoteað vitlaust en annars kom ég til Íslands frá BNA í desember, með þrjár huge ferðatöskur.