Einhverskonar met í visible wifi networks


Höfundur
Some0ne
spjallið.is
Póstar: 449
Skráði sig: Fös 11. Okt 2002 01:22
Reputation: 3
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

Einhverskonar met í visible wifi networks

Pósturaf Some0ne » Sun 17. Mar 2013 00:16

Ég bý í blokk og wifi hefur alltaf verið semi martröð hjá mér, aldrei fengið neinn spes hraða sama hvaða router ég er með.

Tékkaði svo með insider hversu mörg AP ég sé.. jú heil 29. Geri aðrir betur.

Mynd



Skjámynd

tdog
Vaktari
Póstar: 2012
Skráði sig: Mán 06. Des 2010 17:32
Reputation: 24
Staða: Ótengdur

Re: Einhverskonar met í visible wifi networks

Pósturaf tdog » Sun 17. Mar 2013 00:37

Fáðu þér N-capable aðgangspunkt ef tölvan þín styður það.




einarth
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 346
Skráði sig: Þri 26. Okt 2010 15:01
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: Einhverskonar met í visible wifi networks

Pósturaf einarth » Sun 17. Mar 2013 00:42

Ennþá betra væri að fá þér N-punkt á 5Ghz tíðni - þá losnarðu alveg við truflanir frá þessum netum - þ.e.a.s. ef tölvan þín er með kort sem styður það.




hkr
spjallið.is
Póstar: 407
Skráði sig: Fös 23. Jan 2009 14:22
Reputation: 15
Staða: Ótengdur

Re: Einhverskonar met í visible wifi networks

Pósturaf hkr » Sun 17. Mar 2013 00:45

Smá offtopic:
Ég hélt að það væri löngu búið að taka út alla routera sem eru með SpeedTouch+6h SSID.. eða var bara breytt default wpa lyklunum á þeim? Vona það þeirra vegna..
Væri gaman að sjá hvort að TAL+6h séu líka að nota default wpa. Þeas Thomson routerarnir.

Áhugavert að sjá hversu mikið cluster myndast við Channel 1 og 6, en er það ekki það sem búast má við þar sem að non-overlapping hoppar frá 1 til 6 til 11 og svo til 14 á 2.4 GHz.




Höfundur
Some0ne
spjallið.is
Póstar: 449
Skráði sig: Fös 11. Okt 2002 01:22
Reputation: 3
Staðsetning: Garðabær
Staða: Ótengdur

Re: Einhverskonar met í visible wifi networks

Pósturaf Some0ne » Sun 17. Mar 2013 01:32

Þetta á svo allverulega að vera N capable access point, cisco e4200, veit ekki afhverju í fokkanum hann er að festast á 54mb.

Svo virðist netkortið í lappanum vera eitthvað vangefið, því ef að ég faststilli á N-mode á 2.4ghz, þá nær lappinn ekki að tengjast.

Qualcomm Atheros AR9002WB-1NG <- þetta er chipsettið í vélinni, sem styður ekki 5ghz, og virðist hata N, því að væntanlega er það þessi vél sem lætur routerinn droppa niður í 54mb.

Er búinn að vera skoða einhverja valid options í netkortum en finn ekkert sérstaklega djúsí, mögulega asus usb-53n eða eitthvað..